Page 1 of 1

Gírkassaspurningar

PostPosted: Mon 08. Feb 2010 16:10
by JOGA
Er að skipuleggja það að skipta út sjálfskiptingunni Touring fyrir beinskipt.
Er svolítið óviss með eitt og vantar ráðleggingar.

Get fengið ZF kassa hér heima (Orginal í 328i og M3) en hann kostar líka ágætan aur.

Get líka fengið 325i/525i kassa fyrir eitthvað minni pening en í báðum tilvikum vantar mig samt drifskapt og tilheyrandi.

Spurningin er: Er mikill munur á þessum kössum í akstri?
Skilst að þetta séu munur á drifhlutföllum í kössunum. Munar ekki miklu finnst manni:

Getrag (92-95) ZF (96+)
1 4.23 4.20
2 2.52 2.49
3 1.66 1.67
4 1.22 1.24
5 1.00 1.00

Haldið þið að það sé þess virði að eyða ca. 60-70þús meira í ZF kassann?

Re: Gírkassaspurningar

PostPosted: Mon 08. Feb 2010 16:26
by SævarM
sé ekki alveg gróðan í zf kassanum, ég persónulega myndi spara mér þennan 60-70þ. og taka getrag.

Re: Gírkassaspurningar

PostPosted: Mon 08. Feb 2010 16:28
by arnibjorn
Sammála Sævari, rugl að fara borga svona mikið.

Þegar ég var í gírkassaveseni á mínum gamla 325i þá fann ég ZF kassa á einhvern 30-40k hjá Vöku en endaði á að kaupa getrag kassa á 40k minnir mig. Gerði það nú bara af því að ég hélt ég gæti bara notað getrag, annað kom síðan í ljós.

Held að ZF kassinn sem var uppí Vöku hafi eflaust bara verið hent :o

Re: Gírkassaspurningar

PostPosted: Mon 08. Feb 2010 16:38
by birkire
Þessi hlutföll eru svo keimlík að það er enginn að fara að finna mun á kössunum. Annars hef ég heyrt að ZF kassinn sé mun sterkari, þoli meiri átök og slitni seinna, bara word of mouth af netinu en ZF310z kassinn sem ég setti í bílinn minn er keyrður 250þ held ég og er eins og nýr bara svo það hlýtur að vera eitthvað til í því.

Re: Gírkassaspurningar

PostPosted: Mon 08. Feb 2010 16:38
by Aron Andrew
arnibjorn wrote:Sammála Sævari, rugl að fara borga svona mikið.

Þegar ég var í gírkassaveseni á mínum gamla 325i þá fann ég ZF kassa á einhvern 30-40k hjá Vöku en endaði á að kaupa getrag kassa á 40k minnir mig. Gerði það nú bara af því að ég hélt ég gæti bara notað getrag, annað kom síðan í ljós.

Held að ZF kassinn sem var uppí Vöku hafi eflaust bara verið hent :o


Þú varst með getrag en við settum zf í staðin :wink:

Re: Gírkassaspurningar

PostPosted: Mon 08. Feb 2010 16:54
by arnibjorn
Aron Andrew wrote:
arnibjorn wrote:Sammála Sævari, rugl að fara borga svona mikið.

Þegar ég var í gírkassaveseni á mínum gamla 325i þá fann ég ZF kassa á einhvern 30-40k hjá Vöku en endaði á að kaupa getrag kassa á 40k minnir mig. Gerði það nú bara af því að ég hélt ég gæti bara notað getrag, annað kom síðan í ljós.

Held að ZF kassinn sem var uppí Vöku hafi eflaust bara verið hent :o


Þú varst með getrag en við settum zf í staðin :wink:

Já alveg rétt... er að rifja þetta upp núna.

Ég fann kassa í Vöku og ætlaði að kaupa hann á 30k minnir mig. Síðan kom í ljós að það var ZF kassi og ég hélt að ég gæti bara notað Getrag þannig að ég beilaði á þeim kassa. Veit ekki hvað varð um hann.... endaði eflaust bara í ruslinu.

Síðan kom í ljós að ég gat notað ZF þannig að ég keypti kassa af ÁrnaB á aðeins meiri pening en kassinn kostaði í Vöku :)

Re: Gírkassaspurningar

PostPosted: Mon 08. Feb 2010 17:53
by JOGA
Ég var náttúrulega með ZF kassa úti í 328i Sport.
Sá kassi var görsamlega eins og nýr eftir 160þús.km. Ekki vottur af sliti.

Er ekki hægt að skipta um fóðringar í þessum E36 skiptiörmum eins í E30 gamla? Þ.e. ef maður tæki Getrag kassa?

Re: Gírkassaspurningar

PostPosted: Mon 08. Feb 2010 21:37
by birkire
Samskonar skiptibúnaður á þessu öllu