Í bílnum hjá þér ertu mjög sennilega með þessa littlu með bláa plastinu, þá er hún hægra megin við bensínpetalann, verður að fjarlægja trimmið fyrst í burtu, bara ein skrúfa ef ég man rétt. Ættir svo að sjá glitta í hana þarna á bakvið. Smá maus að skipta um þetta, en ekkert mikið. Veit ekki hvað hún kostar í dag, myndi halda svona í kringum 5-10 þús kr. Kostaði um rétt innanvið 5 þús fyrir hrun.
Hinsvegar ef þú ert með svokallað sverð, sem ég held að hafi verið bara til ´91 eða álíka, þá tekuru trimmið úr farþegamegin og það eru ein eða tvær skrúfur sem halda því. Ef þú ert með það, og það er bilað, þá öfunda ég þig ekki, kostaði um 80 þús í B&L fyrir hrun. Hef ekki hugmynd um hvað það myndi kosta í dag. Og það er nánast ómögulegt að fá það í lagi af partasölu.
Jæja, gangi þér annars vel.
_________________ Sverrir Már
Fyrri BMW: BMW 518i E34 ´91 / BMW 735iA E32 ´92 / BMW 535iA E34 ´89 / BMW 318iA E36 ´93
|