Page 1 of 1

Skipta um stýrisstöng í E30 update mynd !

PostPosted: Mon 01. Feb 2010 10:20
by jens
Vantar smá lýsingu á því hvernig maður tekur stýristúpuna/stöngina úr E30. Er búin að rífa mig ansi langt en er hún slegin niður úr þessum hvítu nylon fóðringum ?

Re: Skipta um stýrisstöng í E30

PostPosted: Tue 02. Feb 2010 17:54
by SævarM
losar klemmuna neðst á túbunni og losar hjöruliðinn báðumeginn sem er í húddinu og tekur plastið kringum stýrið í burtu og svo er bara að berja hana niður. þá kemur hún úr 2 hökum sem hún situr í að ofan og þá áttu bara að geta dregið hana inn í bíl.


Nema að þú sért með loftpúða þá er þetta miklu meira vesen.

Re: Skipta um stýrisstöng í E30

PostPosted: Tue 02. Feb 2010 22:09
by jens
Sævar ég er með stöngina og dobblarann úr rauða Gst, smíðaði þú hana ?

Og já ég er með loftpúðabíl, alveg sama unit og í RV hans Stefáns. Getur þú reynt að lýsa hvað var gert í honum.

Hnoðið sem heldur sviss unit´inu er það borað út.

Image

Re: Skipta um stýrisstöng í E30 update mynd !

PostPosted: Wed 03. Feb 2010 17:40
by SævarM
Þú þarft að breyta upphengjunni sem er á túbunni með dobblaranum og fá neðasta hjöruliðinn niður við rackið úr non loftpúðabíl, fá spennuna sem á að vera niður við gólf, og festinguna fyrir hana. þetta var svona í stebba bíl og við lentum og svolitlu basli þar. og jú ég smíðaði þetta.

Þetta fer auðveldlega í þegar búið er að fá allt í það.