bmwkraftur.is
https://bmwkraftur.is/spjall/

E38 rafmagnsraunir
https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=7&t=42688
Page 1 of 1

Author:  trigger [ Sat 30. Jan 2010 13:42 ]
Post subject:  E38 rafmagnsraunir

Það má segja að það sé "eitthvað" búið að vera að angra rafmagnið í E38 ('97) hjá mér frá því ég tók við honum í mars 2008. Byrjaði fyrsta kvöldið að dúndra þjófavörninni á í tíma og ótíma. Ég skipti um geymi (01.04.08) og allt gekk vel þangað til í miklu frosti í febrúar 2009 þá vildi hann ekki í gang. Startarinn tók við sér í smástund, stoppaði, fór af stað aftur (autostartfídusinn væntanlega að klikka) og aðalljósin "blikkuðu" í takt við þetta. Annar nýr rafgeymir og allt gott... þangað til 03.01.10 ! Þá þurfti hann að vera úti eina öfluga frostanótt (lánaði bílskúrinn í afísun á gamalli Zúkku) og viti menn sama hegðun! Eftir smástart (frá Zúkku... neyðarlegt!) og látinn ganga vel og lengi var hann til friðs þangað til á fimmtudaginn var (28.01.10) þá kom sama hegðun upp á bílastæði út í bæ. Daginn áður hafði verið farið í marga stutta skreppi og það var undir frostmarki.
Það er búið að ganga úr skugga um útleiðslu og hún er eðlileg m.v. svona bíl og hleðslan er góð og ég trúi ekki að ég hafi fengið tvo ónýta rafgeyma í röð. Ég fór því á stúfana og eftir dálítið gúgl er ég á því að http://www.meeknet.co.uk/E38/E38_Battery_Drain.htm sé skynsamlegasta lesninginn um málið. Þetta smellpassar við notkunarmynstrið hjá manni, stuttar ferðir (bíllinn er á Akureyri) og jafnvel notkunarleysi í 2-3 daga í röð. Rafkerfið hefur s.s. þess utan hagað sér eðlilega nema þetta. Eins og kemur fram á síðunni eru kerfi í bílnum að nota rafmagn í allt að 16 mínútur eftir að það er drepið á honum og allt að 6Amp! Svo er tvísýnt um hvort stuttar ferðir með fullri rafmagnsnotkun og lágum snúningi gefi alternatornum svigrúm til að vinna upp startið (sem étur auðvitað mikið líka!).

Ég ákvað því áður en ég færi að eyðileggja þriðja rafgeyminn á jafnmörgum árum að versla mér "sjálfvirkt" 6Amp hleðslutæki hjá Stillingu (innan við 10.000kr) og skellti því á hann yfir nótt. Fullhleðsla á 100Ah geymi ætti að taka 17klst tæpar svo ég lét hann standa frá 14:00 til 08:00 morguninn eftir og hann getur ekki hafa verið alveg tómur (fór í gang áður en hleðsla hófst). Það gæti auðvitað verið tilviljun en mér fannst hann léttari í gang eftir hleðsluna en oft áður eftir að hafa staðið yfir nótt.

Þó það hafi verið straumur á geyminum varð líklega spennufall þegar "state of charge" var orðið lægra en góðu hófi gengdi og það gæti haft áhrif á rafeindastýringar (þó startarinn hamist!). Nýrri E38 eru með tvo rafgeyma sem mjög sennilega var gert til að koma í veg fyrir þetta / draga úr þessu vandamáli.

Þessi "uppgötvun" gaf bílnum a.m.k. einn séns í viðbót... vona að þetta gæti komið einhverjum öðrum að gagni líka og hjálpað til við geðheilsuna (mín var tæp á tímabili) hjá eigendum rafmagnsháka. Þetta er þó ágætis "tvinnbíll" og talsvert skemmtilegri í akstri en Prius.

Author:  hoddikr [ Sun 31. Jan 2010 21:36 ]
Post subject:  Re: E38 rafmagnsraunir

Þvílík snilld að rekast á þetta núna, ég er einmitt með sama vandamál hjá mér.
Er með e38 740, og hef tekið eftir því að hann leiðir eitthvað út. Hann stóð í tvo daga fyrir helgi og þegar ég startaði honum var hann orðin tæpur, var latur í gang. En ég taldi að hann myndi ná að hlaða sig upp. svo er hann búin að standa aftur í tvo daga og er alveg dáin.

Ég var einmitt að bölva þessu og skildi þetta ekki, en þessi linkur svarar öllum mínum spurningum, lítil notkun, stuttar ferðir og skítakuldi.

Author:  trigger [ Fri 05. Feb 2010 21:22 ]
Post subject:  Re: E38 rafmagnsraunir

Heyrðu þá er mínútunum sem fóru í að skrifa þetta vel varið. Minn situr inni í bílskúr í hleðslu eins og Prius núna og líður vel. Hann var akkúrat með sama mynstur var aðeins latari í gang þegar fór að draga af honum (gæti verið ágætt early-warning merki).

Author:  Jón Ragnar [ Fri 05. Feb 2010 21:49 ]
Post subject:  Re: E38 rafmagnsraunir

Smá leiðrétting trigger

Prius er ekki ennþá orðin plug in car

Kannski næsta gen

Author:  gunnar [ Sat 06. Feb 2010 10:52 ]
Post subject:  Re: E38 rafmagnsraunir

John Rogers wrote:
Smá leiðrétting trigger

Prius er ekki ennþá orðin plug in car

Kannski næsta gen

Það eru til tveir plugin Priusar á Akureyri, telur það ekki með ? :o

Author:  trigger [ Sat 06. Feb 2010 11:12 ]
Post subject:  Re: E38 rafmagnsraunir

Þarna kom ég upp um hvað ég er illa að mér í "umhverfisvænum" bílum :-) En fyrst það eru til 2 á Akureyri hlýtur það að telja fyrst ég er á Akureyri líka ( góð redding, takk!).

Annars væri ekkert að því að eiga svona active hybrid sjöu:
"but for the S-Class it is hooked to a V6 and tuned for economy,
whereas for the 7-Series it's hooked to a 449bhp twin-turbo V8
and tuned for epic performance."

Author:  Jón Ragnar [ Sat 06. Feb 2010 12:41 ]
Post subject:  Re: E38 rafmagnsraunir

gunnar wrote:
John Rogers wrote:
Smá leiðrétting trigger

Prius er ekki ennþá orðin plug in car

Kannski næsta gen

Það eru til tveir plugin Priusar á Akureyri, telur það ekki með ? :o

Ég var alveg 100% viss um að prius væri ekki plug in bíll ennþá því að hann er tvinnbíll :shock:

Author:  gunnar [ Sun 07. Feb 2010 13:15 ]
Post subject:  Re: E38 rafmagnsraunir

John Rogers wrote:
gunnar wrote:
John Rogers wrote:
Smá leiðrétting trigger

Prius er ekki ennþá orðin plug in car

Kannski næsta gen

Það eru til tveir plugin Priusar á Akureyri, telur það ekki með ? :o

Ég var alveg 100% viss um að prius væri ekki plug in bíll ennþá því að hann er tvinnbíll :shock:

Það er HomeMade edition frá RHA hér í háskólanum, kostaði víst formúgu að smíða þessa bíla í rannsóknarverkefni :shock:

Author:  Jón Ragnar [ Sun 07. Feb 2010 23:24 ]

Knew it!! :lol:

Author:  trigger [ Mon 08. Feb 2010 08:55 ]
Post subject:  Re: E38 rafmagnsraunir

Made in the University of Sveitin :)

En af hleðslutilrauninni á Akureyri með e38 er allt gott að frétta er á "cycle" nr 2 núna (1 hleðslunótt á viku) og gengið ennþá.

Author:  raxions [ Mon 08. Feb 2010 16:49 ]
Post subject:  Re: E38 rafmagnsraunir

trigger wrote:
Það má segja að það sé "eitthvað" búið að vera að angra rafmagnið í E38 ('97) hjá mér frá því ég tók við honum í mars 2008. Byrjaði fyrsta kvöldið að dúndra þjófavörninni á í tíma og ótíma. Ég skipti um geymi (01.04.08) og allt gekk vel þangað til í miklu frosti í febrúar 2009 þá vildi hann ekki í gang. Startarinn tók við sér í smástund, stoppaði, fór af stað aftur (autostartfídusinn væntanlega að klikka) og aðalljósin "blikkuðu" í takt við þetta. Annar nýr rafgeymir og allt gott... þangað til 03.01.10 ! Þá þurfti hann að vera úti eina öfluga frostanótt (lánaði bílskúrinn í afísun á gamalli Zúkku) og viti menn sama hegðun! Eftir smástart (frá Zúkku... neyðarlegt!) og látinn ganga vel og lengi var hann til friðs þangað til á fimmtudaginn var (28.01.10) þá kom sama hegðun upp á bílastæði út í bæ. Daginn áður hafði verið farið í marga stutta skreppi og það var undir frostmarki.
Það er búið að ganga úr skugga um útleiðslu og hún er eðlileg m.v. svona bíl og hleðslan er góð og ég trúi ekki að ég hafi fengið tvo ónýta rafgeyma í röð. Ég fór því á stúfana og eftir dálítið gúgl er ég á því að http://www.meeknet.co.uk/E38/E38_Battery_Drain.htm sé skynsamlegasta lesninginn um málið. Þetta smellpassar við notkunarmynstrið hjá manni, stuttar ferðir (bíllinn er á Akureyri) og jafnvel notkunarleysi í 2-3 daga í röð. Rafkerfið hefur s.s. þess utan hagað sér eðlilega nema þetta. Eins og kemur fram á síðunni eru kerfi í bílnum að nota rafmagn í allt að 16 mínútur eftir að það er drepið á honum og allt að 6Amp! Svo er tvísýnt um hvort stuttar ferðir með fullri rafmagnsnotkun og lágum snúningi gefi alternatornum svigrúm til að vinna upp startið (sem étur auðvitað mikið líka!).

Ég ákvað því áður en ég færi að eyðileggja þriðja rafgeyminn á jafnmörgum árum að versla mér "sjálfvirkt" 6Amp hleðslutæki hjá Stillingu (innan við 10.000kr) og skellti því á hann yfir nótt. Fullhleðsla á 100Ah geymi ætti að taka 17klst tæpar svo ég lét hann standa frá 14:00 til 08:00 morguninn eftir og hann getur ekki hafa verið alveg tómur (fór í gang áður en hleðsla hófst). Það gæti auðvitað verið tilviljun en mér fannst hann léttari í gang eftir hleðsluna en oft áður eftir að hafa staðið yfir nótt.

Þó það hafi verið straumur á geyminum varð líklega spennufall þegar "state of charge" var orðið lægra en góðu hófi gengdi og það gæti haft áhrif á rafeindastýringar (þó startarinn hamist!). Nýrri E38 eru með tvo rafgeyma sem mjög sennilega var gert til að koma í veg fyrir þetta / draga úr þessu vandamáli.

Þessi "uppgötvun" gaf bílnum a.m.k. einn séns í viðbót... vona að þetta gæti komið einhverjum öðrum að gagni líka og hjálpað til við geðheilsuna (mín var tæp á tímabili) hjá eigendum rafmagnsháka. Þetta er þó ágætis "tvinnbíll" og talsvert skemmtilegri í akstri en Prius.

Ég á við mjög svipað rafmagnsvandamál að stríða í mínum E38, 750. Ég skrifaði á sínum tíma einhvern þráð hérna inn, virðist vera sem svo að enginn geti beint lagað vandamálið sem orsakar þetta(þ.e. fundið útleiðslu ef t.d. og komið í veg fyrir hana) heldur bara farið í að bregðast við afleiðingunum.
Það versta þykir mér að ég hef ekki afnot af bílskúr, og engin leið er að leiða rafmagnssnúru út að bílastæði hjá mér.

Hef bara hreinlega neyðst til þess að taka mínuspólinn af rafgeyminum í hvert einasta skipti sem ég legg bílnum lengur en sirka 2 tíma samfleytt.
Hef verið að standa í því í um 2 og hálft ár... satt best að segja fer að verða full þreyttur á þessu. :o

Author:  ViggiRS [ Mon 08. Feb 2010 16:57 ]
Post subject:  Re: E38 rafmagnsraunir

Ég er með E38 og nota hann aldrei um helgar enda vinn ég ekki um helgar og
hann flýgur alltaf í gang. Hann hefur staðið mest í 3 vikur og var ekkert að þá

Page 1 of 1 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/