Page 1 of 1
Getur röng olía komið í veg fyrir gangsetningu

Posted:
Tue 26. Jan 2010 11:01
by Zed III
Ég komst að því að m50 vélin hjá mér var ansi vel svelt af olíu án þess að olíuljósið hafi komið á.
Ég fór í N1 og keypti Mobile Super 3000 5w40 og bætti á vélina 4 lítrum (magnað að það hafi vantar svo mikið). Eftir þessa áfyllingu kem ég þó ekki bílnum í gang. Hann startar og startar en fer þó ekki í gang.
Þó mér finnist það ólíklegt, getur þetta tengst?
Re: Getur röng olía komið í veg fyrir gangsetningu

Posted:
Tue 26. Jan 2010 11:09
by Hannsi
Skrítið.
Olían hefur aldrei verið ástæðan að bíll fer ekki gang nema hreinlega að bíllinn er olíulaus og eitthvað fast.
4 lítrar eru slatti já rétt rúmlega 2 lítrar eftir í pönnunni þá.
Re: Getur röng olía komið í veg fyrir gangsetningu

Posted:
Tue 26. Jan 2010 11:23
by gstuning
Ef þú settir þetta í bensín tankinn eða olían er sýróp þá kannski myndi þetta hindra vélina að fara í gang,
annars ekki.
Re: Getur röng olía komið í veg fyrir gangsetningu

Posted:
Tue 26. Jan 2010 11:45
by Svezel
Þetta er þekkt í t.d. VW að vélin startar ekki ef það er lítil olía á bílnum
Re: Getur röng olía komið í veg fyrir gangsetningu

Posted:
Tue 26. Jan 2010 13:23
by Zed III
Svezel wrote:Þetta er þekkt í t.d. VW að vélin startar ekki ef það er lítil olía á bílnum
Ekkert svoleiðis í gangi núna, levelið er akkúrat rétt svk kvarðanum.
já, og ég er nokkuð viss að ég hafi smellt þessu á réttan stað.
Re: Getur röng olía komið í veg fyrir gangsetningu

Posted:
Tue 26. Jan 2010 13:43
by Einarsss
Þori að veðja að kertin séu blaut af bensíni.. kipptu þeim úr og þurrkaðu með t.d kveikjara og aftur í
Re: Getur röng olía komið í veg fyrir gangsetningu

Posted:
Tue 26. Jan 2010 13:46
by Zed III
Ég reif úr 4 af 6 kertum og þau voru ekki sérlega blaut. Smá olía á þeim en alls ekki mikið og enganvegin nóg til þess að enginn neisti myndist.
Ég fann reyndar bensínlykt þegar ég hélt áfram að starta og hélt ég hefði bara yfirfyllt hann. Tók úr öryggið fyrir bensíndæluna og startaði í smá stund en án árangurs.
Re: Getur röng olía komið í veg fyrir gangsetningu

Posted:
Tue 26. Jan 2010 14:27
by Birgir Sig
en getur ekki verið að það sé of mikil olía á vélinni og hún vilji ekki fara í gang útaf því?
Re: Getur röng olía komið í veg fyrir gangsetningu

Posted:
Tue 26. Jan 2010 14:41
by Zed III
birgir_sig wrote:en getur ekki verið að það sé of mikil olía á vélinni og hún vilji ekki fara í gang útaf því?
Það er alveg möguleiki, en levelið hittir þó akkúrat á réttan stað á kvarðanum. Er þetta líklegt ?
Spurning að tappa af smá slatta og sjá hvað gerist.
Re: Getur röng olía komið í veg fyrir gangsetningu

Posted:
Tue 26. Jan 2010 15:00
by Axel Jóhann
Prófaðu að athuga hvort bensíndælan fari örugglega í gang. Ég var í veseni með M50 hjá mér þegar ég ætlaði að starta honum eftir hedd skiptin því relayið vildi ekki byrja dæla bensíni inná vélina.
Re: Getur röng olía komið í veg fyrir gangsetningu

Posted:
Tue 26. Jan 2010 15:01
by Zed III
Axel Jóhann wrote:Prófaðu að athuga hvort bensíndælan fari örugglega í gang. Ég var í veseni með M50 hjá mér þegar ég ætlaði að starta honum eftir hedd skiptin því relayið vildi ekki byrja dæla bensíni inná vélina.
Hvernig er best að skoða það ?
Hvar er annars bensíndælu relayið staðsett?
Re: Getur röng olía komið í veg fyrir gangsetningu

Posted:
Tue 26. Jan 2010 15:58
by hjaltib
Get allavega sagt þér það að ástæðan að bílinn þinn fari ekki í gang kemur olíumagninu ekkert við.
Heyrist eitthvað þjöppu hljóð?
Ef hann er ekkert að þjappa er bara að athuga þetta venjulega, eins og Axel segir fær hann bensín og athuga líka hvort keflið fær neista.
Hjalti
Re: Getur röng olía komið í veg fyrir gangsetningu

Posted:
Tue 26. Jan 2010 17:23
by Axel Jóhann
Zed III wrote:Axel Jóhann wrote:Prófaðu að athuga hvort bensíndælan fari örugglega í gang. Ég var í veseni með M50 hjá mér þegar ég ætlaði að starta honum eftir hedd skiptin því relayið vildi ekki byrja dæla bensíni inná vélina.
Hvernig er best að skoða það ?
Hvar er annars bensíndælu relayið staðsett?
Og til að athuga bensínið geturu tekið hosuna af fuel railinu þarna sem númer 12 er. og þá sérðu strax hvort vélin fær bensín.


Í e34 er það allavega í þessu boxi sem er hægra megin neðst. blátt á litinn.
Re: Getur röng olía komið í veg fyrir gangsetningu

Posted:
Tue 26. Jan 2010 21:06
by Zed III
Sorted
Drulla á kertunum, svart sót (ekki grátt eins og það á að vera) sem leiddi til að hann neistaði ekki nóg. Ný kerti og hann fór í gang.
TB reddar málunum enn og aftur.
Mig langar mikið til að endurbyggja þessa vél og setja heddpakkningu sem með tíð og tíma myndi ráða við blásara...