bmwkraftur.is
https://bmwkraftur.is/spjall/

Staðsetning á miðstöðvarmótstöðu í e34.
https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=7&t=42547
Page 1 of 1

Author:  Vlad [ Sun 24. Jan 2010 17:42 ]
Post subject:  Staðsetning á miðstöðvarmótstöðu í e34.

Hefur einhver hugmynd um hvar hana er að finna?

Þetta er í 525i 1993 árgerð.

Author:  Vlad [ Tue 02. Feb 2010 04:26 ]
Post subject:  Re: Staðsetning á miðstöðvarmótstöðu í e34.

No one?

Author:  Svessi [ Mon 08. Feb 2010 14:35 ]
Post subject:  Re: Staðsetning á miðstöðvarmótstöðu í e34.

Í bílnum hjá þér ertu mjög sennilega með þessa littlu með bláa plastinu, þá er hún hægra megin við bensínpetalann, verður að fjarlægja trimmið fyrst í burtu, bara ein skrúfa ef ég man rétt.
Ættir svo að sjá glitta í hana þarna á bakvið. Smá maus að skipta um þetta, en ekkert mikið. Veit ekki hvað hún kostar í dag, myndi halda svona í kringum 5-10 þús kr. Kostaði um rétt innanvið 5 þús fyrir hrun.

Hinsvegar ef þú ert með svokallað sverð, sem ég held að hafi verið bara til ´91 eða álíka, þá tekuru trimmið úr farþegamegin og það eru ein eða tvær skrúfur sem halda því.
Ef þú ert með það, og það er bilað, þá öfunda ég þig ekki, kostaði um 80 þús í B&L fyrir hrun. Hef ekki hugmynd um hvað það myndi kosta í dag. Og það er nánast ómögulegt að fá það í lagi af partasölu.

Jæja, gangi þér annars vel.

Author:  Vlad [ Mon 08. Feb 2010 15:03 ]
Post subject:  Re: Staðsetning á miðstöðvarmótstöðu í e34.

Takk kærlega fyrir þetta :thup:

Page 1 of 1 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/