bmwkraftur.is
https://bmwkraftur.is/spjall/

Vandamál með mistöð í e38 og fleiri vandamal
https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=7&t=42325
Page 1 of 1

Author:  Vilmar [ Wed 13. Jan 2010 03:14 ]
Post subject:  Vandamál með mistöð í e38 og fleiri vandamal

Er svona að pæla, hvort eitthver hafi lent í þessu áður, en stundum þá blæs mistöðin í smástund, segjum 30 sek, og svo slekkur hún á sér í svona 3 sek og kveikir aftur á sér, svona gengur þetta í smá tíma? eitthverjar hugmyndir?

Svo oft þegar maður gefur eitthvað aðeins í, þá verður hann alveg grútmáttlaus, og oft ef maður fer með bensíngjöfina lengra en svona 1/6 niður, þá er eins og bíllinn staðni bara. En þetta er samt ekki alltaf, kemur oftast þegar hann hefur staðið í viku eða lengur. Og stundum sprengir hann út, hef verið að pæla hvort að hvarfakúturinn sé stíflaður (með sprengingarnar að gera). En þetta er samt ekki alltaf, kemur oftast þegar hann hefur staðið í viku eða lengur.

Svo heyrir maður að hann gengur eitthvað óeðlilega í hægagangi og það er ekki check engine ljós

Tek það fram að þetta er 750 5.4l

Og annað, hvað heitir þessi vél?

Ausið nú úr reynslubankanum ykkar, allar upplýsingar vel þegnar

Author:  Vlad [ Wed 13. Jan 2010 05:49 ]
Post subject:  Re: Vandamál með mistöð í e38 og fleiri vandamal

Þarft líklegast nýja mótstöðu í miðstöðina, er með 525 e34 og er með nákvæmlega sama vandamál.

Author:  Axel Jóhann [ Wed 13. Jan 2010 15:16 ]
Post subject:  Re: Vandamál með mistöð í e38 og fleiri vandamal

Vélin heitir M73B54

Page 1 of 1 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/