Page 1 of 1

Miðstöðvarvesen í E36 320ia 1997

PostPosted: Mon 04. Jan 2010 03:01
by Bandit79
Vandamálið lýsir sér þannig að þegar bílinn er kyrrstæður í lausagangi þá blæs hann köldu en á ferð þá blæs hann heitu :?

Einnig blæs hann aðeins heitu á "program" 1 (rúður) og 3 (lappir) en blæs köldu á nr.2 (miðjustilling, blástur beint á farþega)

Getur þetta verið vatnslásinn sem er að klikka eða ? Finnst þetta samt vera frekar furðulegt....

Re: Miðstöðvarvesen í E36 320ia 1997

PostPosted: Mon 04. Jan 2010 03:39
by skulzen
þetta er greinilega eitthvað allt annað en vantslásinn hjá þér. er þetta ekki allt komið i rafmagnsvesen i dag!

er þetta ac bíll

Re: Miðstöðvarvesen í E36 320ia 1997

PostPosted: Mon 04. Jan 2010 09:29
by Zed III
fyrsti hlutinn er mögulega út af lofti á kerfinu.

Það útskýrir þó ekki að hann blási mismunandi eftir prógrömmum þó.

Re: Miðstöðvarvesen í E36 320ia 1997

PostPosted: Mon 04. Jan 2010 17:55
by Bandit79
Zed III wrote:fyrsti hlutinn er mögulega út af lofti á kerfinu.

Það útskýrir þó ekki að hann blási mismunandi eftir prógrömmum þó.


Hvernig tæmir maður loft af kerfinu ? Er þetta vatnskassakerfið sem þú átt við eða ?

Re: Miðstöðvarvesen í E36 320ia 1997

PostPosted: Tue 05. Jan 2010 08:59
by Zed III
Bandit79 wrote:
Zed III wrote:fyrsti hlutinn er mögulega út af lofti á kerfinu.

Það útskýrir þó ekki að hann blási mismunandi eftir prógrömmum þó.


Hvernig tæmir maður loft af kerfinu ? Er þetta vatnskassakerfið sem þú átt við eða ?


vatnskassakefið jebb.

Það er svokölluð bleed nipple á vatnskassanum sem er losuð þegar bíllin er að hitna til að hleypa loftinu úr kerfinu.

Neðst í þessari grein eru leiðbeiningar með bleed á kerfi.

http://www.pelicanparts.com/bmw/techarticles/E36-Coolant_Flush/E36-Coolant-Flush.htm

Re: Miðstöðvarvesen í E36 320ia 1997

PostPosted: Wed 27. Jan 2010 16:05
by Bandit79
Jæja fór í það að lofttæma

Og allt komið í lag!! :D

Fóru samt góðir 2.5 lítrar á kerfið og þurfti að gera þetta 3 sinnum áður en allt fór að fúnka eðlilega.

ótrúlega einfalt :)