Page 1 of 1

Leki í endakút á pústi...

PostPosted: Tue 29. Dec 2009 22:13
by Vlad
Jæja þannig er mál með vexti að það lekur eitthvað sull úr endakútnum á bílnum mínum [e34 525ia 1993], samt sem áður lekur þetta bara þegar bíllinn er í gangi.

Útskýringarmynd sem gæti hjálpað eitthvað vonandi :) (magnaðir paint hæfileikar ég veit)

Image

En ég var semsagt að spá hvort ég þyrfti bara skipta endakútnum eða hvort það væri eitthvað annað að valda þessum leka. :)

Re: Leki í endakút á pústi...

PostPosted: Tue 29. Dec 2009 22:18
by Bartek
ef þarf að skipta þá er ég með flott handa þér
viewtopic.php?f=12&t=42025

Re: Leki í endakút á pústi...

PostPosted: Tue 29. Dec 2009 22:21
by Vlad
Haha já var búinn að sjá þetta hjá þér. :) Tek þetta mjög líklega hjá þér ef kúturinn er eina ástæðan.

Re: Leki í endakút á pústi...

PostPosted: Tue 29. Dec 2009 22:26
by SævarSig
er þetta ekki bara vatn sem að er að leka úr pústinu hjá þér?

Re: Leki í endakút á pústi...

PostPosted: Tue 29. Dec 2009 22:29
by Vlad
saevar88 wrote:er þetta ekki bara vatn sem að er að leka úr pústinu hjá þér?


Það gæti vel verið þar sem þetta þornar frekar fljótt, þarf líklegast að kíkja betur á þetta við tækifæri.

Re: Leki í endakút á pústi...

PostPosted: Wed 30. Dec 2009 19:44
by Vlad
Þar sem þetta er líklegast vatn, er þetta þá eitthvað alvarlegt? Og er einhvernveginn hægt að láta þetta hætta? Leiðinlegt að hafa þetta lekandi. :|

Re: Leki í endakút á pústi...

PostPosted: Fri 01. Jan 2010 12:56
by BMW_Owner
skipta um kútinn