Page 1 of 1

startvandamál í 750

PostPosted: Tue 29. Dec 2009 01:01
by Vilmar
er með 750 árgerð 97, og nú vill hann allt í einu ekki starta.. s.s startarinn tekur ekkert við sér, var að velta því fyrir mér hvort t.d. fjarstýringin hafi árhrif á eitthvern hátt :) hún er nefnilega að verða straumlaus

Þetta kom fyrir mig líka um daginn, en sov allt í einu hrökk hann í gang

Re: startvandamál í 750

PostPosted: Tue 29. Dec 2009 01:26
by ömmudriver
Hmmm er jörðin e.t.v. orðin eitthvað tæp??

Re: startvandamál í 750

PostPosted: Tue 29. Dec 2009 01:30
by Vilmar
jörðin á startaranum? ég hef ekki aðstöðu eins og er til að kíkja á það :) en þegar ég starta, þá heyrist bara í svona 50 relayum fara í gang og ekkert meir. Ætla að prufa að hlaða bílinn á morgun og sjá svo til

Re: startvandamál í 750

PostPosted: Tue 29. Dec 2009 01:32
by ömmudriver
Vilmar wrote:jörðin á startaranum? ég hef ekki aðstöðu eins og er til að kíkja á það :) en þegar ég starta, þá heyrist bara í svona 50 relayum fara í gang og ekkert meir. Ætla að prufa að hlaða bílinn á morgun og sjá svo til


Já það er sterkur leikur að rífa geymirinn úr og hlaða hann alveg upp í topp, þá getur þú verið viss um að geymirinn sé ekki að stríða þér :wink: