Page 1 of 1

Hvað er hæfileg lækkun að framan á e39

PostPosted: Fri 11. Dec 2009 16:24
by Zed III
Mínum hefur verið lýst sem "sítt að aftan" og því hef ég spáð hvort ég ætti ekki bara að lækka hann aðeins að framan.

Væri 4cm lækkun of mikið ef maður er bara að leita að jafnvægi, ekki mega slamm ?

Image

Re: Hvað er hæfileg lækkun að framan á e39

PostPosted: Fri 11. Dec 2009 17:56
by Dóri-
eru gormarnir að aftan ekki bara ónýtir ?

Re: Hvað er hæfileg lækkun að framan á e39

PostPosted: Fri 11. Dec 2009 18:56
by Zed III
Það gæti verið og ég á reyndar aðra.

samt spurning hvort maður ætti bara að lækka að framan.

Re: Hvað er hæfileg lækkun að framan á e39

PostPosted: Fri 11. Dec 2009 19:59
by Freyr Gauti
Minn er lækkaður 30mm hringinn og mér finnst það alveg nóg, nokkrar hraðahindranir sem ég þarf að fara vel rólega yfir.

Re: Hvað er hæfileg lækkun að framan á e39

PostPosted: Sat 12. Dec 2009 20:20
by dabbiso0
Finnst líklegast að þú sért með loftfjöðrunina að aftan og púðarnir byrjaðir að leka. Eða er ég bara að rugla?
Myndi miklu frekar laga hann bara að aftan. :D

Re: Hvað er hæfileg lækkun að framan á e39

PostPosted: Mon 14. Dec 2009 10:08
by Zed III
dabbiso0 wrote:Finnst líklegast að þú sért með loftfjöðrunina að aftan og púðarnir byrjaðir að leka. Eða er ég bara að rugla?
Myndi miklu frekar laga hann bara að aftan. :D


held ég sé ekki með loftfjöðrun, en ég gæti haft rangt fyrir mér.

Re: Hvað er hæfileg lækkun að framan á e39

PostPosted: Mon 14. Dec 2009 10:17
by Aron Fridrik
minnir að þessi bíll sé bara með Mtech fjöðrun ekki vökvafjöðrun.. ef það bilar þá slammar hann líka alveg proper með þvílíkt negative camber..