Page 1 of 1
Spurningar um E34 520i og 525ix

Posted:
Sun 06. Dec 2009 16:10
by JBV
Sælir spekingar
Vantar info um þessa tvo bíla sem nefndir eru í topic-inu. Hvað eru þessir E34 bílar með þessar vélar að eyða? Hvað ber helst að athuga/varast þegar þessir bílar eru skoðaðir með kaup í huga. Hvað hafa þeir til bruns að bera fram yfir aðra bíla í þessum classa?
Ausiði nú endilega úr viskubrunnum ykkar - þið sem til þekkið - um E34 með þessar vélar.
Ekki væri verra ef þið gætuð bent mér á einhverja síðu með staðlaða tölfræði ym þessa bíla.

Re: Spurningar um E34 520i og 525ix

Posted:
Sun 06. Dec 2009 16:13
by Alpina
LANGBESTU kaupin er 525 5g bsk.. M50 ((24v))
einnig myndi ég taka 525ix beinskiptann,,
allir ix eru M50
afar fáir 525 M20 í umferð,,
520 ,,,,,,,,, nibbs.. loppið
Re: Spurningar um E34 520i og 525ix

Posted:
Sun 06. Dec 2009 16:18
by JBV
Gleymdi að taka fram að um sjálfskipta bíla er að ræða.
Hvað er þetta með loppið Sveinbjörn á 520 ?
Re: Spurningar um E34 520i og 525ix

Posted:
Sun 06. Dec 2009 16:20
by Alpina
JBV wrote:Gleymdi að taka fram að um sjálfskipta bíla er að ræða.
Hvað er þetta með loppið Sveinbjörn á 520 ?
Þetta er kraftlaust og eyðir meira en 525
á að fá sér E34
Jón Birgir ??
Re: Spurningar um E34 520i og 525ix

Posted:
Sun 06. Dec 2009 16:25
by JBV
Mér standa þessar bílar til boða já. Annars vegar 520i 150hp sjálfskiptur og 525ix sj.sk. Verð að segja að ég er spenntari fyrir 525ix heldur en hinum. Svo eru einhverjar stjörnur líka í sjónmáli. En ætla samt að víkka sjóndeildarhringin aðeins og gera samanburð.
Re: Spurningar um E34 520i og 525ix

Posted:
Sun 06. Dec 2009 16:29
by Alpina
JBV wrote:Mér standa þessar bílar til boða já. Annars vegar 520i 150hp sjálfskiptur og 525ix sj.sk. Verð að segja að ég er spenntari fyrir 525ix heldur en hinum. Svo eru einhverjar stjörnur líka í sjónmáli. En ætla samt að víkka sjóndeildarhringin aðeins og gera samanburð.
Togið i 2.0 er 190 nm 150 ps
á móti
525 192 ps og 245 nm
E34 eru fanta góðir bílar
Re: Spurningar um E34 520i og 525ix

Posted:
Sun 06. Dec 2009 16:31
by JBV
Veistu um eyðsluna á þeim?
Re: Spurningar um E34 520i og 525ix

Posted:
Sun 06. Dec 2009 16:46
by birkire
12-14 lítrar a hundraði í rólegum innanbæjarakstri er mín reynsla af þessu ef allt er í standi
Re: Spurningar um E34 520i og 525ix

Posted:
Sun 06. Dec 2009 19:03
by slapi
525ix getur verið svakalegur í rekstrarkostnaði.
Framdemparar eru $$$$$$ og einungis til orginal.
Re: Spurningar um E34 520i og 525ix

Posted:
Mon 07. Dec 2009 12:05
by BlitZ3r
Ef fólk ættlar að fá sér iX þá Verður ALLUR frambúnaðurin að vera góður annars ertu fjótur að fara upp í kaupverð á bílnum
Demparar eru á 80þús úti
spyrna á um 50k heima
gormar 2x dýrari en afturdrifnum
og fleirra = bara dýrt ef eitthvað er að
Bremsur eru einnig frábrugnar en nota sömu klossa
annars eru þeir nákvæmlega eins og allir aðrir 525
Eyðslan á mínum hér heima í eyjum er um 15.5-17 og um 9-12 á þjóðvegunum
Re: Spurningar um E34 520i og 525ix

Posted:
Mon 07. Dec 2009 15:22
by JBV
Ég þakka ykkur herramenn kærlega fyrir ítarleg og greinargóð svör. Ég mun hafa þau til hliðsjónar í bíla pælingum mínum.
Það virðist vera margt sem þarf að varast/athuga þegar þýskir aldnir fjórhjóladrifsfólksbílar eru annars vegar. En þeir eru bara svo helvíti skemmtilegir í akstri þegar á reynir. Þ.a.l. mjög freistandi að taka áhættu og festa sér einn slíkan, þó svo að það gæti grynkað snögglega og óþyrmilega í veskinu eftir svoleiðis kaup óumbeðið.

Re: Spurningar um E34 520i og 525ix

Posted:
Tue 08. Dec 2009 11:58
by Höfuðpaurinn
ég átti 520i og hann var í 10,5-12 innanbæjar og 7,5-9 utanbæjar, fór bara eftir þyngd hægri fótar. Notabene hann var bsk og að sjálfsögðu M50.