Page 1 of 1

Old vs. New ?

PostPosted: Sat 21. Nov 2009 21:02
by JonFreyr
Tvær spurningar....

Er sama Production Date merking á heddi og blokkum frá BMW? Er að vesenast með hvort blokkin mín komi úr eldri eða nýrri týpunni af M20B25....og þá aðallega til að athuga hvort einhver munur sé á þessum 2 mótorum vegna þess að ég þarf að kaupa tímareimarsett með öllu tilheyrandi. Það sett er þó eingöngu gefið upp fyrir ´88 og nýrra og vegna þess að ég gat ekki fundið info um þetta tiltekna vandamál á netinu, þá leitaði ég til ykkar :)

Þetta er minniháttar vandamál en samt ekki, verð að vera með þetta á hreinu svo ég sé ekki að versla dót sem ég get ekki notað. Endilega ef einhver snillingurinn les þetta, hendið inn svari. Veit að það er einhver hérna sem veit svarið við þessu.

Re: Old vs. New ?

PostPosted: Sun 22. Nov 2009 20:00
by JonFreyr
Og þegar ég skrifa Production Date að þá er ég auðvitað að meina þessa merkingu:

Image


Vantar að vita hvort sams konar merking sé notuð á blokkina og hvort einhver munur sé á blokkum og utanáliggjandi pörtum eftir því hvenær það var framleitt.

Re: Old vs. New ?

PostPosted: Sun 22. Nov 2009 23:55
by Axel Jóhann
Það eru sömu tímareimar, ég er með prefacelift block og tíamreimasett af facelift.

Re: Old vs. New ?

PostPosted: Mon 23. Nov 2009 08:06
by JonFreyr
Ok var líka að pæla varðandi vatnsdælu en ég ætti að geta fundið það á Realoem. Þakka :)

EDIT: Það er ekki sama partnúmer á dælunum, önnur fyrir KAT en sú eldri ekki. Hins vegar sama pakkning þannig að ekki vandamál að "fitta" Kat dælu á non-Kat blokk. Fann nefnilega þetta og fannst prísinn helvíti góður :)

http://www.dynotechonline.com/store/index.php?main_page=product_info&cPath=65_73_1736&products_id=1627

Re: Old vs. New ?

PostPosted: Mon 23. Nov 2009 09:01
by Daníel
http://cgi.ebay.com/ebaymotors/BMW-E30- ... ccessories ég verslaði svona fyrir minn, er með mótor úr 86 bíl, vildi bara taka pakkann sem var ætlaður þeirri árgerð til að vera pottþéttur.

Re: Old vs. New ?

PostPosted: Mon 23. Nov 2009 10:39
by Axel Jóhann
Þetta passar allt beint á milli, ég breytti vélinni sem ég fékk úr pre facelift motronic 1.1 yfir í 1.3. Án vandræða. :)