Page 1 of 1

Hvert er best að fara til að fjarlægja swirl-flaps úr 330D?

PostPosted: Fri 13. Nov 2009 21:52
by ppp
Algjör BMW græningi hérna með smá spurningu.

Hefur einhver ykkar farið með E46 320D eða 330D á verkstæði til að láta fjarlægja swirl-flappana ógurlegu, og allt gengið vel? Ég var að kaupa einn núna og þarf eiginlega að fara demba mér í þetta á næstunni svo ég geti sofið rótt. Jafnvel þó að ég þekki nú nokkra dellukalla sem elska að fikta í vélum, þá væri lang best ef ég vissi um verkstæði eða aðila sem hefur reynslu í þessu og veit 100% hvað á að gera.

Kannski getur einhver hér stungið upp á hvert ég ætti að snúa mér til að redda þessu?

Re: Hvert er best að fara til að fjarlægja swirl-flaps úr 330D?

PostPosted: Fri 13. Nov 2009 22:13
by JonHrafn
Reif upp vélina hjá mér og skoðaði þessa swirl flappa, þetta var allt solid, sá enga ástæðu til að rífa þá úr...

Re: Hvert er best að fara til að fjarlægja swirl-flaps úr 330D?

PostPosted: Fri 13. Nov 2009 22:18
by ppp
JonHrafn wrote:Reif upp vélina hjá mér og skoðaði þessa swirl flappa, þetta var allt solid, sá enga ástæðu til að rífa þá úr...

Eflaust solid hjá mörgum, en ekki hjá þeim sem hafa svo misst þá inn í vélina þar sem þeir rústa öllu.

Málið er líka bara það að fólk virðist ekki (eftir því sem ég best veit) vera að missa neitt við að hafa þá fjarlægða, þannig að það er nú kannski bara alveg eins gott að gera það ef maður er á annað borð að opna þetta til að skoða ástandið á þeim.

Re: Hvert er best að fara til að fjarlægja swirl-flaps úr 330D?

PostPosted: Sat 14. Nov 2009 17:11
by ///MR HUNG
Það er nú ekkert stórmál að rífa þetta úr.

Re: Hvert er best að fara til að fjarlægja swirl-flaps úr 330D?

PostPosted: Sat 14. Nov 2009 22:11
by JonHrafn
///MR HUNG wrote:Það er nú ekkert stórmál að rífa þetta úr.


Fínt að nota tækifærið og þrífa EGR og soggreinina í leiðinni. Þetta er 2-3 tíma vinna max.

Re: Hvert er best að fara til að fjarlægja swirl-flaps úr 330D?

PostPosted: Sat 14. Nov 2009 22:46
by ///MR HUNG
Nota tækifærið og rífa EGR úr sambandi í leiðinni.