Page 1 of 1

Tölvubilun E36 eftir ranga pólun

PostPosted: Wed 11. Nov 2009 20:24
by Dr. Stock
Um ræðir BMW 318 ssk 1996 módel (E36) sem vinnufélagi minn á. Þætti vænt um ef menn vissu hvernig best er að leysa þetta vandamál og hvort einhverjir hér á þræðinum eigi þá hluti sem vantar, t.d umrætt relay og tölvu Vandamálið er semsagt eftirfarandi:

Fyrri eigandi umpólaði bílinn fyrir slysni og við það eyðilagðist
útvarpið og rafmagnsrúðan öðrum megin hætti að virka.
Við greiningu á verkstæði B&L fannst út að relay, staðsett bak við
hanskahólfið hefði farið, mótorinn í upphalaranum í lagi.
Þegar farið var að eiga við það fyrir mig kom í ljós að útfrá þessu
relay hafði "tölvan" sviðnað og nú er svo komið að hin bílrúðan og
samlæsing eru úr lagi.
Þannig eru vandamálin að rafmagnsrúðurnar virka ekki og einnig samlæsing.
Tel mig þess vegna þurfa þetta relay og tölvu í bílinn.

Re: Tölvubilun E36 eftir ranga pólun

PostPosted: Fri 13. Nov 2009 00:11
by Axel Jóhann
Ég á allavega vélartölvuna til í þennann ef það er M40 í honum, sú tölva getur fengist fyrir litlar 5000kr.

Re: Tölvubilun E36 eftir ranga pólun

PostPosted: Wed 09. Dec 2009 14:08
by Dr. Stock
Er nú búinn að fá frekari upplýsingar um þennan E36 með bilaða tölvu. Hann er með M43 mótor. Á einhver slíka tölvul????