Page 1 of 1

Olíuleki

PostPosted: Wed 11. Nov 2009 12:59
by Maddi..
:evil:
Lekur ennþá olía.
Búinn að taka ventlalokspakkninguna af, var svoldið blaut og innsta kertið drukknað í olíu.
Getur verið að það leki enn af því að ég gleymdi að þurrka undan henni?
Hvað annað getur þetta verið?
Þetta er það hátt uppi allavega að það lekur ofan á pústgreinina, var nokkuð viss um að þetta væri ventlalokið frekar en hva, heddið?

Re: Olíuleki

PostPosted: Wed 11. Nov 2009 13:03
by Einarsss
þrífa vel og taka stuttan hring.. ættir að sjá þá hvar er að leka ef þú skoðar þetta vandlega

Re: Olíuleki

PostPosted: Wed 11. Nov 2009 13:20
by ///M
Kaupa nýja ventlalokspakkningu :lol:

Re: Olíuleki

PostPosted: Wed 11. Nov 2009 14:29
by Maddi..
Skipti um ventlalok áður en ég setti mótorinn ofaní, fékk pakkningu með sem var ný. Hún er semsagt keyrð um 1000 km í mesta lagi þannig að hún ætti eflaust að vera í lagi. :)

Re: Olíuleki

PostPosted: Wed 11. Nov 2009 18:28
by crashed
ég losnaði aldrei við þennan bévítans olíuleka með ventlaloks pakninguni fyr en ég gafst upp og seti pakningalím allan hryngin með henni að ofan og neðan

Re: Olíuleki

PostPosted: Wed 11. Nov 2009 19:13
by Lindemann
ætti að vera í lagi ef þú herðir þetta rétt