Page 1 of 1

Spurning um HID

PostPosted: Tue 10. Nov 2009 13:56
by JohnnyBanana
já ég er að spá í að fjárfesta í svona HID kitti, en ég pæla með ísetningu. ég er með E36 með rafgeymi í skottinu, hvernig græja ég það? og þarf ég að skera einhver göt á lokin aftan á framljósunum?

Re: Spurning um HID

PostPosted: Tue 10. Nov 2009 13:59
by Aron Fridrik
þú tengir orginal ljósatengin í magnara sem fer magnar upp spennuna fyrir HID perunar..

þú þarft að gera gat á hlífarnar fyrir ljósin og þú þarft að festa magnarana..


ég gerði þetta í mínum E36 og í kittinu sem maður kaupir hjá Kidda 3000GT er þéttihringur fyrir gatið og snúrunar fara þar í gegn.. þetta er frekar simple að gera..

Re: Spurning um HID

PostPosted: Tue 10. Nov 2009 14:01
by JohnnyBanana
Aron Fridrik wrote:þú tengir orginal ljósatengin í magnara sem fer magnar upp spennuna fyrir HID perunar..

þú þarft að gera gat á hlífarnar fyrir ljósin og þú þarft að festa magnarana..


ég gerði þetta í mínum E36 og í kittinu sem maður kaupir hjá Kidda 3000GT er þéttihringur fyrir gatið og snúrunar fara þar í gegn.. þetta er frekar simple að gera..


okei flott, en hvernig er með rafgeymi? þarf þetta ekki að tengjast í hann og jörð?

Re: Spurning um HID

PostPosted: Tue 10. Nov 2009 14:08
by Aron Fridrik
nei allavegana í kittinu frá 3000GT þá tekur hann jörð og rafmagnið frá tenginu á ljósaperuna..

magnarinn tekur strauminn og hækkar spennuna en minnkar strauminn sem berst til perunar þá

Re: Spurning um HID

PostPosted: Tue 10. Nov 2009 14:17
by JohnnyBanana
okei flott, félagi minn sagði að maður þyrfti að tengja inná rafgeyminn. bull í honum greinilega.

Re: Spurning um HID

PostPosted: Tue 10. Nov 2009 14:40
by gunnar
Þetta er nær eingöngu plug and play í E36..

Finndu DIY um þetta á netinu, ég fann eitt um tengingu HID í E36 og það voru fínar myndir við það sem sýndu nákvæmlega hvað átti að gera.

Re: Spurning um HID

PostPosted: Tue 10. Nov 2009 17:23
by crashed
lítið mál að gera þetta er búinn að teingja svona við nýju ljósin mín er bara að leita mér að aðstöðu til að setja þau í bílinn hehe. eða rigningarlausum degi þarft bara borvél og 25mm bor í flestum tilfellum og fynna stað til að festa magnarann sem er svona kanski erfiðasta málið í þessu hehe

Re: Spurning um HID

PostPosted: Tue 17. Nov 2009 10:57
by Höfuðpaurinn
þetta er ekkert mál, segir sig allt saman sjálft þegar þú ert kominn með kittið í hendurnar.

ég festi nú bara spennana innan í brettin ef ég man rétt. (hef allavegana sett þá þar í 2-3 aðra bíla)

Re: Spurning um HID

PostPosted: Mon 01. Feb 2010 20:12
by JohnnyBanana
heyrðu nú er ég að installa þessu en ég er að pæla með eitt, vírarnir sem maður tengir saman í ljósinu, s.s. guli og appelsínuguli (einn sem tengist í halogen peru og einn sem tengist í jörð) hvort fer í hvað? fer appelsínugult í rautt og gult í svart?

Re: Spurning um HID

PostPosted: Tue 02. Feb 2010 10:11
by T-bone
Sá sem fer í peruna fer í rauða. Jörðin fer í svarta ;)

Re: Spurning um HID

PostPosted: Tue 02. Feb 2010 11:27
by JohnnyBanana
pacifica wrote:Sá sem fer í peruna fer í rauða. Jörðin fer í svarta ;)

já ég áttaði mig á því þegar ég byrjaði að nota kollinn.