bmwkraftur.is
https://bmwkraftur.is/spjall/

3fasa rafmagn, hvaða fasi er hvað (L1, L2, L3)
https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=7&t=40911
Page 1 of 2

Author:  Bjarki [ Mon 02. Nov 2009 09:15 ]
Post subject:  3fasa rafmagn, hvaða fasi er hvað (L1, L2, L3)

Er í smá vanda með 3fasa rafmagn, e-r sem þekkir inná þetta?

Mótor í lyftu snýst öfugt, held að það sé 2 vírum víxlað í töflunni.
Pressan virkar en hugsa að það skipti ekki máli í hvaða átt mótorinn í henni snýst.

En litirnir á fösunum sem fara inn á stóra 3 fasa öryggið og koma frá mælinum eru 1 brúnn og 2 svartir. Er hægt að mæla upp fasana eða er augljost hverju þarf að víxla.

Í litla öryggið svona nýtt 3falt öryggi 16amper fara út
2 í L1 í tenglinum á veggnum
4 í L2 í tenglinum á veggnum
6 í L3 í tenglinum á veggnum

Vantar semsagt að vita hvernig ég get fundið út hvaða vír úr töflunni fer í 1, 3 og 5 svo þetta sé rétt.

Author:  T-bone [ Mon 02. Nov 2009 10:14 ]
Post subject:  Re: 3fasa rafmagn, hvaða fasi er hvað (L1, L2, L3)

prófaðu að víxla svörtu vírunum.

Author:  Stebbtronic [ Mon 02. Nov 2009 10:26 ]
Post subject:  Re: 3fasa rafmagn, hvaða fasi er hvað (L1, L2, L3)

Til að víxla snúningsátt á 3-fasa mótor er nóg að víxla einhverjum tveim fösum inná hann, stattu bara klár á því að fikta ekkert í jörðinni ef hún er til staðar þeas. Ef þú ætlaðir að mæla upp rétta fasaröð þyrftirðu sveiflusjá til þess að geta áttað þig á tímahorninu á milli þeirra. Víxlaðu bara einhverjum tveim fösum inná mótor og þá ættirðu að vera góður

Author:  JonHrafn [ Mon 02. Nov 2009 12:25 ]
Post subject:  Re: 3fasa rafmagn, hvaða fasi er hvað (L1, L2, L3)

Ekki einhverjum vírum. Víxla svörtu til að breyta snúningsátt.

Author:  jens [ Mon 02. Nov 2009 13:42 ]
Post subject:  Re: 3fasa rafmagn, hvaða fasi er hvað (L1, L2, L3)

JonHrafn:

Quote:
Ekki einhverjum vírum. Víxla svörtu til að breyta snúningsátt.



Viltu útskýra þetta eitthvað ?

Author:  ///M [ Mon 02. Nov 2009 13:50 ]
Post subject:  Re: 3fasa rafmagn, hvaða fasi er hvað (L1, L2, L3)

jens wrote:
JonHrafn:

Quote:
Ekki einhverjum vírum. Víxla svörtu til að breyta snúningsátt.



Viltu útskýra þetta eitthvað ?


Hann er væntanlega að meina að brúni sé jörð og myndi því svissun á svörtum og brúnum ekki gera neinum gott.

Author:  jens [ Mon 02. Nov 2009 15:39 ]
Post subject:  Re: 3fasa rafmagn, hvaða fasi er hvað (L1, L2, L3)

Brúnn er ekki jörð.

Víxlaðu þeim sem þér líkar best af þessum þremur og farðu varlega.

Author:  ///M [ Mon 02. Nov 2009 15:42 ]
Post subject:  Re: 3fasa rafmagn, hvaða fasi er hvað (L1, L2, L3)

jens wrote:
Brúnn er ekki jörð.

Víxlaðu þeim sem þér líkar best af þessum þremur og farðu varlega.


Ef þú ert með tvo svarta víra og einn brúnan er nú helvíti liklegt að brúnn sé jörð er það ekki...

Author:  FrikkiGaur [ Mon 02. Nov 2009 16:19 ]
Post subject:  Re: 3fasa rafmagn, hvaða fasi er hvað (L1, L2, L3)

gul/grænn er jörð nema þetta sé e-h fúsk.. , blár er "núl" , svartur,brúnn,svartur eru fasar
nema þetta sé e-h fúsk eins og ég segi.
ég myndi víxla bara í tenglinum, og eyga sem minnst við töfluna.
og muna að slá út og mæla hvort það sé nokkuð spenna á tenglinum áður en þú byrjað að gera e-h...
400V og 16A er alveg helling af afli.. og mjög sárt :lol:

kveðja..

Author:  ///M [ Mon 02. Nov 2009 16:32 ]
Post subject:  Re: 3fasa rafmagn, hvaða fasi er hvað (L1, L2, L3)

Gott að ég sé ekki rafvirki :lol:

Author:  Alpina [ Mon 02. Nov 2009 17:24 ]
Post subject:  Re: 3fasa rafmagn, hvaða fasi er hvað (L1, L2, L3)

///M wrote:
Gott að ég sé ekki rafvirki :lol:


þú ert eflaust að ruglast við bílarafmagn,,

jörð er ALLTAF gulgræn í húsastraumi

Author:  JonHrafn [ Mon 02. Nov 2009 18:58 ]
Post subject:  Re: 3fasa rafmagn, hvaða fasi er hvað (L1, L2, L3)

Brúnu og svörtu eru kraftar. Síðan er blár mínus og gulgrænn jörð. I think :lol:

Auðvitað er eina vitið að breyta vírum í tengli/kló , ekki í töflunni nema menn séu þeim mun kunnugri rafmagni.

Sem dæmi þá er maður að stelast til að búa til millistykki sem breytir úr 3gja fasa tengli í 1 fasa fyrir ljóskastara, til að nýta flutningsgetu víranna í 3gja fasa kaplinum. Þá tengir maður í L1 ,, síðan mínus og jörð. Sleppir L2 og L3

Author:  jens [ Mon 02. Nov 2009 21:16 ]
Post subject:  Re: 3fasa rafmagn, hvaða fasi er hvað (L1, L2, L3)

Fáðu bara fagmann í verkið og talaðu við Frikka :thup:

Author:  FrikkiGaur [ Tue 03. Nov 2009 20:27 ]
Post subject:  Re: 3fasa rafmagn, hvaða fasi er hvað (L1, L2, L3)

gohhh þakka hrósið jens.. :thup: heheh :lol: =P ,

Author:  Bjarki [ Tue 03. Nov 2009 23:51 ]
Post subject:  Re: 3fasa rafmagn, hvaða fasi er hvað (L1, L2, L3)

Þakka frábærar ráðleggingar, það virkaði að víxla 2vírum og allt komið í lag.
Tengdi svo annan 3fasa tengil í töfluna.....þetta eru nú engin geimvísindi :idea:
En afgreiðslumaðurinn í Húsasmiðjunni missti málið þegar ég var að biðja um hluti sem ég vissi ekki hvað heita og sagðist svo vera netrafvirki!!

Page 1 of 2 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/