bmwkraftur.is

BMWKraftur spjallborð
It is currently Sun 22. Jun 2025 03:30

All times are UTC




Post new topic Reply to topic  [ 2 posts ] 
Author Message
PostPosted: Sun 01. Nov 2009 01:58 
Offline
Go-kartbílstjóri
User avatar

Joined: Wed 16. Feb 2005 23:49
Posts: 446
Ég er loksins farinn að vinna að því að koma 535iA E34 (M30B35 vél) bimmanum í götuhæft ástand.
Fyrir þá sem ekki vita þá brotnuðu tveir rocker armar hjá mér fyrir nokkuð löngum tíma síðan og bíllinn er búinn að vera ónothæfur auðsjáanlega síðan þá.

Allavega, þetta er auðvitað eitthvað sem mig langar ekkert að gerist aftur, semsagt að það brotni rocker armur því til að skipta um rocker arm í M30 heddi þarf að taka heddið af, taka knastásinn í burtu og svo nærðu öxlunum sem rocker armarnir er á úr og þannig nærðu að skipta, semsagt dálítið vesen og kosnaðarsamt.

Þannig að ég pantaði mér svona Rocker Arm Locks sett. Þetta á að koma í staðin fyrir orginal gormana sem halda rocker örmunum. (sjá myndir fyrir neðan)

Málið er að ég fékk engar leiðbeiningar með, og var kannski ekkert að æsa mig yfir þessu því þetta sýndist dálítið straight forward, en núna þegar loksins á að fara setja þetta í þá koma allskonar spurning upp í kollinn eins og:
* Þarf að passa sig á einhverju sérstaklega þegar þetta er sett í heddið?
* Hversu fast eiga skrúfurnar í þessum klemmulásunum að vera?
* Á ekki örugglega hliðin með rákinni að vera upp að rocker arminum?
* Þarf að passa uppá að þetta sé eitthvað sérstaklega þétt upp að rocker arminum?
* Þarfnast þetta einhvers viðhalds, eins og t.d. þarf að herða á skrúfunum í þessu með einhverju millibili, t.d. 10.000, 20.000 km fresti eða álíka?
* Er eitthvað annað sem þarf að hafa í huga?

Veit alveg að menn eru yfirleitt ekki að setja þetta í fyrr en þeir eru farnir að turbovæða eitthvað sæmilega og það er ekkert svoleiðis í gangi hjá mér núna.
Eina sem er kannski "í gangi" hjá mér er að ég ætla að skipta um pústið, það fer bara venjulegur endakútur í hann en miðjukútur og hvarfakútur verða teknir úr. Svo á ég tölvukubb sem á að gefa mér nokkur hross, það er allt of sumt. Fyrir utan svo að ég ætla láta skipta um olíu á sjálfskiptu og drifi, ný tímakeðja og allar reimar nýjar og fleyra í þeim dúr.

Þannig að ef einhver hefur einhverja reynslu af því að nota þetta, þekkir eitthvað inn á þetta eða veit e-mail hjá einhverjum erlendir eða jafnvel hérlendis, þigg allar upplýsingar.
Ég er þegar búinn að senda þeim sem ég keypti settið af e-mail og fleiri aðilum sem eru með þetta í sölu en gerði það bara á fimmtudaginn var þannig ég er ekki búinn að fá neitt svar ennþá. Var nefnilega að vonast eftir því að geta farið með heddið í viðgerð helst í næstu viku.
Ég er búinn að vera leita á netinu en finn ekkert nema síður sem selja þetta eða bara tala um þetta, vantar installation manual.

Notabene, ég tók ekki þessar myndir, stal þeim af netinu.
Tvær efri myndirnar sýna þessar læsingarklemmur og hvernig þetta á að vera í heddinu.
Á miðmyndina vantar olíubarinn og plöturnar sem halda henni.
Neðsta myndin sýnir bara venjulegt M30 hedd með orginal gormum í.

Image

Image

Image

_________________
Sverrir Már

Fyrri BMW: BMW 518i E34 ´91 / BMW 735iA E32 ´92 / BMW 535iA E34 ´89 / BMW 318iA E36 ´93



Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Sun 01. Nov 2009 02:47 
Offline
Getawaybílstjóri

Joined: Mon 03. Nov 2003 18:40
Posts: 925
Location: @ the spot...
Image

Svona gerði ég þetta allavega, s.s hafði bæði gormana og lásana uppá double safety ef að einhver boltanna á lásnum skyldi losna, en eins og sést á myndinni þá verða gormarnir næstum alveg samanpressaðir soghliðar-megin. Raufin á að snúa að rocker-arminum, en eins og ég gerði þetta þá lét ég bara gorminn þrýsta lásnum að arminum og herti, prufaði svo að hreyfa armana og það var ekki að finna neitt viðnám í þeim, vögguðu eðlilega við minnstu snertingu.

_________________
e21 315 "83"


Top
 Profile  
Reply with quote  
Display posts from previous:  Sort by  
Post new topic Reply to topic  [ 2 posts ] 

All times are UTC


Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 9 guests


You cannot post new topics in this forum
You cannot reply to topics in this forum
You cannot edit your posts in this forum
You cannot delete your posts in this forum

Search for:
Jump to:  
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group