bmwkraftur.is
https://bmwkraftur.is/spjall/

Vélarkok !
https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=7&t=40805
Page 1 of 1

Author:  DoriSig [ Wed 28. Oct 2009 15:20 ]
Post subject:  Vélarkok !

Heilir og Sælir,

Hvað málið varðar : Vélar kok í M50

Ég keypti bílinn og þá var hann að koka, eins og þá stóð á var eins og þetta væri aðeins á einu cylender og menn héldu að þetta væru háspennukeflin/kerti.
Svo einhvernveginn hættu hann þessu í lok ágúst en byrjaði svo aftur.. og þá fór ég að pæla mikið í þessu.
Ég fékk háspennukefli hjá félaga mínum sem á M50 sem var í toppstandi. Við skiptum fyrst um öll, og þetta var eins og að keyra nýjan bíl, bara datt ekki í hug að krafturinn væri svona mikill. Síðan tókum við bara eitt og eitt úr skiptum yfir í gömlu hægt or rólega.. tókum alltaf run eftir hvert skipti. Svo fundum við út hvaða kefli þetta var, leit út fyrir að þetta hafi bara verið eitt.. þannig að ég keypti 4 (notuð reyndar) og svissaði þeim líklegustu.. og bílinn varð aftur eins og nýr og hélt sér þannig alveg í viku eða svo. Svo byrjaði þetta að koma alltaf smá saman aftur.. fyrst bara lítið sem maður fann ekki fyrir en núna er þetta orðið svakalega mikið kok.
Þá kom hugmyndin um að þetta væri kannski jörðin ( vírinn frá rafgeyminum í boddýið.. hann var orðinn morkinn og ógeðslegur) þannig að ég keypti nýjann... og það lagaði kokið þetta run sem ég tók.. svo á leiðinni heim í Mosó þá byrjaði þetta aftur .. og nú er ég algjörlega lost í þessum málum...

Hvað er í gangi, hvað getur þetta verið ?? ...


Með fyrirfram þökk,
DóriSig

Author:  gstuning [ Wed 28. Oct 2009 15:30 ]
Post subject:  Re: Vélarkok !

vacuum leki.

Author:  DoriSig [ Wed 28. Oct 2009 15:48 ]
Post subject:  Re: Vélarkok !

Hmm .. ok. Ætla fara niður í bílskúr og checka á þessu .. og taka nokkrar myndir.

Author:  Maddi.. [ Wed 28. Oct 2009 21:42 ]
Post subject:  Re: Vélarkok !

Jább, tékkaðu á því.
Háspennukeflin og kertin eru í fínu lagi hjá mér, en er með þetta vélarkok og veit um vacuum leka.
Nokkuð viss um að það er það sem er að bögga.

Page 1 of 1 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/