bmwkraftur.is
https://bmwkraftur.is/spjall/

Undarlegt atriði með ljósasystem í e36 compact (áframhald)
https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=7&t=40648
Page 1 of 2

Author:  Maggi B [ Tue 20. Oct 2009 17:31 ]
Post subject:  Undarlegt atriði með ljósasystem í e36 compact (áframhald)

Ætla að reyna að útskýra þetta eins vel og ég get.

Þegar ég set rofann á parkljós þá loga öll parkljós og mælaborðsljós eins og eðlilegt er, en þegar ég set rofann á aðalljós þá sloknar á hægra afturljósinu og mælaborðsljósunum líka en aðalljósin loga samt eðlilega, hafa menn einhvað lent í þessu eða heyrt um þetta. mér dettur bara ekki baun í hug. og það var ekki átt við ljósaloom þegar swappið var gert, einungis vélarlúm, er búinn að fá það staðfest

endilega baunið á mig hugmyndum

Author:  300+ [ Tue 20. Oct 2009 19:13 ]
Post subject:  Re: Undarlegt atriði með ljósasystem í e36 compact

Gæti verið ágætis byrjun að prufa að svissa út ljósarofanum fyrir annan sem þú veist að er í lagi.
Ef aðalljósin eru á, virka þá bremsu,stefnu og bakkljós eðlilega þeim megin sem ljósið hverfur að aftan?

Author:  Maggi B [ Tue 20. Oct 2009 20:07 ]
Post subject:  Re: Undarlegt atriði með ljósasystem í e36 compact

það dettur allveg út sýnist mér. en það er talsvert bras að skipta út rofanum þar sem ég þarf að taka úr honum airbagið stýrið og svo mælaborðið því að takkinn er vinstra megin við mælaborðið í compact. en worth the shot

Author:  300+ [ Tue 20. Oct 2009 20:35 ]
Post subject:  Re: Undarlegt atriði með ljósasystem í e36 compact

lethal323 wrote:
það dettur allveg út sýnist mér. en það er talsvert bras að skipta út rofanum þar sem ég þarf að taka úr honum airbagið stýrið og svo mælaborðið því að takkinn er vinstra megin við mælaborðið í compact. en worth the shot

Nú held ég að þú sért að malbika félagi... :?

Image
Ljósarofinn er þessi vinstra megin við mælaborðið, right?

Þá er skv realoem bara að skrúfa takkann á endanum af og smella plastinu(4) í burtu og þá ertu kominn að ljósarofanum(7)
Image

En ef að öll ljós detta út þegar þú kveikir á aðalljósunum þá grunar mig að þú sért að díla við lélegt jarðsamband frekar en ljósarofann sjálfan.

Author:  Maggi B [ Wed 21. Oct 2009 00:21 ]
Post subject:  Re: Undarlegt atriði með ljósasystem í e36 compact

Með miklu brasi náðum við að ljúga þennan rofa úr, þetta virðist ekki vera hann, en semsagt þegar kveikt er allveg á ljósunum þá dettur út mælaborðsljósin og hægra parkljósið að framan og aftan. mjög sérstagt.

en þú segir lélegt jarðsamband, er hægt að finna einhverjar upplýsingar um hvar er náð í jörð fyrir þetta

Author:  ///M [ Wed 21. Oct 2009 00:24 ]

Prufaðir sem sagt annan rofa með sömu niðurstöðu?

Author:  T-bone [ Wed 21. Oct 2009 13:34 ]
Post subject:  Re: Undarlegt atriði með ljósasystem í e36 compact

Getur þetta ekki bara verið ónýtt relay?

Author:  Maggi B [ Wed 21. Oct 2009 19:41 ]
Post subject:  Re: Undarlegt atriði með ljósasystem í e36 compact

Já ég prufaði rofa sem er í lagi og það breytti engu, en það eru engar upplýsingar í bílnum um hvaða relay eru hvað, hvar finn ég upplýsingar um það og jafnvel rafmagnsteikningu ?

Author:  Steini B [ Wed 21. Oct 2009 19:45 ]
Post subject:  Re: Undarlegt atriði með ljósasystem í e36 compact

http://www.bmwe36blog.com/2008/02/12/bm ... ay-layout/ :wink:

Author:  Maggi B [ Thu 22. Oct 2009 01:01 ]
Post subject:  Re: Undarlegt atriði með ljósasystem í e36 compact

Ok þá get ég allavega testað relayin

Author:  Maggi B [ Fri 23. Oct 2009 02:05 ]
Post subject:  Re: Undarlegt atriði með ljósasystem í e36 compact

dettur einhverjum önnur hugmynd í hug. eða einhver sem hefur lent í svipuðu máli. þetta er að verða þreytt

Author:  300+ [ Fri 23. Oct 2009 09:49 ]
Post subject:  Re: Undarlegt atriði með ljósasystem í e36 compact

lethal323 wrote:
dettur einhverjum önnur hugmynd í hug. eða einhver sem hefur lent í svipuðu máli. þetta er að verða þreytt

Kannski getur einhver sem er með aðgang að þessari síðu náð í þessar rafmagnsteikningar sem eru á þessari síðu:

http://www.bimmerforums.co.uk/forum/f9/ ... ed-t26854/

þegar þú ert kominn með þær þá finnurðu hvar jarðtengingarnar eru fyrir afturljósin og tékkar á þeim, það er mjög líklega örsökin fyrst að öll ljósin eru í pickles bara öðru megin að aftan.

Author:  Maggi B [ Fri 23. Oct 2009 11:49 ]
Post subject:  Re: Undarlegt atriði með ljósasystem í e36 compact

Málið er að það dettur út parkið hægra megin að framan líka

Author:  Stebbtronic [ Fri 23. Oct 2009 20:36 ]
Post subject:  Re: Undarlegt atriði með ljósasystem í e36 compact

Kíktu á tvær jarðtengingar sem eru staðsettar ofarlega á vinstri hjólaskál að aftan(í skottinu), þarft kannski að rífa smá klæðningu í burtu til að komast að þessu, ef það er spansgræna á þessu að pússa skinnurnar og boltana upp með sandpappír. Ef það virkar ekki kíktu þá á aðra jörð sem er rétt fyrir innan vinstra framljós. Vonandi gerir þetta eitthvað :)

Author:  Maggi B [ Sat 24. Oct 2009 08:35 ]
Post subject:  Re: Undarlegt atriði með ljósasystem í e36 compact

Stebbtronic wrote:
Kíktu á tvær jarðtengingar sem eru staðsettar ofarlega á vinstri hjólaskál að aftan(í skottinu), þarft kannski að rífa smá klæðningu í burtu til að komast að þessu, ef það er spansgræna á þessu að pússa skinnurnar og boltana upp með sandpappír. Ef það virkar ekki kíktu þá á aðra jörð sem er rétt fyrir innan vinstra framljós. Vonandi gerir þetta eitthvað :)

takk fyrir þetta ég fer í þetta

Page 1 of 2 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/