Page 1 of 1
Strut vesen

Posted:
Sun 18. Oct 2009 17:13
by sosupabbi
Var að losa strutin undan áðan til að skipta um dempara, og lenti í því að brjóta þennan félaga
Sjá mynd:

Hvað geri ég í þessu? bara bora boltan út og snitta nýja gengju fyrir nýan bolta eða eruði með einhver leyni trikk á þetta?
Re: Strut vesen

Posted:
Sun 18. Oct 2009 17:58
by Aron Fridrik
reddaðu þér öfugugga setti.. þá boraru bara í hann og neglir öfugugganum og snýrð boltanum úr... þarft kannski að hita ef boltinn er alveg fastur..
Re: Strut vesen

Posted:
Sun 18. Oct 2009 19:06
by sosupabbi
náði að snúa honum aðeins, brakaði samt vel í honum þessa nokkru snúninga áður en hausinn fór af
Re: Strut vesen

Posted:
Sun 18. Oct 2009 20:05
by maxel
Hvað kemur í þarna á bakvið?
Re: Strut vesen

Posted:
Sun 18. Oct 2009 21:55
by Gísli Camaro
er þetta ekki gegnumgangandi bolti?. taktu bara stórt úrrek og stórann slaghamar og dúndraðu þessu úr. farðu svo í byko-fossberg-húsasmiðjuna-isól og keyptu bolta í sömu stærð
Re: Strut vesen

Posted:
Sun 18. Oct 2009 22:05
by SævarSig
Ef hann er ekki gegnumgangadi, þá gætiru líka reynt að sjóða ró á boltann og ná honum svoleiðis úr ef þú hefur aðgang/kunnáttu á svoleiðis græju. Hafðu rónna bara nógu stóra.
Re: Strut vesen

Posted:
Sun 18. Oct 2009 23:35
by sosupabbi
Það er skrúfgangur á endanum á honum, er með aðgang að svoleiðis græju og hef reynt að sjóða bolta annan sem var með ónýtan haus...það gekk voðalega illa.
Re: Strut vesen

Posted:
Sun 18. Oct 2009 23:36
by sosupabbi
maxel wrote:Hvað kemur í þarna á bakvið?
Boltinn gengur bara þarna í gegn og í spyrnuna eða hvað þetta heitir og er skrúfangur hinumegin á boltanum.
Re: Strut vesen

Posted:
Sun 18. Oct 2009 23:53
by maxel

Er þetta ekki boltinn sem klemmir struttinn?
Re: Strut vesen

Posted:
Mon 19. Oct 2009 00:06
by sosupabbi
maxel wrote:
Er þetta ekki boltinn sem klemmir struttinn?
Jú, það er hann
Re: Strut vesen

Posted:
Mon 19. Oct 2009 00:13
by maxel
Mér dettur bara í hug öfuguggi
Re: Strut vesen

Posted:
Mon 19. Oct 2009 00:13
by sosupabbi
maxel wrote:Mér dettur bara í hug öfuguggi
já geturu ekki lagað þetta fyrir mig?
Re: Strut vesen

Posted:
Mon 19. Oct 2009 00:24
by maxel
Ertu með suðu?
Væri hægt að setja skinnu utan um boltann, sjóða hann síðan við, sjóða síðan ró á þetta.
Drekkja þessu í WD-40 og hamarshöggum og prófa að taka á þessu.
Re: Strut vesen

Posted:
Mon 19. Oct 2009 14:49
by sosupabbi
maxel wrote:Ertu með suðu?
Væri hægt að setja skinnu utan um boltann, sjóða hann síðan við, sjóða síðan ró á þetta.
Drekkja þessu í WD-40 og hamarshöggum og prófa að taka á þessu.
jam er með suðu, hef einu sinni hætt mér í svoleiðis æfingar og komst að því að það er ekki fyrir mig
