Page 1 of 1

soðin drif

PostPosted: Sat 17. Oct 2009 19:33
by gunnar695
eg er að spá hvernig er að vera með soðið drif á bil sem maður notar daglega verður það ekki svoldið þreytt?? og hvernig er að vera með soðið drif yfir vetur er það ekki bara hættulegt

Re: soðin drif

PostPosted: Sat 17. Oct 2009 20:16
by Stebbtronic
Maður fer allavega lengra á soðnu drifi heldur en opnu drifi í snjó, aðal lastið við að vera með soðið drif eru krappar beygjur á litlum hraða t.d leggja í stæði ofl

Re: soðin drif

PostPosted: Sat 17. Oct 2009 20:44
by Mazi!
Soðið drif er stórhættulegt í snjó / hálku! :?


svo myndi ég sjaldan sjóða drif nema í einhverri druslu.

Re: soðin drif

PostPosted: Sat 17. Oct 2009 23:05
by HK RACING
Mazi! wrote:Soðið drif er stórhættulegt í snjó / hálku! :?


svo myndi ég sjaldan sjóða drif nema í einhverri druslu.

Nú...Af hverju?

Re: soðin drif

PostPosted: Sun 18. Oct 2009 13:51
by Birgir Sig
HK RACING wrote:
Mazi! wrote:Soðið drif er stórhættulegt í snjó / hálku! :?


svo myndi ég sjaldan sjóða drif nema í einhverri druslu.

Nú...Af hverju?



þu nærð ekkert að beygja í hálku á soðnu drifi, og svo er það hundleiðinlegt að vera með þetta á bíl sem er notaður daglega,

Re: soðin drif

PostPosted: Sun 18. Oct 2009 13:54
by gstuning
Ef maður á heima í bílastæði og keyrir bara um í bílastæða húsi þá er þetta frekar pirrandi.

Enn það eru óteljandi manns hérna með driftbíla og allt soðið pikkfast og kvarta ekki, ég hef setið í nokkrum og þetta hefur ekki verið neitt vesen.

Re: soðin drif

PostPosted: Sun 18. Oct 2009 19:36
by Alpina
gstuning wrote:Ef maður á heima í bílastæði og keyrir bara um í bílastæða húsi þá er þetta frekar pirrandi.

Enn það eru óteljandi manns hérna með driftbíla og allt soðið pikkfast og kvarta ekki, ég hef setið í nokkrum og þetta hefur ekki verið neitt vesen.


En ég held samt að í hálku og slíku gæti þetta hreinega verið óheppilegt,,

t.d. slá af í beygju.. og bíllinn gæti leytast við að snúast

Re: soðin drif

PostPosted: Sun 18. Oct 2009 21:11
by HK RACING
Já þetta var að há mér alvega svakalega á svörtu Compct druslunni minni :roll:

Re: soðin drif

PostPosted: Sun 18. Oct 2009 23:37
by Aron540
núna er ég með læst drif úr m5 í bílnum hjá mér (e39) og er það þá bara eins og soðið drif, þarf maður að vera extra-extra gætin í hálku ?

Re: soðin drif

PostPosted: Mon 19. Oct 2009 00:30
by ingo_GT
Aron540 wrote:núna er ég með læst drif úr m5 í bílnum hjá mér (e39) og er það þá bara eins og soðið drif, þarf maður að vera extra-extra gætin í hálku ?


Soðið drif er 100% læst drif það er ekki eins og venjulegt læst drif.

Re: soðin drif

PostPosted: Mon 19. Oct 2009 00:31
by birkire
Aron540 wrote:núna er ég með læst drif úr m5 í bílnum hjá mér (e39) og er það þá bara eins og soðið drif, þarf maður að vera extra-extra gætin í hálku ?


soðin drif láta afturhjólin snúast á sama hraða.. alvöru læsing eins og þínu drifi leyfir mismun á snúningum hjólanna svo þetta er ekki líkt

Re: soðin drif

PostPosted: Mon 19. Oct 2009 00:54
by Stebbtronic
birkire wrote:
Aron540 wrote:núna er ég með læst drif úr m5 í bílnum hjá mér (e39) og er það þá bara eins og soðið drif, þarf maður að vera extra-extra gætin í hálku ?


soðin drif láta afturhjólin snúast á sama hraða.. alvöru læsing eins og þínu drifi leyfir mismun á snúningum hjólanna svo þetta er ekki líkt


Þetta er alveg rétt, en drif með diska eða tregðulæsingu þurfa gott veggrip til þess að læsingin leyfi mismun(slip) á milli hljóla. Þegar keyrt er í snjó eða gler-hálku er þetta grip oft ekki til staðar og þá hegðar diska/tregðulæsingin sér alveg eins og soðið drif.

Re: soðin drif

PostPosted: Mon 19. Oct 2009 12:59
by gunnar695
takk fyrir öll svörin en ef einhver veit um litla drifið úr e36 þá má hann láta mig vita :D

Re: soðin drif

PostPosted: Thu 22. Oct 2009 00:10
by HK RACING
birgir_sig wrote:
HK RACING wrote:
Mazi! wrote:Soðið drif er stórhættulegt í snjó / hálku! :?


svo myndi ég sjaldan sjóða drif nema í einhverri druslu.

Nú...Af hverju?



þu nærð ekkert að beygja í hálku á soðnu drifi, og svo er það hundleiðinlegt að vera með þetta á bíl sem er notaður daglega,
Það fór rosalega eftir dekkjum hversu mikið ég fann fyrir þessu....Hann var miklu skárri á 16" dekkjunum sem ég notaði í driftið heldur en 17" dekkjunum sem voru undir honum,fann mjög lítið fyrir þessu á 16 tommunni nema í vinkilbeygjum á litlum hraða,En Birgir það skýrir ekki af hverju það er bara hægt að gera þetta á druslu....

Re: soðin drif

PostPosted: Thu 22. Oct 2009 10:30
by gardara
Læst drif er amk awesome í snjó! :thup: