Page 1 of 2
m50b25 gengur illa

Posted:
Sat 10. Oct 2009 17:39
by ellipjakkur
sælir
ég er s.s. með bmw 325 sem er með m50b25 mótor og hann er farinn að taka upp á því að koka allsvakalega i kringum 2 þús rpm og á það til að drepa á sér
þegar ég læt hann ganga lausagang fer hann voðalega upp og niður á snúning eða drepur á sér
eitthver sem þekkir þetta hér ?
Re: m50b25 gengur illa

Posted:
Sat 10. Oct 2009 17:44
by Saxi
Fyrst af öllu að athuga hvort hann dragi loft einhversstaðar. Ansi algengt að rifur séu í stóru hosunni milli loftflæðiskynjara og inngjafarspjalds.
Tékkaðu líka á því hvort hann gangi á öllum. Gerir það með því að aftengja eitt og eitt háspennukefli í einu og hlusta eftir breytingum í gangi. Breytist gangurinn ekki er nokkuð ljóst að bíllilnn gengur ekki á þeim stimpli.
kv.
Re: m50b25 gengur illa

Posted:
Sat 10. Oct 2009 22:36
by ellipjakkur
gæti verið líka að heddpakkninginn sé farin ?
það kemur bara kalt loft úr miðstöðinni og nú er bíllinn farinn að ganga á 2 þús snúningum í lausagangi og drepur sífellt á sér
Re: m50b25 gengur illa

Posted:
Sun 11. Oct 2009 01:39
by SævarSig
ellipjakkur wrote:gæti verið líka að heddpakkninginn sé farin ?
það kemur bara kalt loft úr miðstöðinni og nú er bíllinn farinn að ganga á 2 þús snúningum í lausagangi og drepur sífellt á sér
Þarf ekki að vera, gæti bara verið að það hafi soðið á honum og komist loft tappi inn á kerfið, hann hefur ekkert verið að hita sig er það?
En annars er þvílíkt vandamál með þessar vélar að það verði að lofttæma þær rosalega vel, En í sambandi við ganginn, skyldi ég athuga allar hosur hvort hann væri nokkuð að draga falst loft, og skoðaðu hosuna sem kemur frá hægagangsmótor upp í olboga hosuna inn á throttle body.
Re: m50b25 gengur illa

Posted:
Sun 11. Oct 2009 18:19
by gardara
Gæti verið ónýtur maf
Re: m50b25 gengur illa

Posted:
Sun 11. Oct 2009 21:42
by ellipjakkur
hvað er maf ?
er mjög viss um að hann dragi ekki falskt loft
núna neitar bíllinn algerlega að fara í gang
Re: m50b25 gengur illa

Posted:
Sun 11. Oct 2009 21:54
by Zed III
maf er loftflæðimælirinn. Hann á það til að skapa ógang ef hann bilar og menn testa það með því að kippa honum úr sambandi sem þvingar tölvuna til að taka default gildi sem eiga að bæta ganginn.
Ólíklegt þó að það sé hann ef bíllinn fer ekki í gang. Er bíllinn að missa vatn af kælikerfinu ?
Re: m50b25 gengur illa

Posted:
Sun 11. Oct 2009 23:24
by 300+
Ertu búinn að ath olíuna á vélinni? mig grunar að þú sért með rjóma(olía+kælivatn) í staðinn fyrir olíu = heddpakkning eða sprungið hedd.
Re: m50b25 gengur illa

Posted:
Mon 12. Oct 2009 18:24
by Axel Jóhann
300+ wrote:Ertu búinn að ath olíuna á vélinni? mig grunar að þú sért með rjóma(olía+kælivatn) í staðinn fyrir olíu = heddpakkning eða sprungið hedd.
Samanber þessi mynd, af þú sérð svona jukk undir ventlalokinu hjá þér þá ertu screwed.

Re: m50b25 gengur illa

Posted:
Mon 12. Oct 2009 19:04
by ellipjakkur
ég kíkti á olíukvarðann og enginn rjómi þar á ferð
bara hrein og fín olía
hvar er regulatorinn staðsettur i þessum bílum ?
gæti þetta verið hann eða háspennukeflin ?
Re: m50b25 gengur illa

Posted:
Mon 12. Oct 2009 19:05
by Axel Jóhann
ellipjakkur wrote:ég kíkti á olíukvarðann og enginn rjómi þar á ferð
bara hrein og fín olía
hvar er regulatorinn staðsettur i þessum bílum ?
gæti þetta verið hann eða háspennukeflin ?
Prófaðu að kippa ventlalokinu af. Eða olíutappa.
Re: m50b25 gengur illa

Posted:
Mon 12. Oct 2009 19:07
by arnibjorn
Mmmmm mig langar í karamellu jógúrt.
Re: m50b25 gengur illa

Posted:
Mon 12. Oct 2009 19:16
by ellipjakkur
ég reyndar var að skipta um olíu á honum núna á föstudaginn og það var enginn rjómi í olíunni þá hef ekki keyrt meira en 100-200 km síðan þá
en bíllinn dettur einstöku sinnum i gang en gengur ekki lengur en eina mínútu og þá drepst á honum
Re: m50b25 gengur illa

Posted:
Mon 12. Oct 2009 21:10
by Axel Jóhann
ellipjakkur wrote:ég reyndar var að skipta um olíu á honum núna á föstudaginn og það var enginn rjómi í olíunni þá hef ekki keyrt meira en 100-200 km síðan þá
en bíllinn dettur einstöku sinnum i gang en gengur ekki lengur en eina mínútu og þá drepst á honum
Þó svo olían sé eðlileg að sjá þá getur samt verið drulla ofaní heddinu, kipptu ventlalokinu af, það skaðar varla.
Re: m50b25 gengur illa

Posted:
Mon 12. Oct 2009 21:28
by ellipjakkur
já,, ég bara nenni því ekki úti í skítaveðrinu