bmwkraftur.is
https://bmwkraftur.is/spjall/

E38 Miðstöð
https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=7&t=40364
Page 1 of 1

Author:  sosupabbi [ Wed 07. Oct 2009 19:56 ]
Post subject:  E38 Miðstöð

Miðstöðin í bílnum mínum hefur verið biluð síðan ég keypti hann í sumar en það fór fyrst að fara í taugarnar á mér þegar það byrjaði að frysta, það lýsir sér þannig að hún hleypir bara lofti í gegn og hitar sig alveg en hún blæs ekki.
Ég hélt það væri mótorinn en ég keypti nýjan og setti í og ekkert gerðist, prufaði líka að beintengja gamla við rafmagn og hann flaug í gang en þrátt fyrir það að hann sé í lagi fer hann ekki í gang þegar hann er tengdur við bílinn. Líka búinn að skipta um mótstöðuna og takkaborðið virkar, amk færir það lokurnar undir mælaborðinu.
Þannig núna er ég með E38 með ekkert mælaborð og bilaða miðstöð og spáð stormi næstu þrjá daga svo allar upplýsingar væru vel þegnar, kanski gott að taka fram að þetta er 96' 740 með tvískiptri aircondition miðstöð.

mbk. Markús

Author:  sosupabbi [ Thu 08. Oct 2009 11:55 ]
Post subject:  Re: E38 Miðstöð

Öll ráð vel þeginn, hitastigið úti er ekki beint að kvetja mann út í bíltúr.

Author:  sosupabbi [ Thu 08. Oct 2009 13:50 ]
Post subject:  Re: E38 Miðstöð

komið í lag :thup:

Author:  Einarsss [ Thu 08. Oct 2009 13:59 ]
Post subject:  Re: E38 Miðstöð

væri fínt að fá lýsingu á hvað málið var .. svo einhver geti nýtt sér það ef hann lendir í sömu vandræðum

Author:  sosupabbi [ Fri 09. Oct 2009 00:06 ]
Post subject:  Re: E38 Miðstöð

já semsagt fyrrv eigandi hafði e-h reynt að laga þetta og tekið rafmagnsplugið fyrir mótorinn úr sambandi á miðri leið svo auðvitað fekk mótorinn ekkert rafmagn en það var mótstaðan sem var farinn og ég fékk fáránlega góðar leiðbeiningar um aðgerðina á: http://www.bimmerboard.com/forums/posts/45351 , annars er www.e38.org drekk hlaðin síða af uppl fyrir e38 eigendur

Author:  sosupabbi [ Fri 09. Oct 2009 17:08 ]
Post subject:  Re: E38 Miðstöð

Já allavega þá hætti hún að virka aftur mér til mikillar skemtunar, einhverjar hugmyndir?

Author:  Aron540 [ Fri 09. Oct 2009 20:13 ]
Post subject:  Re: E38 Miðstöð

vatnlásinn ??

Author:  sosupabbi [ Sat 10. Oct 2009 02:20 ]
Post subject:  Re: E38 Miðstöð

Aron540 wrote:
vatnlásinn ??

heyrðu já, þarf að láta að kíkja á hann hjá mér, hvernig hefur hann samt áhrif á það hvort miðstöðvarmótorinn fari í gang eða ekki? :aww:

Author:  Zed III [ Sat 10. Oct 2009 09:08 ]
Post subject:  Re: E38 Miðstöð

sosupabbi wrote:
Aron540 wrote:
vatnlásinn ??

heyrðu já, þarf að láta að kíkja á hann hjá mér, hvernig hefur hann samt áhrif á það hvort miðstöðvarmótorinn fari í gang eða ekki? :aww:


myndi halda að hann hefði ekki áhrif, hann er líklegur sökudólgur þegar engin hiti kemur úr miðstöðinni. Er mótorinn örugglega að fá straum ?

Author:  sosupabbi [ Sat 10. Oct 2009 14:21 ]
Post subject:  Re: E38 Miðstöð

Zed III wrote:
sosupabbi wrote:
Aron540 wrote:
vatnlásinn ??

heyrðu já, þarf að láta að kíkja á hann hjá mér, hvernig hefur hann samt áhrif á það hvort miðstöðvarmótorinn fari í gang eða ekki? :aww:


myndi halda að hann hefði ekki áhrif, hann er líklegur sökudólgur þegar engin hiti kemur úr miðstöðinni. Er mótorinn örugglega að fá straum ?

Hann var það ekki, svo tengdi ég hann og hann virkaði í einn dag svo datt hann út aftur, ætla að kíkja á þetta betur í dag....getur vel verið að hann sé bara kaput

Author:  sosupabbi [ Mon 12. Oct 2009 16:38 ]
Post subject:  Re: E38 Miðstöð

tók hann úr og setti smá lubricant á hann og hann flaug í gang og hefur gert það síðustu 4 daga, greinilega e-h styrður eftir að hafa ekki farið í gang í tæpt ár

Author:  Zed III [ Mon 12. Oct 2009 16:42 ]
Post subject:  Re: E38 Miðstöð

það er alltaf hægt að bjarga málunum ef maður á lubbricant :)

Page 1 of 1 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/