bmwkraftur.is https://bmwkraftur.is/spjall/ |
|
Ryðviðgerðir e24? https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=7&t=40338 |
Page 1 of 1 |
Author: | hjaltib [ Tue 06. Oct 2009 21:01 ] |
Post subject: | Ryðviðgerðir e24? |
Sælir ætlaði aðeins að athuga hvernig menn hafa verið að haga sér í ryðviðgerðum. Málið er að ég er með e24 og menn vita nú að það er hægt að gera þessa bíla mjög töff, en málið er að mín sexa er mjög ryðguð, sá það eftir að ég strípaði hann, mjög ryðgaður að innan sérstaklega, gólfið er ónýtt er búinn að skera það úr og kaupa plötur til að sjóða í, þakið ryðgað ásamt topplúgu sleða, rúðufalsinn ryðgaður og já bara almennt ryðgaður, en að utan bretti húdd, afturbretti og hurðarnnar eru alveg heilar eða mjög lítið ryð, t.d. nýlega sprautaður að framan eftir tjón. En spurningarnnar mínar eru á maður að senda bílinn í sandblásun/glerblásun borgar það sig og hvað kostar svoleiðis aðgerð? eða á maður að henda bílnum eða vill hugsanlega einhver taka þetta að sér? þetta veltur sem sagt aðalega á hvort það borgi sig að fara með hann í sand/glerblásun og hvað það kosti haha. |
Author: | doddi1 [ Tue 06. Oct 2009 21:11 ] |
Post subject: | Re: Ryðviðgerðir e24? |
ekki voga þér að henda þessum bíl ![]() ![]() ![]() ég skal bara losa þig við þennan haug, þetta borgar sig náttúrulega engan veginn... hversu mikils virði er bíllinn fyrir þér er spurningin sem þú ættir að spyrja sjálfan þig |
Author: | Dr. Stock [ Wed 07. Oct 2009 23:58 ] |
Post subject: | Re: Ryðviðgerðir e24? |
Þessum bíl má ekki henda!. Það þarf þolinmæði, tíma, kunnáttu og elju til að koma honum í gott lag en allt er hægt ef viljinn er fyrir hendi ekki satt! Ef ekki gengur að gera hann upp í bili, þá er mikilvægt að hann sé í góðri geymslu þannig að hann skemmist ekki meir en orðið er. Gangi þér vel. PS: Ég myndi aldrei kalla Sexu "haug". Ég ber meiri virðingu fyrir þessum bílum en svo. |
Author: | hjaltib [ Thu 08. Oct 2009 18:33 ] |
Post subject: | Re: Ryðviðgerðir e24? |
jæja búinn að fá tilboð í sand/gler blástur verður gaman hjá þeim að blása þetta ryð burt. ![]() ![]() ![]() Kveðja Hjalti |
Author: | SteiniDJ [ Thu 08. Oct 2009 18:36 ] |
Post subject: | Re: Ryðviðgerðir e24? |
Snilld, gangi þér vel með þetta. ![]() |
Author: | arnibjorn [ Thu 08. Oct 2009 18:41 ] |
Post subject: | Re: Ryðviðgerðir e24? |
Damn hvað þetta er nasty ![]() |
Author: | gstuning [ Thu 08. Oct 2009 18:43 ] |
Post subject: | Re: Ryðviðgerðir e24? |
Hvernig hljómar tilboðið? |
Author: | jens [ Thu 08. Oct 2009 20:36 ] |
Post subject: | Re: Ryðviðgerðir e24? |
Metnaðarfullt verkefni hjá þér og frábært að þú ráðist í þetta, finnst allt of mikið um að menn rífi bíla sem þarf boddy viðgerðar. |
Author: | srr [ Thu 08. Oct 2009 21:31 ] |
Post subject: | Re: Ryðviðgerðir e24? |
M30 mit manual schaltgetriebe.......MEGA Snilld ![]() Þú færð mörg virðingarstig frá mér fyrir að ráðast í þetta...... Og mig langar að sjá myndir frá ÖLLU sem gerist!! ![]() |
Author: | sh4rk [ Thu 08. Oct 2009 21:38 ] |
Post subject: | Re: Ryðviðgerðir e24? |
Þú færð allveg ![]() ![]() ![]() |
Author: | Dr. Stock [ Thu 08. Oct 2009 23:31 ] |
Post subject: | Re: Ryðviðgerðir e24? |
Frábært að ganga í þetta mál. Gangi þér sem allra best. Væri gaman að fá myndir á vefinn eftir því sem miðar. ![]() |
Page 1 of 1 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |