Page 1 of 4
Swing þegar ég skipti um akrein og það eru djúp hjólför

Posted:
Wed 23. Sep 2009 20:53
by Zed III
Hef lent í því undanfarið ef ég keyri á sæmilegum hraða, svona 60-80, og keyri ofaní hjólför kemur mikið slag í bílinn. Þetta veldur því að hann kippist til.
Ég er búinn að skipta um allar stífur og eins búið að hjólastilla af fagmanni (Högni í hafnarfirði). Dekkin eru frekar léleg en ég trúi ekki að þau séu að valda þessu þar sem þetta er nokkuð mikið. Ég vill eins ekki skipta um dekk fyrr en ég er búinn að polyhúða felgurnar sem verður í vetur.
Einhverjar hugmyndir ? Bognir dempara, gormar, grindarskekkja etc
Re: Swing þegar ég skipti um akrein og það eru djúp hjólför

Posted:
Wed 23. Sep 2009 20:54
by ömmudriver
Hvort ertu að lenda í þessu á Togaranum eða Trillunni?
Re: Swing þegar ég skipti um akrein og það eru djúp hjólför

Posted:
Wed 23. Sep 2009 22:04
by Axel Jóhann
Ég lendi líka í þessu í rvk, bara orðnar slæmar göturnar þar!

Re: Swing þegar ég skipti um akrein og það eru djúp hjólför

Posted:
Wed 23. Sep 2009 22:14
by ///M
Roadsterinn minn var svona leiðinlegur þegar ég keypti hann... húrraði nýjum dekkjum undir hann og það hætti.
Re: Swing þegar ég skipti um akrein og það eru djúp hjólför

Posted:
Wed 23. Sep 2009 22:32
by Aron540
já það er ómögulegt að keyar minni í djúpum hjólförum, eða bara að skipta um akrein er eins og vera með playstation stýrispinni í höndunum og ýta til hliðar, bara eins gott að það sé enginn fyrir

en þegar að ég skipti um, fer á vetrardekkin þá finn ég ekki fyrir neinu

Re: Swing þegar ég skipti um akrein og það eru djúp hjólför

Posted:
Thu 24. Sep 2009 06:33
by Alpina
///M wrote:Roadsterinn minn var svona leiðinlegur þegar ég keypti hann... húrraði nýjum dekkjum undir hann og það hætti.
Þetta er oft skýringin,,
en einnig dekkja tegundir
Re: Swing þegar ég skipti um akrein og það eru djúp hjólför

Posted:
Thu 24. Sep 2009 07:34
by Zed III
ömmudriver wrote:Hvort ertu að lenda í þessu á Togaranum eða Trillunni?
Togaranum, trillan er eins og klettur
Ég þarf að smella vetrarfelgunum undir og athuga hvort þetta lagist.
Re: Swing þegar ég skipti um akrein og það eru djúp hjólför

Posted:
Thu 24. Sep 2009 10:22
by gardara
Of stórar felgur gætu líka verið vandamálið
Re: Swing þegar ég skipti um akrein og það eru djúp hjólför

Posted:
Thu 24. Sep 2009 10:37
by Zed III
gardara wrote:Of stórar felgur gætu líka verið vandamálið
Gæti verið en finnst það ólíklegt, þetta eru bara 18".
Re: Swing þegar ég skipti um akrein og það eru djúp hjólför

Posted:
Thu 24. Sep 2009 10:41
by Kull
Alpina wrote:///M wrote:Roadsterinn minn var svona leiðinlegur þegar ég keypti hann... húrraði nýjum dekkjum undir hann og það hætti.
Þetta er oft skýringin,,
en einnig dekkja tegundir
Alveg sammála, getur verið mikill munur milli dekkjategunda, sumar tegundir eru einfaldlega verri í þessu en aðrar.
Re: Swing þegar ég skipti um akrein og það eru djúp hjólför

Posted:
Thu 24. Sep 2009 10:50
by Höfuðpaurinn
getur verið að þetta liggi bara í breidd framdekkja &/eða offseti felgna, var allavegana vandamálið á tveim bílum sem ég veit um, munaði öllu um 10 mm í breidd á framdekkjunum.
Re: Swing þegar ég skipti um akrein og það eru djúp hjólför

Posted:
Thu 24. Sep 2009 10:52
by Alpina
Höfuðpaurinn wrote:getur verið að þetta liggi bara í breidd framdekkja &/eða offseti felgna, var allavegana vandamálið á tveim bílum sem ég veit um, munaði öllu um 10 mm í breidd á framdekkjunum.
Góður punktur.. offset getur haft helling að segja
Re: Swing þegar ég skipti um akrein og það eru djúp hjólför

Posted:
Thu 24. Sep 2009 11:01
by kalli*
Þegar ég keypti bílinn voru dekk sem voru nánast ónýt, bíllinn leitaði út um allt, svo þegar ég keypti önnur dekk á hann hætti hann þessu alveg

Nema þegar ég fer í verulega
djúp hjólför, þá kippir hann ennþá pínu á...
Re: Swing þegar ég skipti um akrein og það eru djúp hjólför

Posted:
Thu 24. Sep 2009 11:03
by Zed III
Alpina wrote:Höfuðpaurinn wrote:getur verið að þetta liggi bara í breidd framdekkja &/eða offseti felgna, var allavegana vandamálið á tveim bílum sem ég veit um, munaði öllu um 10 mm í breidd á framdekkjunum.
Góður punktur.. offset getur haft helling að segja
athyglisvert.
Ég er á orginal M felgum, ætti þetta þá ekki að vera vesen á e39 M bílum.
Annars er fljótlegast að tékka þetta með því að smella undir öðrum gangi. Vetrardekkin eru á felgum.
Re: Swing þegar ég skipti um akrein og það eru djúp hjólför

Posted:
Thu 24. Sep 2009 11:37
by gardara
Zed III wrote:gardara wrote:Of stórar felgur gætu líka verið vandamálið
Gæti verið en finnst það ólíklegt, þetta eru bara 18".
Hmm já, ætti svosem ekki að hafa áhrif á e39.
E36 á 18" og með kolrangt offset dansar duglega í hjólförum, þarf meira að segja að hafa báðar hendur á stýri þegar ég skipti um akrein
