Page 1 of 1

Bensíngjöfin - vesen

PostPosted: Tue 22. Sep 2009 16:51
by luli240
Bensíngjöfin er farin að láta eithvað leiðilega, það er alltaf eins og hún festist uppi. Maður þarf alltaf að negla henni niður og liggur við taka af stað í 3500 rpm :lol: Getur eithver sagt mér hvað í ósköpunum er að, og hvernig ég laga þetta.

thx :)

Re: Bensíngjöfin - vesen

PostPosted: Tue 22. Sep 2009 19:38
by kalli*
Ég lenti einmitt stundum í þessu, er kannski á bílastæði í skólanum, er að fara taka af stað og ýti á bensíngjöfinni og hún bara hreyfist ekkert ! Ekkert alveg það stíft að hann fer uppí þrjú og fimm en hann fer alveg milli tvö og fimm og 3 :lol:

Mig minnir að mér var sagt að það þarf kannski bara að smurja bensíngjöfina með einhverri olíudót, man þetta ekki.

Re: Bensíngjöfin - vesen

PostPosted: Wed 23. Sep 2009 00:15
by luli240
Já mig grunaði eithvað þannig, en hún verður bara svona stíf þegar ég er í gír, ekki í hlutlausum eða slökkt á bílnum :S

Re: Bensíngjöfin - vesen

PostPosted: Wed 23. Sep 2009 08:16
by Gunnsinn
það gæti líka verið ef þú ert með drive by wire bensín gjöf þá þarftu að endursetja bensíngjöfina mann ekki hvernig það er gert reyndar get reynt að finna það aftur ef þú vilt

Re: Bensíngjöfin - vesen

PostPosted: Wed 23. Sep 2009 16:45
by luli240
Það yrði indælt af þér :D

Re: Bensíngjöfin - vesen

PostPosted: Wed 23. Sep 2009 16:57
by doddi1
strákar mínir... ef þið lendið í vandræðum þá er ágætt að pósta hér en ef engin svör finnast þá skulið þið bara fara á bimmerforums og fá hjálp... það er miklu stærra spjall = fleiri vandamál hafa fundist = fleiri vandamál hafa verið leyst.

:thup:

Re: Bensíngjöfin - vesen

PostPosted: Wed 23. Sep 2009 17:44
by Einsii
Í gamla 318Is bílnum mínum var pedalinn eitthvað leiðinlegur og festist eitthvað asnalega alveg í fyrstu millimetrunum, Þannig að ég þurfti altaf að banka pedalann framhjá því til að taka af stað (mjög pirrandi og ekkert voðalega smooth)
Leysti þann vanda með að strekkja örlítið á bensíngjafarbarkanum þannig að pedallinn komst aldrei þessa síðustu mm :)
Kanski má nota þessa reddingu hjá þér.

Re: Bensíngjöfin - vesen

PostPosted: Thu 24. Sep 2009 07:40
by Zed III
doddi1 wrote:strákar mínir... ef þið lendið í vandræðum þá er ágætt að pósta hér en ef engin svör finnast þá skulið þið bara fara á bimmerforums og fá hjálp... það er miklu stærra spjall = fleiri vandamál hafa fundist = fleiri vandamál hafa verið leyst.

:thup:


og póstið svo lausninni hér :D

Re: Bensíngjöfin - vesen

PostPosted: Fri 25. Sep 2009 16:57
by luli240
My gas pedal always gets stuck at the top, meaning I'll take off in about 3500 rpm.

If anyone can fix my problem I'll be thankful


ohh ég er svo sleipur í ensku :lol: