Page 1 of 1
læst húdd

Posted:
Mon 21. Sep 2009 22:42
by JohnnyBanana
húddið mitt ákvað að læsast niðri af einhverjum ástæðum, tók í opnarann sem var skuggalega stífur þangað til að stykkið sem hélt brotnaði, mixaði einhverja skrúfu til að halda þessu í en ennþá skuggalega stíft og bara haggast ekki. þá tók ég allt þetta dót í sundur, fann vírinn og togaði og togaði. en ekkert virkar. ógeðsleg leiðindi þar sem ég ætlaði mér að detta í soggreinaskipti.
það væri geðveikt ef einhver gæti deilt smá fróðleik hérna eða hjálpað mér með þetta.
Re: læst húdd

Posted:
Tue 22. Sep 2009 00:36
by skulzen
best að prófa vera tveir að þessu. einn að ýta húddinu niður og hinn aðili að toga i barkann inní bil
Re: læst húdd

Posted:
Tue 22. Sep 2009 10:28
by finnbogi
ég lenti í þessu helv. líka á E30
mölvaði haldfangið inníbíl
fann bara vírinn náði í weisgrip töngina og klemmdi það vel við vírinn og þá náði ég nógu góðu átaki á vírinn til að þetta opnaðist

Re: læst húdd

Posted:
Tue 22. Sep 2009 20:12
by JohnnyBanana
heyrðu mér tókst að opna það, lét félaga minn þrýsta á húddið og þá opnaðist þetta. en það læstist um leið og ég lokaði því aftur, ömurlegt að þurfa tvo aðila til þess að opna húddið í framtíðinni.
Re: læst húdd

Posted:
Wed 23. Sep 2009 17:16
by IngóJP
JohnnyBanana wrote:heyrðu mér tókst að opna það, lét félaga minn þrýsta á húddið og þá opnaðist þetta. en það læstist um leið og ég lokaði því aftur, ömurlegt að þurfa tvo aðila til þess að opna húddið í framtíðinni.
Ekki ef þú lagar þetta kjáni skiptu um barkan smurðu læsinguna engin geymvísindi hér á ferð