bmwkraftur.is
https://bmwkraftur.is/spjall/

BMW X5 árg 2000 - 4,4i - Alternator
https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=7&t=39825
Page 1 of 1

Author:  Stanky [ Mon 14. Sep 2009 13:26 ]
Post subject:  BMW X5 árg 2000 - 4,4i - Alternator

Sælir.

Alternatorinn er orðinn slappur í BMW bílnum hjá mömmu og hún fór með hann í TB og þeir sögðu henni að kaupa nýjann alternator og að uppgerð á honum myndi aldrei borga sig.

Reynist þetta rétt hjá TB mönnunum að það borgi sig ekki að taka alternator upp?

Verðmunurinn er geðbilaður á uppteknum og nýjum (ca 900$ eftir létta leit á google.com).

Hvað mynduð þið gera?

Author:  Ingvarinn [ Mon 14. Sep 2009 13:38 ]
Post subject:  Re: BMW X5 árg 2000 - 4,4i - Alternator

Prufaðu að hringja í rafstillingu held að þeir séu an í dugguvogi og spurðu hvað verðið er sirka á þessu þeir hafa reynst mér vél í gegnum tíðina

Author:  IngóJP [ Mon 14. Sep 2009 18:32 ]
Post subject:  Re: BMW X5 árg 2000 - 4,4i - Alternator

Jöbb tala við Rafstillingu mæli með því

Author:  Axel Jóhann [ Mon 14. Sep 2009 18:34 ]
Post subject:  Re: BMW X5 árg 2000 - 4,4i - Alternator

Rafstilling eiga svona, ég keypti þar nýjann orginal BOSCH, ég fékk hann á 50k hjá þeim í rafstillingu með því að setja gamla uppí á 20K.


150k í umboðinu BTW. :lol:

Author:  Danni [ Mon 14. Sep 2009 20:52 ]
Post subject:  Re: BMW X5 árg 2000 - 4,4i - Alternator

Fyrst þetta er 2000 árgerðin þá er þetta M62 bíllinn og með vatnskældum alternator sem kostar fullt fullt af peningum. Þegar þetta fór hjá mér í TZ-278 sem er 99 árgerð af 540 þá var mér sagt það sama, kaupa nýjan en ekki gera upp. Ég fékk nýjan uppgerðan hjá Ræsi sem var með Bosch umboðið þá og lét minn uppí. Endaði í einhverjum 60-65þús, árið 2007.

Author:  Stanky [ Tue 15. Sep 2009 12:01 ]
Post subject:  Re: BMW X5 árg 2000 - 4,4i - Alternator

Danni wrote:
Fyrst þetta er 2000 árgerðin þá er þetta M62 bíllinn og með vatnskældum alternator sem kostar fullt fullt af peningum. Þegar þetta fór hjá mér í TZ-278 sem er 99 árgerð af 540 þá var mér sagt það sama, kaupa nýjan en ekki gera upp. Ég fékk nýjan uppgerðan hjá Ræsi sem var með Bosch umboðið þá og lét minn uppí. Endaði í einhverjum 60-65þús, árið 2007.


Takk fyrir þetta.

Hvernig var það með upptekkna alternatorinn.... var hann eitthvað leiðinlegur eða eitthvað svoleiðis?

Ég er í raun og veru bara að spökulera hvort borgi sig að taka þetta upp eða kaupa nýjann upp á endingu að gera.

Author:  Aron Fridrik [ Tue 15. Sep 2009 12:43 ]
Post subject:  Re: BMW X5 árg 2000 - 4,4i - Alternator

Altenatorinn er eftir því sem ég best veit enn í bílnum hjá ZedIII (sem er gamli bílinn hans Danna)

Author:  Zed III [ Tue 15. Sep 2009 12:46 ]
Post subject:  Re: BMW X5 árg 2000 - 4,4i - Alternator

Aron Fridrik wrote:
Altenatorinn er eftir því sem ég best veit enn í bílnum hjá ZedIII (sem er gamli bílinn hans Danna)


Staðfest að hann er þar, og er að virka fínt að ég best veit.

Author:  Danni [ Tue 15. Sep 2009 18:49 ]
Post subject:  Re: BMW X5 árg 2000 - 4,4i - Alternator

http://picasaweb.google.com/Daniel.Runa ... -S_iZyTQQ#

Hér eru myndir frá því að ég skipti um þetta, þetta var alveg hundleiðinlegt og blautt verk! Glatað að þetta skuli vera vatnskælt :thdown:

Author:  Hannsi [ Tue 15. Sep 2009 19:16 ]
Post subject:  Re: BMW X5 árg 2000 - 4,4i - Alternator

Þessir vatnskældu altenatorar eru pain. Allir M62TU eru með þá. ekki þess virði að gera upp :)

Page 1 of 1 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/