Page 1 of 1

Vatnsverja tuskutopp

PostPosted: Tue 08. Sep 2009 05:41
by gjonsson
Þangað til fyrir helgi hafði ég aldrei átt bíl sem var ekki með málmþaki. Þegar kom að því að þrífa nýja bílinn, þá kom ég að tómum kofanum hvað þekkingu á blæjuþrifum og viðhaldi varðar.
Þetta eru nú líklega ekki nein stjörnuvísindi en mig langar samt að forvitnast hvað menn eru að gera til að halda blæjum vatnsheldum og fallegum.
Fann líka þennan fína link á bimmerforums en þar er bent á efni sem ég hef ekki hugmynd hvort séu fáanleg hér á landi.

http://www.carcareonline.com/viewarticle.aspx?art=3

Hvað segir krafturinn? Eitthvað betra en annað í þessum efnum?
Öll ráð vel þegin.

Re: Vatnsverja tuskutopp

PostPosted: Tue 08. Sep 2009 06:41
by IceDev
http://www.cotswoldstore.com/product/Ge ... 3120395085

BOOYA!

Málið leyst, fæst meira að segja í B&L...eða fékkst allavega

Re: Vatnsverja tuskutopp

PostPosted: Tue 08. Sep 2009 09:21
by ///M
BMW vörurnar eru fínar, hef notað þetta á minn.

Re: Vatnsverja tuskutopp

PostPosted: Tue 08. Sep 2009 11:35
by Jón Ragnar
Bæring á e-ð Mothers gel handa þér.
Notuðum það á blæju golf sem við eigum og toppurinn varð eins og nýr!

Bæring er að vinna í Höfðahöllini eða bílum þarna fyrir ofan Ölgerðina, hann er með mothers þar til sölu.

Mæti með þessu efni

Re: Vatnsverja tuskutopp

PostPosted: Tue 08. Sep 2009 13:42
by Zed III
John Rogers wrote:Bæring á e-ð Mothers gel handa þér.
Notuðum það á blæju golf sem við eigum og toppurinn varð eins og nýr!

Bæring er að vinna í Höfðahöllini eða bílum þarna fyrir ofan Ölgerðina, hann er með mothers þar til sölu.

Mæti með þessu efni


Þarf að testa þetta. Notaði BMW spreyið á toppin hjá mér og var ekki neitt svaka sáttur við niðurstöðuna. Þreif ekki nógu vel né jók dýptina í litnum.

Re: Vatnsverja tuskutopp

PostPosted: Tue 08. Sep 2009 14:23
by ///M
Zed III wrote:
John Rogers wrote:Bæring á e-ð Mothers gel handa þér.
Notuðum það á blæju golf sem við eigum og toppurinn varð eins og nýr!

Bæring er að vinna í Höfðahöllini eða bílum þarna fyrir ofan Ölgerðina, hann er með mothers þar til sölu.

Mæti með þessu efni


Þarf að testa þetta. Notaði BMW spreyið á toppin hjá mér og var ekki neitt svaka sáttur við niðurstöðuna. Þreif ekki nógu vel né jók dýptina í litnum.


Endar er sprayið bara til að vatnsverja.. þarft bæði sápuna og vatnsvörnina :)