Page 1 of 2

Bensínseyðslumælirinn hjá mér...(eða hvað sem þetta kallast)

PostPosted: Mon 07. Sep 2009 15:37
by kalli*
Sælir,

Sko, mælaborðið hjá mér er víst með mælir uppá hvað bíllinn er að eyða miklu í akstri, en það virðist ekki alveg vera að virka tipp-topp.
Þegar ég ræsi bílinn fara öll ljósin á mælaborðinu og vísarnir að hreyfast og svona, en þessi mælir fer bara á bakvið (langt yfir 30 lítrar á hundraði, þið með svona ættuð að vita hvað ég er að tala um) og annaðhvort er hann þar þar sem hann sést ekkert, eða bara á 0....getur þetta verið sambandsleysi ?
Virðist nefnilega bara peran á bakvið km/h mælirinn vera í gangi, peran bakvið snúningsmælirinn er annaðhvort ekki að virka eða sprungin, svo ég var bara að pæla í hvort þetta væri sambandsleysi.

Allar upplýsingar vel þegnar :mrgreen:

Re: Bensínseyðslumælirinn hjá mér...(eða hvað sem þetta kallast)

PostPosted: Mon 07. Sep 2009 16:45
by kalli*
Eitthvað segir mér að ég sé ekki alveg að lýsa þessu sem best :lol: :oops:

Re: Bensínseyðslumælirinn hjá mér...(eða hvað sem þetta kallast)

PostPosted: Mon 07. Sep 2009 16:47
by ///M
Hreyfist hann semsagt ekkert í akstri?

Ef þú ert stopp og með bílinn í gangi á hann að sjálfsögðu að vera í botni þar sem að bíllinn eyðir endalaust á hundraði..

Re: Bensínseyðslumælirinn hjá mér...(eða hvað sem þetta kallast)

PostPosted: Mon 07. Sep 2009 16:49
by kalli*
Leiðrétting: Hann er í 0 meðan ég er að keyra.

Re: Bensínseyðslumælirinn hjá mér...(eða hvað sem þetta kallast)

PostPosted: Mon 07. Sep 2009 20:31
by JohnnyBanana
já ég var einmitt líka að pæla, er eðlilegt að nálin fljúgi langt yfir 30 í lausagangi? annars er eitthvað að marka þennan mæli?

Re: Bensínseyðslumælirinn hjá mér...(eða hvað sem þetta kallast)

PostPosted: Mon 07. Sep 2009 20:33
by sosupabbi
mælirinn á að fara bakvið í lausagangi, held hann eigi ekki einu sinni að virka fyrr en eftir 20 eða 30km/klst

Re: Bensínseyðslumælirinn hjá mér...(eða hvað sem þetta kallast)

PostPosted: Mon 07. Sep 2009 20:34
by UnnarÓ
JohnnyBanana wrote:já ég var einmitt líka að pæla, er eðlilegt að nálin fljúgi langt yfir 30 í lausagangi? annars er eitthvað að marka þennan mæli?

Í lausagangi og stopp? Það er náttúrulega ekki hægt að fá út x lítra á 100km ef bíllinn hreyfist ekki.

Re: Bensínseyðslumælirinn hjá mér...(eða hvað sem þetta kallast)

PostPosted: Mon 07. Sep 2009 21:44
by JohnnyBanana
sosupabbi wrote:mælirinn á að fara bakvið í lausagangi, held hann eigi ekki einu sinni að virka fyrr en eftir 20 eða 30km/klst

já takk fyrir, grunaði það einmitt.

Re: Bensínseyðslumælirinn hjá mér...(eða hvað sem þetta kallast)

PostPosted: Mon 07. Sep 2009 22:13
by kalli*
Ok sem sagt að hann er að virka í lausargangi, af hverju mælir hann ekki hvað ég er að eyða þá meðan ég er að keyra þá :| ?

Re: Bensínseyðslumælirinn hjá mér...(eða hvað sem þetta kallast)

PostPosted: Mon 07. Sep 2009 22:27
by JohnnyBanana
kalli* wrote:Ok sem sagt að hann er að virka í lausargangi, af hverju mælir hann ekki hvað ég er að eyða þá meðan ég er að keyra þá :| ?

er þetta ekki tengt við MAF, gæti verið eitthvað að honum?

Re: Bensínseyðslumælirinn hjá mér...(eða hvað sem þetta kallast)

PostPosted: Tue 08. Sep 2009 00:43
by fjalar91
er þetta ekki mpg ,,, hehe

Re: Bensínseyðslumælirinn hjá mér...(eða hvað sem þetta kallast)

PostPosted: Tue 08. Sep 2009 13:10
by JonHrafn
Hann á ekki að hreyfast meðan bíllinn er kyrrstæður. Lenti í þessu á síðasta bílnum mínum að eyðslumælirinn rauk í botn þegar ég var að hemla niður að ljósum t.d. Komst aldrei að því hvað olli því.

Re: Bensínseyðslumælirinn hjá mér...(eða hvað sem þetta kallast)

PostPosted: Tue 08. Sep 2009 13:37
by HjorturG
Hmmm núna byrjaði ég að pæla í einu... Ég á nákvæmlega eins bíl, líka '99 módel, 316 compact, nákvæmlega eins fyrir utan að hann er silfurlitaður.. og ég er ekki með svona mæli? Veit einhver afhverju minn bíll er með þetta litla smáatriði öðruvísi? :?

Re: Bensínseyðslumælirinn hjá mér...(eða hvað sem þetta kallast)

PostPosted: Tue 08. Sep 2009 21:53
by kalli*
JohnnyBanana wrote:
kalli* wrote:Ok sem sagt að hann er að virka í lausargangi, af hverju mælir hann ekki hvað ég er að eyða þá meðan ég er að keyra þá :| ?

er þetta ekki tengt við MAF, gæti verið eitthvað að honum?


Hvað í ósköpunum er það :|


HjorturG wrote:Hmmm núna byrjaði ég að pæla í einu... Ég á nákvæmlega eins bíl, líka '99 módel, 316 compact, nákvæmlega eins fyrir utan að hann er silfurlitaður.. og ég er ekki með svona mæli? Veit einhver afhverju minn bíll er með þetta litla smáatriði öðruvísi? :?


Er þinn líka með þennan ///M Pakka ? Ég held að það sé mjög líklegt að Compact séu ekki hannaðir með eyðslumælir ? Það var nefnilega skipt um mælaborð á honum fyrir nokkrum tugu þúsund kílómetrum og getur verið að mælaborðið hafi verið úr bíl með eyðslumælir ? En þá er það að hann hverfur eins og hann á að gera þegar hann er kyrrstæður....botna ekkert í þessu :|

Re: Bensínseyðslumælirinn hjá mér...(eða hvað sem þetta kallast)

PostPosted: Tue 08. Sep 2009 22:16
by birkire
MAF er loftflæði skynjarinn sem er í loftinntakslögninni rétt á eftir síuboxinu. Næstum allir BMW eru með svona eyðslumæla.
Ég mundi prófa að kíkja á allar lofthosur og sjá hvort það sé ekki allt tengt og engar rifur á hosum þar sem eyðslan mælist á vakúmi þarna í kring