Page 1 of 1
Hvarfakútar og skoðun

Posted:
Wed 02. Sep 2009 13:45
by dropitsiggz
Sælir,
er með tvær spurningar
1. Hefur einhver farið með bílinn sinn hérna í skoðun(sem er 95 árg eða nýrri) og fengið fulla skoðun á hann þó svo að hann sé ekki með hvarfakút
2. Hef séð að á mörgum bílum í útlöndum er fólk að taka hvarfakútana úr hjá sér, þar tala þeir aldrei neitt um skynjarana né neitt þannvegin, eða ekki það sem ég hef séð allaveganna, en það sem ég ætla að spurja er að mynduð þið mæla með því að taka þá úr? hvað eru svona gallarnir við það?
þetta er e39 540 '97
Re: Hvarfakútar og skoðun

Posted:
Wed 02. Sep 2009 14:00
by JohnnyBanana
minn er 95 og hvarfalaus, komst í gegnum skoðun athugasemdarlaust. held að eini gallinn sé að ef þetta er ekki fagmannlega gert, ss bara sett rör í staðinn þá kemur ógeðslegt frethljóð. einnig geturu látið hola hvarfann þinn að innan ef bíllinn er nýlegur, þá kemst hann í gegnum skoðun. kostirnir eru margir við þetta, minni bensíneyðsla, sprækari bíllinn og auðveldara að starta honum á veturna.
Re: Hvarfakútar og skoðun

Posted:
Wed 02. Sep 2009 14:10
by ValliB
Hægt að villa um fyrir skoðanagaurum með túbum og mixeringum.
kostirnir eru einhverjir, hefur verið talað um minni bensíneyðslu o.s.fr.
passa sig bara ef á að taka hvarfakút að setja ekki bara rör eins og var á mínum gamla 320i, kemur alveg helvíti leiðinlegt hljóð
Re: Hvarfakútar og skoðun

Posted:
Wed 02. Sep 2009 14:32
by sh4rk
ég setti bara rör í staðinn fyrir hvarfana á 740i bílnum hjá mér og mér fannst hljóðið ekkert breytast
Re: Hvarfakútar og skoðun

Posted:
Wed 02. Sep 2009 15:05
by ValliB
sh4rk wrote:ég setti bara rör í staðinn fyrir hvarfana á 740i bílnum hjá mér og mér fannst hljóðið ekkert breytast
Það var eiginlega skelfilegt hljóð í mínum á snúningi, en verð að viðurkenna að það var mjög töff í hægagangi
Re: Hvarfakútar og skoðun

Posted:
Wed 02. Sep 2009 15:12
by sh4rk
það er kannski öðruvísi ef um 6 cyl bíl er að ræða
Re: Hvarfakútar og skoðun

Posted:
Wed 02. Sep 2009 15:14
by ValliFudd
sh4rk wrote:það er kannski öðruvísi ef um 6 cyl bíl er að ræða
Það var svolítið tussulegt hljóðið í rauða 323 PD780.. Enda tómur hvarfi

Hann var '96 og ég slapp..
Re: Hvarfakútar og skoðun

Posted:
Wed 02. Sep 2009 15:23
by gunnar
Ég er hvarfalaus á E30 með M52B28 og hljóðið er mjög töff og ég er bara með rör á milli.
Re: Hvarfakútar og skoðun

Posted:
Wed 02. Sep 2009 17:38
by Jón Ragnar
Ég er með túpur og ég fíla soundið í mínum allavega

Re: Hvarfakútar og skoðun

Posted:
Wed 02. Sep 2009 18:29
by birkire
John Rogers wrote:Ég er með túpur og ég fíla soundið í mínum allavega

Mjög svalt á snúning
Re: Hvarfakútar og skoðun

Posted:
Wed 02. Sep 2009 18:35
by dropitsiggz
En hvað með mengun? ætti það ekki að geta truflað það að hann fengi skoðun
Re: Hvarfakútar og skoðun

Posted:
Wed 02. Sep 2009 19:45
by Bjöggi
Það eru til reglugerðir um þetta.
Bílar sem eru eldri en 95 árg þá skiptir þetta ekki máli og þá má gera hvað sem er við hvarfakútinn.
Bílar sem eru yngri en 95 árg verða að vera með hvarfakút ef hann var í bílnum þegar hann var framleiddur.
Mengunartölur mega ekki fara uppfyrir 0,1 eða 0,2 % í CO í yngri bílunum, tölurnar fara alveg í 0,5 % CO þegar hvarfinn er tómur eða komið rör í staðinn = grænn miði.
Annars eru skoðunarmenn jafn misjafnir og þeir eru margir, ef þeir taka bílinn kaldann inn í skoðun og mengunarmæla hann þá er líka lítið að marka tölurnar sem koma aftan úr honum. Sumir skrifa bara 0,0% í skoðunarvottorðið án þess að mæla hann.
Re: Hvarfakútar og skoðun

Posted:
Wed 02. Sep 2009 23:33
by gardara
Mér finnst hljóðið í mínum megatöff án hvarfa....

Re: Hvarfakútar og skoðun

Posted:
Thu 03. Sep 2009 12:17
by Axel Jóhann
Ég fékk nú reyndar að heyra það frá einum skoðunarmanni að ef bíllinn kom orginal með hvarfakút sama hversu gamall hann er þá þarf hann að vera til staðar.