Page 1 of 2

Mobil1 olía (góð olía eða skaðræðis rusl?)

PostPosted: Tue 01. Sep 2009 11:48
by Mazi!
fór að spá,,,


hef heyrt mjög misjafnar sögur af olíum frá Mobil1

hafa nokkrir sagt við mig að þetta sé algjört skaðræðis rusl og aðrir að þetta sé THE shit bara,,,


svo mig langar að vita hvað gerir Mobil 1 svona slæma eða góða ? (hef aldrey þorað að kaupa svona olíu) :-k

greinilega verulega skiptar skoðanir á þessu.

Re: Mobil1 olía (góð olía eða skaðræðis rusl?)

PostPosted: Tue 01. Sep 2009 12:57
by Aron Fridrik
0W40 er bara frekar þunn olía og þessvegna brennur hún auðveldlega á ótor sem er búið að keyra smá..

Re: Mobil1 olía (góð olía eða skaðræðis rusl?)

PostPosted: Tue 01. Sep 2009 14:43
by Dóri-
Aron Fridrik wrote:0W40 er bara frekar þunn olía og þessvegna brennur hún auðveldlega á ótor sem er búið að keyra smá..


og hvað er sett í staðinn ?

Re: Mobil1 olía (góð olía eða skaðræðis rusl?)

PostPosted: Tue 01. Sep 2009 14:46
by gstuning
Það sem á að fara á vélina.

Re: Mobil1 olía (góð olía eða skaðræðis rusl?)

PostPosted: Tue 01. Sep 2009 14:48
by Dóri-
gstuning wrote:Það sem á að fara á vélina.


en ef að það sé mælt með mobil 1 eða castrol 0w40

Re: Mobil1 olía (góð olía eða skaðræðis rusl?)

PostPosted: Tue 01. Sep 2009 14:57
by ValliB
Það er einmitt mælt með mobil1 á minn bíl og hann er alveg ekinn 226.000.

Og er að fara með hann í smur bara á eftir, svo ég stelist nú til að skjóta einni spurningu hér að,

með hverju mæliði með?

Re: Mobil1 olía (góð olía eða skaðræðis rusl?)

PostPosted: Tue 01. Sep 2009 15:08
by Elnino
ég setti alltaf mobile 1 0w40 á minn gamla 323,rándýr olía. Hann hreyfði ekki við henni, enda bara ekin um 100 þúsund

Re: Mobil1 olía (góð olía eða skaðræðis rusl?)

PostPosted: Tue 01. Sep 2009 15:19
by gstuning
Dóri- wrote:
gstuning wrote:Það sem á að fara á vélina.


en ef að það sé mælt með mobil 1 eða castrol 0w40



Þá setturru það.

Það sem Aron gleymdi að segja er að , það þýðir ekki að setja 0-40w á vél sem er ekki hönnuð til þess,
smurning verður verra og því brennur hún(olíufilman næst ekki að vera eins þykk og hún á að vera og þá myndast auka álag á olíuna þar sem veldur brunanum).

Alltaf að setja það sem vélarframleiðandinn segir nema þú eða einhver viti betur. t.d ef olíu clearance hefur verið breytt í vélinni.

Re: Mobil1 olía (góð olía eða skaðræðis rusl?)

PostPosted: Tue 01. Sep 2009 15:57
by sh4rk
Ég er með 15W40 á báðum bimmunum hjá mér og það er engin olíubrensla á þeim á þessari olíu en ég veit að það er mælt með einhverri annari olíu á S38 vélina en ég veit ekki hvað er mælt með á M60

Re: Mobil1 olía (góð olía eða skaðræðis rusl?)

PostPosted: Tue 01. Sep 2009 17:19
by Stebbtronic
Elnino wrote:ég setti alltaf mobile 1 0w40 á minn gamla 323,rándýr olía. Hann hreyfði ekki við henni, enda bara ekin um 100 þúsund


Hehe góður... :thup:

Það sem sem málið snýst að stórum hluta um er legurýmd, á mikið eknum mótor er meiri legurýmd en á lítið eknum mótor, ef legurýmdin er orðin mikil og sett er 0w/40 olía sem er mjög þunn olía þá þarf olíudælan að dæla meira magni til að geta haldið uppi eðlilegum smurþrýsting og eðlilegri smurhimnu á leguflötum.

Re: Mobil1 olía (góð olía eða skaðræðis rusl?)

PostPosted: Tue 01. Sep 2009 17:36
by ömmudriver
Vá hvað er málið með þetta spjallborð, þetta er ekki í fyrsta og ekki í síðasta skipti sem að ég skrifa eitthvern pistil og hann hverfur :burn:



Ég setti alltaf 15W-40 á mótorinn minn eins og fyrri eigandi hafði gert en svo fer ég með bílinn í Inspection hjá B&L og þá setja þeir Mobil 1 piss á mótorinn, en samkvæmt þeim er það ekkert svo nauið hvaða olía fer á mótorinn :shock:

Hvaða olíu mæla menn með á M30B35 sem BTW er mælt með í manualinum að sé sett á 15W-40(Fyrir tuttugu árum síðan)?

Re: Mobil1 olía (góð olía eða skaðræðis rusl?)

PostPosted: Tue 01. Sep 2009 18:41
by Hlynzi
ömmudriver wrote:Vá hvað er málið með þetta spjallborð, þetta er ekki í fyrsta og ekki í síðasta skipti sem að ég skrifa eitthvern pistil og hann hverfur :burn:



Ég setti alltaf 15W-40 á mótorinn minn eins og fyrri eigandi hafði gert en svo fer ég með bílinn í Inspection hjá B&L og þá setja þeir Mobil 1 piss á mótorinn, en samkvæmt þeim er það ekkert svo nauið hvaða olía fer á mótorinn :shock:

Hvaða olíu mæla menn með á M30B35 sem BTW er mælt með í manualinum að sé sett á 15W-40(Fyrir tuttugu árum síðan)?



Hafa menn haldbærarar sannanir fyrir því að tegundamunur á olíum geri gríðarlegan mun, þegar olíurnar eru framleiddar eftir sama staðli ?

Re: Mobil1 olía (góð olía eða skaðræðis rusl?)

PostPosted: Tue 01. Sep 2009 20:14
by Stebbtronic
Mazi! wrote:svo mig langar að vita hvað gerir Mobil 1 svona slæma eða góða ? (hef aldrey þorað að kaupa svona olíu) :-k


Það sem Mobil1 hefur umfram flestar aðrar olíur er að hún er "Full synthetic" = Gerviefnaolía s.s hún er búin til, ekki eins og þessar algengusu mótorolíur sem koma úr jörðinni og eru hreinsaðar/eimaðar osfr.
Gerviefnaolíur eru þeim eiginleikum gæddar að seigja olíunnar breytist mun minna við hitastigbreytingar frá t.d 20°c og uppí keyrsluhita heldur en hefðbundnar jarðefnaolíur. Einnig eru þessar olíur efnabættar þannig að sót og oxun í olíunni hafa minni áhrif á smurhæfni hennar samanborið við jarðefnaolíur. T.d er hiklaust mælt með full synthetic olíum á turbo bílvélar sem eru með olíukældri forþjöppu því yfir forþjöppuna getur olían hitnað umtalsvert í hita leiksins(meir en annarsstaðar í vélinnni) og þegar olía hitnar yfir viss mörk fara að falla út efni í henni og hún missir smureiginleika sína, synthetísk olía þolir meiri hita en jarðefnaolíur án þess að missa þessa eiginleika sína.

Hér mætti kannski benda á að á flestum smurstöðvum sem selja Mobil olíur er hægt að fá Mobil 3000 5w/40 sem er líka full synthetic en er töluvert ódýrari en mobil1.

Svo er líka til Mobil1 5/40 ESP full synthetic en það er svokölluð langtímaolía, þeir bílar sem notast við þessa olíu verða að vera með búnað(skilvindu) sem skilur sót úr olíunni til þess að eiginleikar hennar nýtist til fulls en þá er líka smurt á 15000km fresti.

Re: Mobil1 olía (góð olía eða skaðræðis rusl?)

PostPosted: Wed 02. Sep 2009 12:34
by Aron Fridrik
ömmudriver wrote:Vá hvað er málið með þetta spjallborð, þetta er ekki í fyrsta og ekki í síðasta skipti sem að ég skrifa eitthvern pistil og hann hverfur :burn:



Ég setti alltaf 15W-40 á mótorinn minn eins og fyrri eigandi hafði gert en svo fer ég með bílinn í Inspection hjá B&L og þá setja þeir Mobil 1 piss á mótorinn, en samkvæmt þeim er það ekkert svo nauið hvaða olía fer á mótorinn :shock:

Hvaða olíu mæla menn með á M30B35 sem BTW er mælt með í manualinum að sé sett á 15W-40(Fyrir tuttugu árum síðan)?



10W40 dugar fínt

Re: Mobil1 olía (góð olía eða skaðræðis rusl?)

PostPosted: Wed 02. Sep 2009 12:37
by ömmudriver
Aron Fridrik wrote:
ömmudriver wrote:Vá hvað er málið með þetta spjallborð, þetta er ekki í fyrsta og ekki í síðasta skipti sem að ég skrifa eitthvern pistil og hann hverfur :burn:



Ég setti alltaf 15W-40 á mótorinn minn eins og fyrri eigandi hafði gert en svo fer ég með bílinn í Inspection hjá B&L og þá setja þeir Mobil 1 piss á mótorinn, en samkvæmt þeim er það ekkert svo nauið hvaða olía fer á mótorinn :shock:

Hvaða olíu mæla menn með á M30B35 sem BTW er mælt með í manualinum að sé sett á 15W-40(Fyrir tuttugu árum síðan)?



10W40 dugar fínt


Þykist þú vita eitthvað um olíu, pjakkur :lol:

En án alls gríns þá átti ég samtal við Hermann sem er BMW tæknimaður hjá B&L og hann mældi einmitt með 10W-40 :)