Page 1 of 3

E36 eyðsla

PostPosted: Mon 31. Aug 2009 20:32
by JohnnyBanana
er alveg eðlilegt að E36 323i sé að eyða 15l á hundraðið í blönduðum akstri? gæti það verið útaf ótengdum súrefnisskynjara?

Re: E36 eyðsla

PostPosted: Mon 31. Aug 2009 20:58
by ValliB
Það er líklega hægt að koma þeim upp í þannig eyðslu.
en hef aldrei séð svona tölu fyrir e36 323

Re: E36 eyðsla

PostPosted: Mon 31. Aug 2009 21:25
by JohnnyBanana
þetta er mjög skrítið því hann var ekki að eyða svona miklu fyrir sirka 2 mánuðum síðan.

Re: E36 eyðsla

PostPosted: Mon 31. Aug 2009 22:01
by gardara
Bensínleki?

Minn allavega eyddi svona 30-40 lítrum á hundraðið vegna bensínleka :lol:

Það voru dýrar vikur :(

Re: E36 eyðsla

PostPosted: Mon 31. Aug 2009 23:48
by Jón Ragnar
325 hjá mér er allavega í 10l @ 100km

Re: E36 eyðsla

PostPosted: Mon 31. Aug 2009 23:57
by SteiniDJ
John Rogers wrote:325 hjá mér er allavega í 10l @ 100km

Óttarlegur sparakstur er þetta hjá þér :shock: Minn hefur legið í 11.5 l/100 frá bíladögum (reyndar E46 og ekki 323 eða 325).

Re: E36 eyðsla

PostPosted: Tue 01. Sep 2009 03:30
by Dóri-
mér finnst 15 full hátt hjá þér, en hvað veit ég kannski keyrirðu bara greitt.
alpinan er í 8-9 utanbæjar og 11-12 innanbæjar og það er 3.3 mótor

Re: E36 eyðsla

PostPosted: Tue 01. Sep 2009 10:31
by Höfuðpaurinn
JohnnyBanana wrote:gæti það verið útaf ótengdum súrefnisskynjara?

já það gæti verið

Re: E36 eyðsla

PostPosted: Tue 01. Sep 2009 15:05
by JohnnyBanana
Dóri- wrote:mér finnst 15 full hátt hjá þér, en hvað veit ég kannski keyrirðu bara greitt.
alpinan er í 8-9 utanbæjar og 11-12 innanbæjar og það er 3.3 mótor

þegar ég keyri greitt, sem ég er því miður hættur að gera vegna eyðslu, eyðir hann sirka 25. ég er búinn að skipta um kerti og keypti meirasegja brjálað K&N síukit í hann, sem breytti ekki neinu í eyðslunni, varð bara miklu sprækari og flottara hljóð.

Re: E36 eyðsla

PostPosted: Tue 01. Sep 2009 15:12
by JohnnyBanana
Höfuðpaurinn wrote:
JohnnyBanana wrote:gæti það verið útaf ótengdum súrefnisskynjara?

já það gæti verið

þegar ég fór að láta laga gat í pústinu hjá mér, spurði ég gæjana aðeins útí að láta taka hvarfakútinn úr því fyrrverandi eigandi sagði að einhver kútur væri dáldið stíflaður undir honum, sem ég hélt að væri náttúrulega hvarfakúturinn. og þeir tjekkuðu eitthvað á þessu hvað var hægt að gera og svo komu þeir og tjáðu mér það að það væri enginn hvarfakútur í honum, bara einhver kútur sem virtist holur að innan en gat ekki verið hvarfakútur. þá heyrðist mér þeir eitthvað vera að tala sín á milli um að það vantaði líka súrefnisskynjarann.

Re: E36 eyðsla

PostPosted: Tue 01. Sep 2009 15:17
by ValliB
JohnnyBanana wrote:

Það gæti verið skýringin í þessari eyðslu.
Svo var mér sagt að hægt væri að athuga loftflæðisskynjarann með því að taka hann úr sambandi og hlusta á ganginn í vélinni, ef hann breytist ekkert er hann ekki að gera sitt gagn

Re: E36 eyðsla

PostPosted: Tue 01. Sep 2009 15:20
by BirkirB
JohnnyBanana wrote:
Dóri- wrote:mér finnst 15 full hátt hjá þér, en hvað veit ég kannski keyrirðu bara greitt.
alpinan er í 8-9 utanbæjar og 11-12 innanbæjar og það er 3.3 mótor

þegar ég keyri greitt, sem ég er því miður hættur að gera vegna eyðslu, eyðir hann sirka 25. ég er búinn að skipta um kerti og keypti meirasegja brjálað K&N síukit í hann, sem breytti ekki neinu í eyðslunni, varð bara miklu sprækari og flottara hljóð.

Ætli loftflæðiskynjarinn segi ekki bæ bráðlega, miðað við aðra sem fengu sér svona síur með olíu í..?

Re: E36 eyðsla

PostPosted: Tue 01. Sep 2009 15:47
by JohnnyBanana
Jarðsprengja wrote:
JohnnyBanana wrote:
Dóri- wrote:mér finnst 15 full hátt hjá þér, en hvað veit ég kannski keyrirðu bara greitt.
alpinan er í 8-9 utanbæjar og 11-12 innanbæjar og það er 3.3 mótor

þegar ég keyri greitt, sem ég er því miður hættur að gera vegna eyðslu, eyðir hann sirka 25. ég er búinn að skipta um kerti og keypti meirasegja brjálað K&N síukit í hann, sem breytti ekki neinu í eyðslunni, varð bara miklu sprækari og flottara hljóð.

Ætli loftflæðiskynjarinn segi ekki bæ bráðlega, miðað við aðra sem fengu sér svona síur með olíu í..?

það efast ég stórlega um. við höfum verið með svona síur í mörgum af okkar fjölskyldubílum og alldrei lent í neinu veseni með MAF. enda er búið að margafsanna tengingu milli olíusía og dauðra MAF skynjara í óháðum rannsóknum.

Re: E36 eyðsla

PostPosted: Tue 01. Sep 2009 17:16
by JohnnyBanana
og já eitt enn, veit einhver af hverju það kemur alltaf Inspection og svo rautt og gult ljós í mælaborðið hjá mér og hvað það þýðir?

Re: E36 eyðsla

PostPosted: Tue 01. Sep 2009 18:51
by ValliB
JohnnyBanana wrote:og já eitt enn, veit einhver af hverju það kemur alltaf Inspection og svo rautt og gult ljós í mælaborðið hjá mér og hvað það þýðir?

er ekki verið að benda á olíuskipti?

held að almennar smurþjónustur resetti þetta aldrei(sjaldan)