bmwkraftur.is
https://bmwkraftur.is/spjall/

Hvernig er M30B35 ventlastillt?
https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=7&t=39495
Page 1 of 1

Author:  ömmudriver [ Sun 30. Aug 2009 17:33 ]
Post subject:  Hvernig er M30B35 ventlastillt?

Sælir,

ég finn voða takmarkaðar upplýsingar varðandi það hvernig maður ventlastillir M30B35 og hversu mikið bilið á að vera.

Ég hef aldrei ventlastillt vél sjálfur þannig að öll hjálp er mjög vel þegin :)


Kv,

Author:  sh4rk [ Sun 30. Aug 2009 18:24 ]
Post subject:  Re: Hvernig er M30B35 ventlastillt?

Ventlabilið er 0,30mm

Author:  Stebbtronic [ Sun 30. Aug 2009 18:25 ]
Post subject:  Re: Hvernig er M30B35 ventlastillt?

Þú finnur allt sem þú þarft að vita í manualnum sem jón mar póstaði í hinum þræðinum á bls 104 í pdf skjalinu. Bilið á að vera 0,3mm á kaldri vél eða 0,35 á heitri vél.

Þú losar rónna sem heldur eccentric-hringnum(hjámiðja) á endanum á viðkomandi rockerarm, eccentric hringurinn er sá hluti á rockerarminum sem snertir endann á ventlinum sjálfum. Næst snýrðu knastásnum þangað til að ekkert lift er í gangi á viðkomandi ventil(rocker arm) Þá ætti kamburinn á knastásnum að vísa niður. Þá skellirðu fölernum á milli kambs og rockerarms og snýrð eccentric-hringnum þangað til að hann leggst þétt uppað fölernum þannig að ekkert auka bil er á milli kambs og eccentric-hrings nema bara breiddin á sjálfum fölernum, þá herðiru rónna sem heldur eccentric-hringnum. Svo endurtekurðu þetta á öllum tólf ventlunum :)

Author:  JonFreyr [ Sun 30. Aug 2009 19:18 ]
Post subject:  Re: Hvernig er M30B35 ventlastillt?

Og med köldum mótor er verid ad meina gjörsamlega steindaudur mótor, gamlingjarnir sem hafa rádlagt mér segja ad thú leggir bílnum deginum ádur en thu ætlar ad stilla ventla. Svo kaldur á mótorinn ad vera.

Author:  slapi [ Sun 30. Aug 2009 19:56 ]
Post subject:  Re: Hvernig er M30B35 ventlastillt?

JonFreyr wrote:
Og med köldum mótor er verid ad meina gjörsamlega steindaudur mótor, gamlingjarnir sem hafa rádlagt mér segja ad thú leggir bílnum deginum ádur en thu ætlar ad stilla ventla. Svo kaldur á mótorinn ad vera.


Þetta getur átt við vélar sem eru með mikinn massa , það munar ekki svo miklu á heitum og köldum mótor í þessu tilviki þannig að fyrir mig myndi ég setja hann á 0.3 volgan.
Menn geta alveg prófað að leika sér smá með þessa ventlastillingu , t.d. ef að mótorinn gengur eitthvað aðeins ójafnt er gott að taka ventlabilið upp um 0.05 , það gerir ótrúlega hluti.

Author:  jon mar [ Sun 30. Aug 2009 21:18 ]
Post subject:  Re: Hvernig er M30B35 ventlastillt?

ég er svo sjúkur að ég er með leiðbeiningarnar fyrir þetta í hanskahólfinu hjá mér AT ALL TIMES :lol:

Author:  ömmudriver [ Sun 30. Aug 2009 22:38 ]
Post subject:  Re: Hvernig er M30B35 ventlastillt?

Þakka ykkur kærlega fyrir strákar ég mun kíkja á þetta á morgun eftir vinnu því ég hafði ekki tíma fyrir þetta nú kvöld :)

Og Jón, þú ert alveg ágætur :lol:

Page 1 of 1 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/