Page 1 of 4

hvað er sniðugasta swappið í z3 coupe?

PostPosted: Thu 27. Aug 2009 20:45
by doddi1
er hægt að setja flesta bmw mótora í bílinn hjá mér eða hverjar eru takmarkanirnar?

ef ég væri með gírkassa, rafkerfi og mótor væri þá hægt að setja t.d e39 m5 mótor í hann?

hvað haldiði að yrði sniðugasta swapið?

ég veit voða lítið um þetta :|

Re: hvað er sniðugasta swappið í z3 coupe?

PostPosted: Thu 27. Aug 2009 20:49
by ///M
nýleg amerísk v8 eða s50 held ég

Re: hvað er sniðugasta swappið í z3 coupe?

PostPosted: Thu 27. Aug 2009 20:50
by ingo_GT
Er ekki allt hægt ef viljinn sje fyrri hendi ?

Re: hvað er sniðugasta swappið í z3 coupe?

PostPosted: Thu 27. Aug 2009 20:52
by Mazi!
m50 turbo frá gunna væri sniðugast bara

Re: hvað er sniðugasta swappið í z3 coupe?

PostPosted: Thu 27. Aug 2009 21:05
by birkire
túrbówwww á vélina þína bara

Re: hvað er sniðugasta swappið í z3 coupe?

PostPosted: Thu 27. Aug 2009 21:27
by gstuning
Fyrsta spurningin er

Hversu mörg hestöfl?

Önnur er

Hvernig character viltu?

Þriðja er

How much you got to spend?

Re: hvað er sniðugasta swappið í z3 coupe?

PostPosted: Thu 27. Aug 2009 21:44
by doddi1
gstuning wrote:Fyrsta spurningin er

Hversu mörg hestöfl?

Önnur er

Hvernig character viltu?

Þriðja er

How much you got to spend?


já það er þannig

ok ég væri sáttur með 300hestöfl en meira er oft miklu betra :mrgreen:

karakterinn sem ég vil er bara alveg eins og bíllinn minn er í dag, bara aðeins öflugri... ekki eitthvað svaka túrbó boost sem kemur inn í 4000 snúningum og skellir honum bara strax í spól og útslátt...

bara góða jafna power curve

og ég á ekki slatta af pening en þó eitthvað, kannski til í að eyða miljón í vél, fjöðrun og bremsur

fjöðrun er í neðsta sæti á þeim lista, þannig ef einhverju yrði fórnað þá væri það fjöðrunin til að byrja með.

Re: hvað er sniðugasta swappið í z3 coupe?

PostPosted: Thu 27. Aug 2009 22:38
by Zed III
að setja m5 mótor er major aðgerð, skoðaðu bara þráðinn hjá x5power um e36 á teikniborðinu. m3 mótor væri einfaldari.

Er ekki einfaldast að fara í M bíl bara, t.d. skipta bara z3 coupe upp í m roadster til að fá 300 hö.

Re: hvað er sniðugasta swappið í z3 coupe?

PostPosted: Thu 27. Aug 2009 22:52
by Alpina
Zed III wrote:að setja m5 mótor er major aðgerð, skoðaðu bara þráðinn hjá x5power um e36 á teikniborðinu. m3 mótor væri einfaldari.

Er ekki einfaldast að fara í M bíl bara, t.d. skipta bara z3 coupe upp í m roadster til að fá 300 hö.


Algerlega eina vitið..

Re: hvað er sniðugasta swappið í z3 coupe?

PostPosted: Thu 27. Aug 2009 23:41
by Einarsss
myndi segja túrbó dótið frá gunna, getur eflaust fengið það niðurtjúnnað í 300hö og svissað svo uppí 500hö þegar þig langar.

þú ættir að fá alveg geðveikt power frá ca 3k rpm og allt fyrir neðan það er alveg ásættanlega skemmtilegt power .. þetta eru jú 192hö í grunninn en þau virðast bara vera færri þegar þú hoppar frá því uppí 300 á 1k snúning 8) Þetta er alveg svaðalega skemmtilegt afl.

á low boost(10psi) hjá mér finnst mér þetta næstum vera eins og n/a power .. sérstaklega eftir að ég fór í lægra hlutfall á drifinu sem lengir togið og gírana.

Re: hvað er sniðugasta swappið í z3 coupe?

PostPosted: Fri 28. Aug 2009 00:02
by Jón Ragnar
LSX eitthvað bara 8)

Re: hvað er sniðugasta swappið í z3 coupe?

PostPosted: Fri 28. Aug 2009 00:05
by Stanky
///M wrote:nýleg amerísk v8 eða s50 held ég


Eða skera úr gólfi og fá Usain Bolt til að taka flintstones á þetta...

Re: hvað er sniðugasta swappið í z3 coupe?

PostPosted: Fri 28. Aug 2009 00:05
by doddi1
Alpina wrote:
Zed III wrote:að setja m5 mótor er major aðgerð, skoðaðu bara þráðinn hjá x5power um e36 á teikniborðinu. m3 mótor væri einfaldari.

Er ekki einfaldast að fara í M bíl bara, t.d. skipta bara z3 coupe upp í m roadster til að fá 300 hö.


Algerlega eina vitið..




ég hef bara algerlega engan veginn áhuga á roadster...nenni heldur ekki að flytja Mcoupe inn.

Re: hvað er sniðugasta swappið í z3 coupe?

PostPosted: Fri 28. Aug 2009 00:09
by doddi1
einarsss wrote:myndi segja túrbó dótið frá gunna, getur eflaust fengið það niðurtjúnnað í 300hö og svissað svo uppí 500hö þegar þig langar.

þú ættir að fá alveg geðveikt power frá ca 3k rpm og allt fyrir neðan það er alveg ásættanlega skemmtilegt power .. þetta eru jú 192hö í grunninn en þau virðast bara vera færri þegar þú hoppar frá því uppí 300 á 1k snúning 8) Þetta er alveg svaðalega skemmtilegt afl.

á low boost(10psi) hjá mér finnst mér þetta næstum vera eins og n/a power .. sérstaklega eftir að ég fór í lægra hlutfall á drifinu sem lengir togið og gírana.


en já það kæmi alveg vel til greina ef þetta væri ekki eingöngu hugsað fyrir e30 hjá honum...

Gunni, hvað áttu mikið eftir af skólanum? flyturðu ekki aftur til íslands þegar hann er búinn?

Re: hvað er sniðugasta swappið í z3 coupe?

PostPosted: Fri 28. Aug 2009 00:09
by birkire
Það er nú einn M Coupe á landinu 8) Estoril blau