bmwkraftur.is
https://bmwkraftur.is/spjall/

VH-328 enn og aftur??????
https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=7&t=39388
Page 1 of 4

Author:  andrivalgeirs [ Tue 25. Aug 2009 18:58 ]
Post subject:  VH-328 enn og aftur??????

Sælir, jæja núna er búið að brasa aðeins í bílnum með hjálp frá JARLINUM en engin niðurstaða er kominn fyrir þessu KOKI í honum?

Bíllin gengur fínan hægagang og gengur fínt ef að það er gefið rólega í, þá vinnur hann sig upp að ákveðnum snúning (snúningshraðamælir ótengdur) en svo gjörsamlega KÆFIR hann sig og sprengir upp í loftsíuboxið en helst samt í gangi, en ef það er gefið snöggt inn þá byrjar hann strax á koki, nema að stundum þá virkar hann í botngjöf (þegar hann er orðin heitur) en stundum EKKI.

Þetta byraði allt með því að bíllinn fór að koka stuttu eftir að það var skipt um drif, bíllinn inn í skúr og ég sá að það var farin heddpakkning, þannig að það var skipt um hana og farið með heddið í kistufell og þar var það þrýstiprófað, planað, rennt úr ventlasætum og ventlar renndir og allar pakkningar nýjar í heddi, ný ventlalokspakkning, nýtt kveikjulok og hamar,ný vatnsdæla, tímareim, strekkjarahjól,vatnslás.

Svo var næsta skref að raða öllu saman, gekk vel, tók smá stund en það hafðist að lokum, en allt kom fyrir ekki, bíllinn kokaði ennþá á nákvæmlega sama hátt og hann gerði áður.

Það sem er búið að gera:

Skipt um bensíndælu(og rely fyrir hana)
annar loftflæðiskynjari prófaður
Önnur kveikja sett í
Prófaður annar TPS
ný kerti
Önnur mótortalva
vaacum pungur frá bensínsíu
mældur bensínþrýstingur, kom vel út.
prófaðir aðrir kertaþráðar
ATH neista, hann neistar á öllum
skipt um hægagangspung
Allar slöngur ath. við falskt loft, í lagi

Þannig að þetta er ekkert tengt því hvort að bíllin sé að fá of mikið/of lítið bensín frekar eitthvað kveikjutengt???

En ég er búinn að tappa öllu lofti af honum en samt á hann það til að það sjóði á honum hjá mér 2x, og DREP ég þá strax á honum(gæti verið út af því að það lekur örlítið vatn hjá pungnum sem að vatnlásinn er í).

HJÁLPPPPPPP, ALLAR UPPÁSTUNGUR VEL ÞEGNAR.

þarf að selja bílinn, en það eru allir svo skíthræddir við þessa bilun að enginn þorir að kaupa hann :x
ps. ætla að kaupa nýja bensínsíu á morgun og henda í :roll:

MEÐ BESTU KV. ANDRI 6631346

Author:  ///M [ Tue 25. Aug 2009 19:01 ]
Post subject:  Re: VH-328 enn og aftur??????

Ekki mikið eftir að skipta um... er búið að prufa annan sveifarásskynjara?

Author:  arnibjorn [ Tue 25. Aug 2009 19:01 ]
Post subject:  Re: VH-328 enn og aftur??????

Ég skal kaupa hann á 50k eins og hann er núna og losa þig við allt þetta vesen :)

Author:  andrivalgeirs [ Tue 25. Aug 2009 19:03 ]
Post subject:  Re: VH-328 enn og aftur??????

Frekar fær hann að ROTNA á planinu meðan ég er út á sjó :wink:

Author:  Benzari [ Tue 25. Aug 2009 19:04 ]
Post subject:  Re: VH-328 enn og aftur??????

Eins og þú segir sjálfur,(kveikjutengt) kveikjulokin búin :?:

Author:  andrivalgeirs [ Tue 25. Aug 2009 19:06 ]
Post subject:  Re: VH-328 enn og aftur??????

Þau eru ný :thup:

Author:  andrivalgeirs [ Tue 25. Aug 2009 19:09 ]
Post subject:  Re: VH-328 enn og aftur??????

Spyr mig að einu? getur bíllinn látið svona ef að ég hef stillt millibilið á ventlunum e-h vitlaust, var með blað yfir það (0,25mm á ix mótor) á öllum, minnir mig?????????? væri ekki vitlaus að double checka það.

Author:  andrivalgeirs [ Tue 25. Aug 2009 19:15 ]
Post subject:  Re: VH-328 enn og aftur??????

andrivalgeirs wrote:
Spyr mig að einu? getur bíllinn látið svona ef að ég hef stillt millibilið á ventlunum e-h vitlaust, var með blað yfir það (0,25mm á ix mótor) á öllum, minnir mig?????????? væri ekki vitlaus að double checka það.


Þá er það út úr myndinni, var að tala við einn sérfræðing.

Author:  andrivalgeirs [ Tue 25. Aug 2009 19:21 ]
Post subject:  Re: VH-328 enn og aftur??????

JÆJA hvað halda E30 sérfræðingarnir að sé að plagann??????????

Author:  Axel Jóhann [ Tue 25. Aug 2009 19:46 ]
Post subject:  Re: VH-328 enn og aftur??????

Ertu búinn að prófa annan sveifarás skynjara?


Ef ekki, þá á ég einn úr E30 sem þér er velkomið að prufa um helgina.

Author:  andrivalgeirs [ Tue 25. Aug 2009 19:59 ]
Post subject:  Re: VH-328 enn og aftur??????

Axel Jóhann wrote:
Ertu búinn að prófa annan sveifarás skynjara?


Ef ekki, þá á ég einn úr E30 sem þér er velkomið að prufa um helgina.


Takk fyrir það :thup: hvað er númerið þitt?

Author:  Axel Jóhann [ Tue 25. Aug 2009 20:05 ]
Post subject:  Re: VH-328 enn og aftur??????

695-7205 Hringdu í mig á morgun eftir kl 5 og minntu mig á þetta. Ég kem svo líklegast til RVK á laugardagsmorgun.

Author:  Djofullinn [ Tue 25. Aug 2009 20:39 ]
Post subject:  Re: VH-328 enn og aftur??????

Er búið að prófa annað háspennukefli?

Author:  Lindemann [ Tue 25. Aug 2009 21:11 ]
Post subject:  Re: VH-328 enn og aftur??????

athuga meðháspennukefli og sveifarásskynjara.

nú er ég ekki alveg viss hvernig sveifarásskynjarinn er á þessum mótorum, en á sumum mótorum er honum bara stungið í gat eins og abs skynjari(ekki festur) og ef hann er ekki alveg nógu vel inní þannig það sé gap á milli kasthjóls og skynjara, þá getur það orsakað vandamál.

Author:  300+ [ Tue 25. Aug 2009 21:19 ]
Post subject:  Re: VH-328 enn og aftur??????

Þetta hljómar eins og það sé eitthvað ekki rétt tímað saman, ef hann sprengir upp í loftsíuboxið er annaðhvort bruninn of seinn eða það er svo mikill mótþrýstingur á afgashliðinni(gæti verið vitlausar pakkn. eða snúa ekki rétt).

Er búið að þjöppumæla hann eftir hedd-ævintýrið?

ef að hringir eru orðnir lélegir geta sloppið bensíngufur niður í sveifarhúsið sem berast upp í soggreinina með sveifarhúsönduninni og geta þá skapast aðstæður fyrir bruna þar en mér finnst það frekar ólíklegt.

Dettur annað í hug, á sumum vélum verður svinghjólið að vera rétt tímað m.v stöðu sveifarássins og það fer allt í rugl ef svinghjólinu er snúið um eitt boltagat í aðra hvora áttina, en á öðrum vélum skiptir þetta ekki máli en ég þekki ekki nógu vel inná M20 til að vita hvort það skipti einhverju máli þar.

Page 1 of 4 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/