bmwkraftur.is
https://bmwkraftur.is/spjall/

Vantar hjálp með viðvörunarljós í borði
https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=7&t=39139
Page 1 of 1

Author:  naphoon [ Thu 13. Aug 2009 18:05 ]
Post subject:  Vantar hjálp með viðvörunarljós í borði

Sælir.

Ég er á 2005 320 Sedan bíl og ég fékk einkennileg villuboð í dag. Fann ekki samsvarandi mynd í bókinni né á netinu né heldur að það hafi verið rætt um þetta hérna á spjallinu.
Þetta er ljósamerki sem ég veit ekki hvort merki að ég eigi að skipta um peru eða bara að vara mig við að ljósin séu ekki á.

"Það er merki af perukastara þar sem ljósgeislarnir beinast á ská niður. Inni í ljósinu sjálfu er svo upphrópunarmerki."

Scannið segir mér lítið og þetta kemur ekki fram ef ég keyri það þegar bílinn er ekki í gangi. Hef fundið þrjú merki sem eru mjög mjög svipuð en aldrei eins, og þýða annaðhvort að allt sé í lagi eða að þokuljósin séu á (sem þau eru ekki). Merkilegra er að merkið í bókinni fyirr það að skipta þurfi um peru er mynd af klassískri ljósaperu en ekki svona kastara eða þá næstum alveg eins og geislarnir beint áfram.

Ég hef eiginlega ekkert þurft að eiga við ljósin svo þetta kom svonldið einkennilega við þegar ég sá þetta og gat samt fengið öll (held það, erfitt að sjá það einn) á bílinn.

Endilega ef þið hafið eitthvað um þetta að segja eða kannist við þetta þá væri það vel þegið, þetta virðist ekkert gera en er djö pirrandi.

()
Sælir aftur.

Komin lausn á þessu. Fór og prófaði allar stillingar á ljósunum og þetta virtist vera annað þokuljósið að framan. Greinilegt að þeir hafa ekki skjalað breytinguna i handbókina.

Takk fyrir hjálpina.

Author:  Alpina [ Thu 13. Aug 2009 20:11 ]
Post subject:  Re: Vantar hjálp með viðvörunarljós í borði

Ath,, farðu útúr bílnum og ath, hvort þetta sé stöðuljósapera

( blint skot ,, en hver veit )

Author:  Zed III [ Thu 13. Aug 2009 23:12 ]
Post subject:  Re: Vantar hjálp með viðvörunarljós í borði

eða pera í þokuljósum, þau eru með svona ljós beint niðurávið

Author:  ///M [ Thu 13. Aug 2009 23:14 ]
Post subject:  Re: Vantar hjálp með viðvörunarljós í borði

naphoon wrote:
Scannið segir mér lítið og þetta kemur ekki fram ef ég keyri það þegar bílinn er ekki í gangi.


Keyriru bílinn mikið þegar hann er ekki í gangi? :mrgreen: :santa:

Author:  Axel Jóhann [ Fri 14. Aug 2009 12:17 ]
Post subject:  Re: Vantar hjálp með viðvörunarljós í borði

///M wrote:
naphoon wrote:
Scannið segir mér lítið og þetta kemur ekki fram ef ég keyri það þegar bílinn er ekki í gangi.


Keyriru bílinn mikið þegar hann er ekki í gangi? :mrgreen: :santa:




Keyrir scannið á bílinn. :aww:

Page 1 of 1 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/