Page 1 of 3
Pústsmíði á e36.. hvert skal leita?

Posted:
Thu 06. Aug 2009 20:12
by Maddi..
BJB taka um 30þ fyrir smíðina á meðan Einar áttavilti tekur 90þ! Sem mér finnst full grimmur munur.
Er að fara að detta í M50 swap og vil fá vel soundandi pústkerfi undir þetta.
Re: Pústsmíði á e36.. hvert skal leita?

Posted:
Thu 06. Aug 2009 20:18
by Alpina
Maddi.. wrote:B&B taka um 30þ fyrir smíðina á meðan Einar áttavilti tekur 90þ! Sem mér finnst full grimmur munur.
Er að fara að detta í M50 swap og vil fá vel soundandi pústkerfi undir þetta.
90 er hellingur,,
en 30 er ekki breik ,, þ.e.a.s. frá eldgrein og aftur-úr
þetta er eitthvað skrítið
60 held ég að hljóti að vera lágmark
Re: Pústsmíði á e36.. hvert skal leita?

Posted:
Thu 06. Aug 2009 20:30
by Maddi..
Jáá mér fannst þetta furðu lítill peningur... en ég hringdi fyrir 2-3 mánuðum að kanna þetta og fékk þetta svar.
Einar sagðist taka 200.000+ plús fyrir smíð á pústi og flækjum, og þá væri pústsmíðin allavega 90þ.
Minnir alveg örugglega að BJB hafi sagt mér 30þ..
Re: Pústsmíði á e36.. hvert skal leita?

Posted:
Thu 06. Aug 2009 20:32
by Maddi..
Fann upplýsingar á heimasíðunni þeirra...

Re: Pústsmíði á e36.. hvert skal leita?

Posted:
Thu 06. Aug 2009 20:40
by Einarsss
þetta er bara vinna við að setja orginal/aftermarket kerfi á bílinn svo þarftu að bæta við kostnaðinum á pörtunum og vonast til að þeir séu til.
´
Þeir smíðuðu 3" kerfi frá downpipe með túbu og kút á einhvern 70kall fyrir mig vorið 2008
og ég var hjá þeim í fyrradag og var settur undir aftasti kútur og smíði frá eldgreinum, kostaði svolítið meira en 30k

Re: Pústsmíði á e36.. hvert skal leita?

Posted:
Thu 06. Aug 2009 20:44
by Maddi..
Nú jæja... þú vilt þá meina að munurinn sé ekkert hrikalegur á Einari og BJB?
Re: Pústsmíði á e36.. hvert skal leita?

Posted:
Thu 06. Aug 2009 21:08
by Einarsss
örugglega svipaðir í verði, ég hef tekið bjb umfram Einar vegna þess að menn eru annað hvort mega sáttir við Einar eða mjög ósáttir
Re: Pústsmíði á e36.. hvert skal leita?

Posted:
Thu 06. Aug 2009 22:51
by sh4rk
Ég lét Einar smíða fyrir mig og ég mæli ekki með því bara ALLS EKKi það eina sem er flott er hljóðið, og svo var ekki gert það sem var umbeðið eins og að setja flangsa þannig að ég þyrfti ekki að taka flækjunar af vélini og skilja þær eftir í húddinu á bílnum og svo gæti ég svo sem lengi talið ókostina sem hann gerði á pústinu hjá mér þannig að ég mundi frekar fara til BJB í þínum sporum
Re: Pústsmíði á e36.. hvert skal leita?

Posted:
Fri 07. Aug 2009 00:11
by Maddi..
Takk fyrir ábendinguna.

Fer til BJB örugglega, af sömu ástæðum og Einar... annaðhvort virðast menn mjög sáttir eða mjög ósáttir.
Re: Pústsmíði á e36.. hvert skal leita?

Posted:
Fri 07. Aug 2009 00:17
by birkire
Veit ekki alveg með einar.. gamla sjöan mín var með heilt kerfi sérsmíðað af honum. Endakúturinn var ljótur og stóð alltof langt aftanúr stuðuranum, hljómaði asnalega.. allt pústkerfið var 1piece og níþungt. Suðurnar og smíðin var hinsvegar mjög flott.
Re: Pústsmíði á e36.. hvert skal leita?

Posted:
Fri 07. Aug 2009 08:58
by Zed III
Ég notaði BJB eftir mitt m50 swap og var mjög sáttur við soundið. Það er einn þarna hjá þeim sem er afar góður, Siggi ef ég man rétt, og spurning fyrir þig að reyna að panta hann.
Eina klúðrið var að ég hefði átt að biðja um "oo" endakút, en það skrifast algjörlega á sjálfan mig.
Re: Pústsmíði á e36.. hvert skal leita?

Posted:
Fri 07. Aug 2009 10:00
by ValliFudd
Zed III wrote:Ég notaði BJB eftir mitt m50 swap og var mjög sáttur við soundið. Það er einn þarna hjá þeim sem er afar góður, Siggi ef ég man rétt, og spurning fyrir þig að reyna að panta hann.
Eina klúðrið var að ég hefði átt að biðja um "oo" endakút, en það skrifast algjörlega á sjálfan mig.
Siggi er klárlega snillingurinn! Hann er búinn að redda mér oft

Re: Pústsmíði á e36.. hvert skal leita?

Posted:
Fri 07. Aug 2009 10:03
by arnibjorn
Alltaf svo fyndið að lesa pústþræði á kraftinum.
Hefur enginn aldrei nokkurntíman farið eitthvað annað en Einar áttavilti eða BJB?
Hefur einhver prufað Kvikk t.d.?
Spurning um að hugsa aðeins út fyrir ramman og jafnvel fá betra verð á öðrum stað.
Þetta er nú bara púst undir hundgamlan BMW

Re: Pústsmíði á e36.. hvert skal leita?

Posted:
Fri 07. Aug 2009 10:10
by Svezel
Siggi er nánast eini maðurinn hjá BJB sem er talandi við, nema kannski sonur eigandans. Siggi er alltaf kurteis, hjálpsamur og hefur áhuga á að leysa hlutina eða redda manni í neyð auk þess að vera flinkur smiður. Hinir eru bara latir fýlupúkar með enga þjónustulund.
Prófaðu líka að tala við pústverkstæðið Ás í Borgartúninu, þeir hafa reynst mér vel og oft auðveldara að fá tíma hjá þeim
Re: Pústsmíði á e36.. hvert skal leita?

Posted:
Fri 07. Aug 2009 11:44
by Einarsss
Held að Siggi sjá um sérsmíðina hjá bjb, hann sá um 3" ´túrbó pústið, bara sáttur með það
