Page 1 of 1

Allt í botn!! HJÁLP

PostPosted: Sun 02. Aug 2009 22:58
by BMWE39
Ég er með Bmw 525 diesel 2003 árg.

Um daginn þá byrjaði hann að haga sér undarlega svo ég setti hann í park og hann gaf bara allt í botn og ég tók lykilinn úr samt hélt hann áfram lengi, svo ég fór með hann á vekstæði og þeir skiptu um þrjár dísur svo núna er ég búinn að keyra hann ca 200 km og sama skeður en þó ekki eins lengi.

Hvað dettur mönnum í hug að sé að ske?

Endilega svara sem fyrst..:D

Re: Allt í botn!! HJÁLP

PostPosted: Sun 02. Aug 2009 23:14
by Jón Ragnar
Búið að skoða inngjafarbarkann?

Re: Allt í botn!! HJÁLP

PostPosted: Mon 03. Aug 2009 01:00
by Dóri-
John Rogers wrote:Búið að skoða inngjafarbarkann?


er þetta ekki drive by wire...




Tekurðu eftir reyk þegar hann er fastur á snúning ?

Re: Allt í botn!! HJÁLP

PostPosted: Mon 03. Aug 2009 01:21
by BMWE39
Já það kemur mikill reykur og já ég gleymdi að segja eitt ég svissaði af bílnum og hélt á lyklonum og hann gengur áfram.

Re: Allt í botn!! HJÁLP

PostPosted: Mon 03. Aug 2009 07:36
by Alpina
Þetta gerðist með 530d hjá B&L á sínum tíma ,, nema að hann festist í botnimeð hrikalegum afleiðingum

grunar að það sé eitthvað klikk í önduninni.. það er smurolia og leifar af diesel sem bíllinn er að ganga fyrir eftir að þú drepur á ...hringdu í eðalbíla

www.edalbilar.is biddu um Bjarka,, og hann þekkir þetta vandamál