Page 1 of 1

E21 323i alternator - vantar upplýsingar.

PostPosted: Mon 05. Jan 2004 18:30
by bebecar
Eru einhverjir E21 snillingar eftir á spjallinu?

Alternatorinn er örlítið laus á gamla hvíta þannig að reiminn er slök sem þýðir að þegar úti er veður vont þá snuðar hún og hann hleður ekki almennilega og er því stundum tæpur í gang.

ÉG ætla að reyna að festa þetta en veit sosem ekki hvort ég get það. Gæti verið brotin suða eða vantar kannski bara skrúfu??? Einhver með reynslu af þessu?

PostPosted: Mon 05. Jan 2004 19:09
by gstuning
Það þarf líklega að herða þetta bara,

eða nýja reim

það geta allir gert þetta

PostPosted: Mon 05. Jan 2004 20:27
by Stefan325i
Já eða næstum allir :?

Ég myndi fara til T:B gæti verið splinterinn í Strekju kúplinguni, sem er tengdur við vatnsgangin fyrir hæga ganginn.

PostPosted: Mon 05. Jan 2004 20:35
by Raggi M5
Sorry að ég skuli fara off-topic en hvað er að frétta af 325i-Turbo Stefán?

PostPosted: Mon 05. Jan 2004 22:48
by bebecar
Splinter what??? :D Ég kíkti á þetta, róin sem herðir er slöpp og líklega sleðinn líka og svo situr þetta skakkt á fóðringunum þannig að kannski þarf að skipta um þær líka. Náði allavega að herða þetta aðeins betur þannig að hann hlaði almennilega, veit ekki hve lengi það heldur hinsvegar.

Alternatorinn er skakkur - er ekki ólíklegt að hann réttist ef ég næ að skipta um róna og strekkja þetta meira? Myndi hann ekki frekar skekkjast meira?

PostPosted: Tue 06. Jan 2004 17:19
by saemi
thad er althekkt ad fodringarnar eydileggist. Algjort pain. Thad er haegt ad fa urethane fodringar, en hundleidinlegt ad skipta um tetta

PostPosted: Tue 06. Jan 2004 19:29
by bebecar
Shiiii - er þetta semsagt meira mál en það lítur út fyrir að vera?

PostPosted: Wed 07. Jan 2004 20:31
by saemi
að skipta um þessar fóðringar já. En þetta er ekkert geðveikt mál. Það þarf að hafa pressu til að gera þetta. Þetta er bara ekki tveggja bjóra heimadæmi í skúrnum. Ég er búinn að reyna það :wink:

PostPosted: Wed 07. Jan 2004 20:49
by bebecar
Bum air... Verð ég þá ekki bara að fara með hann í TB?