bmwkraftur.is https://bmwkraftur.is/spjall/ |
|
318i e46 '02 vesen eftir smurningu https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=7&t=38923 |
Page 1 of 1 |
Author: | Andri Fannar [ Sat 01. Aug 2009 02:17 ] |
Post subject: | 318i e46 '02 vesen eftir smurningu |
Sælir, ég er með 318i e46 2002 facelift bíl með n42b20 vélina (2L). Ekinn 83 þús. Fór með hann í smurningu í dag og það var skipt um olíu og allt þetta, allt í góðu. Keyri heim, ekkert vesen og svo keyri ég um kvöldið og þá finnst mér lyktin innan í bílnum frekar skrýtin og hún fer ekki þó ég opni rúðuna né neitt. Stoppa síðan og þá er þessi lykt sem er svona blanda af einhverri olíu+hita+brunalykt og ég opna húddið og það er einhver reykur upp úr svæðinu sem sést á mynd númer 3. Vélin löðrandi í olíu í kringum Castrol tappann þar sem olían er sett í og á stæðinu eru þrír pínulitlir pollar. Sést best á myndunum hvernig vélin lítur út. Ég sá þegar þeir lokuðu húddinu eftir smurninguna og það var allt tandurhreint í vélinni. Hvað er málið? ![]() ![]() ![]() ![]() ![]() ![]() (sést að það hefur slest upp á húddið) ![]() ![]() |
Author: | Einsii [ Sat 01. Aug 2009 12:29 ] |
Post subject: | Re: 318i e46 '02 vesen eftir smurningu |
Tappinn skakkur á? |
Author: | maxel [ Sat 01. Aug 2009 13:17 ] |
Post subject: | Re: 318i e46 '02 vesen eftir smurningu |
Dettur í hug að sían sé ekki nógu hert hjá þér. Allavega er olía að sullast útum allt (no shit) sem að bendir á lyktina líka (brennur á pústinu). |
Author: | Andri Fannar [ Sat 01. Aug 2009 14:03 ] |
Post subject: | Re: 318i e46 '02 vesen eftir smurningu |
'Eg profadi ad skrufa lokid betur a en tad virdist ekki hafa lagad tetta, og maxel, tad er greinilegt held eg ad olian kemur upp um Castrol lokid, ekki tar sem oliusian er, tar er eiginlega engin bleyta. |
Author: | demi [ Sat 01. Aug 2009 15:11 ] |
Post subject: | Re: 318i e46 '02 vesen eftir smurningu |
ferð með hann í smurstöðina og biður þá vinsamlegast að redda þessu |
Author: | gardara [ Sat 01. Aug 2009 20:14 ] |
Post subject: | Re: 318i e46 '02 vesen eftir smurningu |
Vantar ekki gúmmíhringinn þarna hjá olíusíunni? Hann ætti að þétta og loka þessu.... Er reyndar ekki með þennan gúmmíhring sjálfur, og hann virðist ekki skipta máli, tók hann úr og gleymdi að setja nýja í ![]() |
Author: | Andri Fannar [ Sat 01. Aug 2009 21:27 ] |
Post subject: | Re: 318i e46 '02 vesen eftir smurningu |
Málið er leyst, smurstöðin var lokuð en ég hringdi út aðalmanninn þarna og hann leit á þetta. Hann þreif alla vélina og fiktaði eitthvað í lokinu og þétti það, ekkert vandamál með þetta so far. ![]() Top class þjónusta að redda þessu svona ![]() |
Author: | Jón Ragnar [ Sun 02. Aug 2009 19:24 ] |
Post subject: | Re: 318i e46 '02 vesen eftir smurningu |
assi wrote: Málið er leyst, smurstöðin var lokuð en ég hringdi út aðalmanninn þarna og hann leit á þetta. Hann þreif alla vélina og fiktaði eitthvað í lokinu og þétti það, ekkert vandamál með þetta so far. ![]() Top class þjónusta að redda þessu svona ![]() ![]() |
Page 1 of 1 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |