Page 1 of 1

Vangaveltur um loftflæðimæli

PostPosted: Sat 25. Jul 2009 19:17
by Dóri-
Ég er ekki með loftflæðimæli í 325i bílnum hjá mér reyndar hef aldrei verið með loftflæðimæli við þessa vél.

Er ég að tapa einhverju afli á því að runna hann án AFM ? Finnst eins og hann skorti afl á lægri snúning eins og hann er.

búinn að reyna að googla þetta :thup:

Re: Vangaveltur um loftflæðimæli

PostPosted: Sat 25. Jul 2009 21:06
by slapi
Hugsa að þú tapir engu afli á hærri snúning en gildið frá AFM vantar nátturulega inn í myndina sem getur orsakað eins og þú lýsir ekki fullri vinnslu á lægri snúning.
En um leið og þetta er komið yfir 3500-4000 sn fer þetta að skipta minna máli.
Þetta er reynsla mín að keyra bíla sem er búið að taka AFM úr sambandi og ekki búið að mappa það inn í myndina.

Ef þú leitar að Alpha-n ,(varð voða tískuorð eftir síðustu heimsókn Mr.X , sá þetta aldrei hér áður) hér á spjallinu muntu finna eitthvað af greinum bæði frá gstuning minnir mig og síðan flott writeup frá X-inu um að mappa vélar MAF lausar hverjir eru kostirnir og gallar osfrv.

Re: Vangaveltur um loftflæðimæli

PostPosted: Mon 27. Jul 2009 01:21
by Dóri-
okey ég setti AFM í apparatið og þá byrjaði hann á að ganga frekar illa, leyfði honum að ganga í 15-20mín og þá skánaði hann aðeins, en þetta lýsir sér þannig að ég gef honum upp í svona 1/3 af gjöf og hann tekur ekkert við sér og svo rétt eftir 1/3 þá fer hann að sprengja.
Eins og hann sé að fá bensín en bara stundum neista... svo dettur hann út í keyrslu eins og honum hentar...
:argh:

Re: Vangaveltur um loftflæðimæli

PostPosted: Mon 27. Jul 2009 12:09
by dabbiso0
Er ekki góður leikur hjá þér að fá sér bara nýjan AFM?