Page 1 of 2
E39 þungur í stýri og rásar mikið

Posted:
Fri 24. Jul 2009 01:54
by Joker
sælir
Er með E39 og hann er allveg rosalega þungur í stýri, veit einhver hvað vandamálið gæti verið?
Svo rásar hann mjög mikið þegar hann dettur ofaní hjólför. dekkjar stærðin er 255. 35R og hann er á 19" felgum er það bara það hvað dekkin eru breið? eða hvað?
með fyrir fram þökk:D
Re: E39 þungur í stýri og rásar mikið

Posted:
Fri 24. Jul 2009 07:36
by dabbiso0
það er eðlilegt að hann rási á svona breiðu... var með 245 allan hringinn.. og það var pain.
Núna runna ég 225.. og það er allt annað
Þungur í stýri?

Re: E39 þungur í stýri og rásar mikið

Posted:
Fri 24. Jul 2009 08:31
by birkire
Eru þetta ekki bara mökkþungar felgur ? Prófaðu minni felgur undir að framan allavega til að tjekka á þessu með stýrið
Re: E39 þungur í stýri og rásar mikið

Posted:
Fri 24. Jul 2009 08:56
by Zed III
Stærð dekkja skipta máli, loftþrýstirngur einnig og svo stífurnar (ef það er mikið slit í þeim verður þetta allt laust í sér)
Re: E39 þungur í stýri og rásar mikið

Posted:
Fri 24. Jul 2009 09:29
by Mazi!
ég er rásandi útum allt með sportmax á e30 bara óþægilegt snemma á morgnana þegar maður er að reyna helst að sofa undir stýri en ekki ríghalda bílnum kjurrum

Re: E39 þungur í stýri og rásar mikið

Posted:
Fri 24. Jul 2009 11:57
by gunnar
Mazi! wrote:ég er rásandi útum allt með sportmax á e30 bara óþægilegt snemma á morgnana þegar maður er að reyna helst að sofa undir stýri en ekki ríghalda bílnum kjurrum

Er nú bara ánægður að bíllinn haldi þér vakandi svo þú sért nú ekki sofandi undir stýri

Re: E39 þungur í stýri og rásar mikið

Posted:
Fri 24. Jul 2009 12:13
by Hannsi
Held barasta að stýrisdælan sé farinn hjá þér. Minn er líka svona og erum að tala um Mega stíft Sumar stelpur gátu ekki keyrt bíllinn minn það var svo stíft.
Re: E39 þungur í stýri og rásar mikið

Posted:
Fri 24. Jul 2009 12:36
by slapi
Ef að bílarnir ykkar eru búnir Servotronic þá getur verið bilun í því kerfi.
Hef aldrei heyrt um vökvastýrisdælur fara nema þegar þær eru búnar að rífa sig og þá er komið gott hljóð í þær.
Re: E39 þungur í stýri og rásar mikið

Posted:
Fri 24. Jul 2009 13:31
by Joker
Hannsi wrote:Held barasta að stýrisdælan sé farinn hjá þér. Minn er líka svona og erum að tala um Mega stíft Sumar stelpur gátu ekki keyrt bíllinn minn það var svo stíft.
takk fyrir góð svör
en já mig grunar það helst, bíllinn er allveg venjulegur þegar þú ert kominn á smá ferð, en þegar hann er á litlum hraða og lágum snúning(15-) þá er hann suddalega þungur í stýri
Re: E39 þungur í stýri og rásar mikið

Posted:
Fri 24. Jul 2009 13:33
by arnibjorn
Mazi! wrote:ég er rásandi útum allt með sportmax á e30 bara óþægilegt snemma á morgnana þegar maður er að reyna helst að sofa undir stýri en ekki ríghalda bílnum kjurrum

Haha segir maðurinn sem er að fara rúnta um á 400hp bíl .
Safe

Re: E39 þungur í stýri og rásar mikið

Posted:
Fri 24. Jul 2009 14:44
by Hannsi
slapi wrote:Ef að bílarnir ykkar eru búnir Servotronic þá getur verið bilun í því kerfi.
Hef aldrei heyrt um vökvastýrisdælur fara nema þegar þær eru búnar að rífa sig og þá er komið gott hljóð í þær.
Samkvæmt tölvunni sem BogL voru með var ekkert að því hjá mér. Og sammt þungt stýrið.
Re: E39 þungur í stýri og rásar mikið

Posted:
Fri 24. Jul 2009 15:04
by dabbiso0
Hannsi wrote:slapi wrote:Ef að bílarnir ykkar eru búnir Servotronic þá getur verið bilun í því kerfi.
Hef aldrei heyrt um vökvastýrisdælur fara nema þegar þær eru búnar að rífa sig og þá er komið gott hljóð í þær.
Samkvæmt tölvunni sem BogL voru með var ekkert að því hjá mér. Og sammt þungt stýrið.
Ok, eru umræddir bílar s.s 540 græjur? stýrismaskínan er öðruvísi í öllum hinum bílunum
v8 e39 =
http://en.wikipedia.org/wiki/Recirculating_balli6 & i4 e39 =
http://en.wikipedia.org/wiki/Rack_and_pinion
Re: E39 þungur í stýri og rásar mikið

Posted:
Fri 24. Jul 2009 18:23
by Joker
Ég er á 540 bíl já.
Re: E39 þungur í stýri og rásar mikið

Posted:
Sun 26. Jul 2009 14:59
by durti
Það er líklega sama vandamál með minn bíl .. hann hefur verið þungur í stýrinu síðan ég fékk hann.
Fór í tækniþjónustu bifreiða þegar ég fekk hann og þeir reyndu einhvað að stilla og græja en það breyttist ekkert.
Búinn að skipta um atf vökvann á stýrinu og ný reim.
Er ekki einhver sem veit hvað þetta er ?
Re: E39 þungur í stýri og rásar mikið

Posted:
Sun 26. Jul 2009 15:04
by slapi
Ef að þetta eru bílar með servotronic myndi ég láta B&L lesa hann og sjá hvort það sé einhver villa á servotronic.