bmwkraftur.is
https://bmwkraftur.is/spjall/

Vacume lagnir fyrir map, wastegate og boost controller
https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=7&t=38661
Page 1 of 1

Author:  Svezel [ Thu 16. Jul 2009 14:03 ]
Post subject:  Vacume lagnir fyrir map, wastegate og boost controller

Ég er að klára vacume/boost lagnirnar í turbo og er að velta fyrir mér hvernig ég eigi að græja þetta

Boost "merkið" fæ ég af nipplinum af túrbínunni og í einföldum heimi tengi ég það bara beint í wastegate.

En ég verð með boost controller (bleeder valve) á milli til að plata wastegate gorminn til að hleypa seinna svo ég myndi þá bara setja hann þar á milli og leiða "bleedið" í eitthvert annað ekki satt?

Svo flækist málið ennþá meira þegar ég vil náttúrlega fylgjast með boostinu og vil fá annað merkið í Zetronix map skynjarann og hitt í Megasquirt.

Get ég bara húrrað endalaust af T-stikkjum þarna á milli eða ætti ég að snitta mér nippil í lögnina eftir IC og setja T-stikki þar til að splitta í ZT-2 og MS?

Jæja turbo gurus, help me out :)

Author:  gstuning [ Thu 16. Jul 2009 14:13 ]
Post subject:  Re: Vacume lagnir fyrir map, wastegate og boost controller

Þetta verður að vera svona..


Búnaður sem er keyrður af loftflæði enn ekki loftþrýsting þarf að hafa sitt eigið boost/vacuum merki, eða er ekki tengt í MAP skynjara tölvunar/logging annars myndast rangar mælingar af bensíntölvunni.

Þetta er búnaður eins og BOV og Wastegate.

Wastegate:

Tengja frá þrýstihlið túrbinu að wastegate(eða soggrein) . Tengir blæði ventilinn þar inní og hann lekur þá þrýsting þar á milli beint í andrúmsloftið þetta gefur þá falskann þrýsting til wastegates.

MAP skynjari MS eða ZT2:
Ég myndi helst tengja þá í soggrein eða í versta falli T-a af vacuum línunni í bensín þrýstijafnarann.
Þú kemst ekki mjög langt ef þú tengir þetta þrýstimerki fyrir utan soggrein(IC langir sem dæmi).

Author:  Einarsss [ Thu 16. Jul 2009 14:16 ]
Post subject:  Re: Vacume lagnir fyrir map, wastegate og boost controller

túrbína---->boost controller---> wastegate, bleedið lætur þú bara blása útí loftið

Svo er best að vera með sér línu fyrir það sem þú þarft að setja í ... þeas báðar tölvurnar, map skynjarann

Ég var með fyrst 2 T stykki á línunni frá intakemanifoldinu yfir í FPR og virkaði fínt og þessi T fóru í BOV og MAP.

Hins vegar er ég með núna sér línu fyrir BOV, sér línu fyrir boost mæli og svo T stykki fyrir MAP sem er á milli intakemanifold og FPR

Author:  Svezel [ Thu 16. Jul 2009 14:32 ]
Post subject:  Re: Vacume lagnir fyrir map, wastegate og boost controller

Cool, takk fyrir skjót svör, á græja ég bara map skynjarana í sömu lögn og fer í FPR.

Styttist fyrstu gagnsetnginu á M50 turbo :D

Author:  Einarsss [ Thu 16. Jul 2009 16:50 ]
Post subject:  Re: Vacume lagnir fyrir map, wastegate og boost controller

Svezel wrote:
Cool, takk fyrir skjót svör, á græja ég bara map skynjarana í sömu lögn og fer í FPR.

Styttist fyrstu gagnsetnginu á M50 turbo :D



hann er þannig hjá mér og Gunni kvartar ekki amk hehe

Muna að hafa video cameru við hendina á fyrsta starti :)

Author:  arnibjorn [ Thu 16. Jul 2009 16:54 ]
Post subject:  Re: Vacume lagnir fyrir map, wastegate og boost controller

einarsss wrote:
Svezel wrote:
Cool, takk fyrir skjót svör, á græja ég bara map skynjarana í sömu lögn og fer í FPR.

Styttist fyrstu gagnsetnginu á M50 turbo :D



hann er þannig hjá mér og Gunni kvartar ekki amk hehe

Muna að hafa video cameru við hendina á fyrsta starti :)


Ég heima live view.

Author:  maxel [ Fri 17. Jul 2009 00:29 ]
Post subject:  Re: Vacume lagnir fyrir map, wastegate og boost controller

Það er eitthvað hérna, veit ekki hvort þetta hjálpar...
http://www.roadraceengineering.com/greddy_profecb2.htm

Page 1 of 1 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/