Page 1 of 2

Vesen á e30 325

PostPosted: Thu 16. Jul 2009 00:27
by Skúli
Sælir.
Er með e30 316 með m20b25.

Vandamál 1: Fyrst er þetta þannig að þegar ég gef honum venjulega inn, þá kokar hann. En ef ég stíg hann í botn þá mökk virkar hann.
Síðan hætti bensíndælan að dæla bensíni, þannig ég skipti um dælu í dag og eftir það gengur hann alveg NÁKVÆMLEGA eins.
Þurfti að beintengja dæluna því hún kveikir ekki á sér þegar maður startar.
Ég er búinn að prófa að skipta um loftflæðiskynjara og búinn að athuga jörðina, en þetta virðist ekki hafa nein áhrif.

Vandamál 2: Bíllinn ofhitar sig alltaf. Mér var sagt að það væri vitlaus vatnslás í bílnum þannig ég tók hann úr, en hann ofhitar sig samt.

:thdown:

Einhverjar hugmyndir??

Re: Vesen á e30 325

PostPosted: Thu 16. Jul 2009 00:31
by Axel Jóhann
Vatnsdæla, loft inná kerfinu.

Re: Vesen á e30 325

PostPosted: Thu 16. Jul 2009 09:37
by gstuning
m20 er ekki hægt að runna án vatnslás.


Þegar þú segir í botn, er það ALVEG í botn eða geturru gefið um 80% í botn og hann "mökk" virkar.

Re: Vesen á e30 325

PostPosted: Thu 16. Jul 2009 13:31
by Skúli
gstuning wrote:m20 er ekki hægt að runna án vatnslás.


Þegar þú segir í botn, er það ALVEG í botn eða geturru gefið um 80% í botn og hann "mökk" virkar.


Það er bara ALVEG í botn. Hefuru einhverja hugmynd hvað þetta getur verið???
Hvað á ég að segja niðrí bílanaust til að fá réttan vatnslás? "daginn, fá vatnslás í m20b25 í e30" ?

Re: Vesen á e30 325

PostPosted: Thu 16. Jul 2009 13:53
by gstuning
" Vatnslás í BMW 325i ´89 "

Það er næstum alveg bókað vacuum leki í gangi hjá þér

Re: Vesen á e30 325

PostPosted: Thu 16. Jul 2009 13:54
by Einarsss
á til nýjan vatnslás fyrir þig ef þú vilt á 2500kr


892-4504 Einar

Re: Vesen á e30 325

PostPosted: Fri 17. Jul 2009 00:02
by Skúli
Jæja kominn nýr vatnslás og hann er ennþá að ofhitna. Er búinn að prófa að sprauta startspreyi hér og þar og gangurinn breytist ekkert við það. Nennir einhver sérfræðingur að kíkja á mig uppí Árbæ á morgun? Get borgað ef hann finnur útúr þessu :thup:

Re: Vesen á e30 325

PostPosted: Fri 17. Jul 2009 00:04
by Alpina
Er eitthvað öðruvísi lykt úr pústinu osfrv

Re: Vesen á e30 325

PostPosted: Fri 17. Jul 2009 00:10
by Skúli
Alpina wrote:Er eitthvað öðruvísi lykt úr pústinu osfrv


Nei það held ég ekki, headpakkningin er ekki farin í honum, enda er hún glæný

Re: Vesen á e30 325

PostPosted: Fri 17. Jul 2009 00:11
by arnibjorn
Hvaða bíll er þetta?

Re: Vesen á e30 325

PostPosted: Fri 17. Jul 2009 00:12
by GunniT
gamli búa

Re: Vesen á e30 325

PostPosted: Fri 17. Jul 2009 00:13
by arnibjorn
GunniT wrote:gamli búa

Útskýrir margt. :lol:

Re: Vesen á e30 325

PostPosted: Fri 17. Jul 2009 00:14
by GunniT
arnibjorn wrote:
GunniT wrote:gamli búa

Útskýrir margt. :lol:


jebb

Re: Vesen á e30 325

PostPosted: Fri 17. Jul 2009 01:17
by ingo_GT
Þetta vesinn hljómar mjög svipað og á mínu,Og þetta var/er vacuum leki hjá mér

Var búinn að laga þetta hjá mér en þarf að fara yfir allar slöngur í húddinnu aftur

Mæli með því að þú fari yfir allar slöngur í húddinnu.
Allveg fáranlegt hvað 1 lítil slánga getur örsakað svona stórt vesinn eins og gerðist hjá mér um daginn :lol:

Re: Vesen á e30 325

PostPosted: Sun 19. Jul 2009 23:39
by andrivalgeirs
sælir drengir, hvar er algengast vaacum leki, búinn að fara yfir allar slöngur og flestar þeirra eru NÝJAR, DETTUR YKKUR Í HUG ÖNNUR ÁSTÆÐA? og bensíndælan er hætt að dæla er það ekki pottþétt rely og hvaða rely þá? verð að fara koma honum í gang í fríinu... :|