Er með e30 316 með m20b25.
Vandamál 1: Fyrst er þetta þannig að þegar ég gef honum venjulega inn, þá kokar hann. En ef ég stíg hann í botn þá mökk virkar hann.
Síðan hætti bensíndælan að dæla bensíni, þannig ég skipti um dælu í dag og eftir það gengur hann alveg NÁKVÆMLEGA eins.
Þurfti að beintengja dæluna því hún kveikir ekki á sér þegar maður startar.
Ég er búinn að prófa að skipta um loftflæðiskynjara og búinn að athuga jörðina, en þetta virðist ekki hafa nein áhrif.
Vandamál 2: Bíllinn ofhitar sig alltaf. Mér var sagt að það væri vitlaus vatnslás í bílnum þannig ég tók hann úr, en hann ofhitar sig samt.
Einhverjar hugmyndir??





