Page 1 of 1

750 V12 véla og sjálfskiptinga skipti næstu helgi.

PostPosted: Thu 16. Jul 2009 00:18
by sissco
Sælir Kraft kallar.

Mig vantar smá ráð ef einhver lumar á þeim.

Ég var að versla mér 2.stk. 750 bíla og ætla millifæra mótor og skiptinguna úr öðrum yfir í hinn um helgina.

Er reyndar búinn að fynna Work shop repair manual fyrir þessa bíla ásamt öðrum á netinu. (Hef það til hliðsjónar)

Vantar því eiginlega að vita hvort einhver hér hafi farið í svona æfingar, og þá hvort einhver stór vandamál hafi komið upp eða hvort ég þurfi einhver sér verkfæri sem eru ekki til á venjulegu verkstæði.

Planið er að taka skiptinguna niður fyrst og svo mótorinn upp úr. Er nokkur leið að taka þetta tvennt saman upp úr ?

Svo smá fyrir þá sem vilja gera við sjálfir.
Hér fáið þið viðgerðar bækur á netinu fyrir haug af BMW bílum !
http://www.bmwtechinfo.com/repair/main/

:thup:

Re: 750 V12 véla og sjálfskiptinga skipti næstu helgi.

PostPosted: Thu 16. Jul 2009 00:28
by ///MR HUNG
Er ekki bara lang þægilegast að slaka öllu ruslinu niður í einu lagi?

Re: 750 V12 véla og sjálfskiptinga skipti næstu helgi.

PostPosted: Thu 16. Jul 2009 00:38
by sissco
Ég þarf að hafa báða bílana með fram hjólin undir.
Held nefnilega að allt hjólastellið þurfi að fara undan ef þetta er tekið neðan frá.

Set parta bílinn fyrst á lyftuna, ríf allt úr honum og þarf svo að koma honum út á öllum hjólum til að hægt sé að draga hann burt.

Re: 750 V12 véla og sjálfskiptinga skipti næstu helgi.

PostPosted: Thu 16. Jul 2009 00:40
by ///MR HUNG
Best að slaka stellinu með mótor og öllu undan og vippa því undir hinn.

Re: 750 V12 véla og sjálfskiptinga skipti næstu helgi.

PostPosted: Thu 16. Jul 2009 00:53
by sissco
Það gæti orðið vesen að koma parta bílnum af lyftunni og út af verkstæðinu með engum hjólabúnaði að framan. :?
Þarf nefnilega að koma hinum bílnum á sömu lyftu þegar það er búið að rífa parta bílinn.

Annars ef ég hefði 2. lyftur þá væri ekki spurning að setja sitthvorn bílinn á lyfturnar hlið við hlið og færa allt á milli.

Re: 750 V12 véla og sjálfskiptinga skipti næstu helgi.

PostPosted: Thu 16. Jul 2009 06:09
by maxel
Settu bara eitthvað bretti með hjólum undir bílinn þegar þú ert búin að taka stellið af og færðu hann þannig..

Re: 750 V12 véla og sjálfskiptinga skipti næstu helgi.

PostPosted: Fri 17. Jul 2009 02:29
by sissco
Takk fyrir svörinn kappar.

Ég stefni þá á að taka allt undan ef ég hef kost á því.

Re: 750 V12 véla og sjálfskiptinga skipti næstu helgi.

PostPosted: Fri 17. Jul 2009 10:31
by Kristjan PGT
Ef það er best að taka þetta svona í heilu lagi þá ferðu ekki að láta það stoppa þig að þurfa að rúlla bílnum út. Býrð þér bara til tvo litla planka með hjólum undir. Getur fengið allt í það í Byko eða húsasmiðjunni. Setur þetta undir sitthvorn sílsinn (fremst) og rúllar bílnum út :D

Re: 750 V12 véla og sjálfskiptinga skipti næstu helgi.

PostPosted: Fri 17. Jul 2009 11:03
by Zed III
Þú gætir líka fært til donerinn með því að nota sæmilega stóran hjólatjakk og tjakka hann bara upp að framan, draga hann svo burtu frá lyftunni.