bmwkraftur.is
https://bmwkraftur.is/spjall/

BMW X5 3.0 bensín árgerð 2002 Rafmagnsvesen LEYST!
https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=7&t=38574
Page 1 of 1

Author:  Axel Jóhann [ Mon 13. Jul 2009 00:14 ]
Post subject:  BMW X5 3.0 bensín árgerð 2002 Rafmagnsvesen LEYST!

X5-inn hjá mömmu er í fýlu, hún fór inní búð, skildi bílinn eftir í gangi og þá dó útvarpið og svo drapst á honum, svo setti ég hann í gang og allt eðlilegt nema það að rafgeymaljósið logar, ABS ljósið logar, skriðvarnarljósið logar og handbremsuljósið logar.




Nóg rafmagn á honum..


Lausn:

Lausnin á þessu vandamáli er að alternatorinn er dáinn, víst ansi algengt í þessum bílum(X5 með 3.0 bensín) þannig ég er bara búinn að panta nýjann alternator.


Til gamans að geta þá kostar nýr Bosch 120Amper ekki nema 143.000kr :shock: :shock: :shock: :lol: í umboðinu en ég fékk alveg nákvæmlega eins SPLÚNKUNÝJANN Bosch alternator frá Rafstillingu á 56.000kr með því að láta gamla uppí!




Hér er verið að hvarta undan sama vandamáli

http://www.xoutpost.com/bmw-sav-forums/x5-e53-forum/63757-battery-light-alternator-voltage-regulator.html




Hefur einhver hugmynd um hvað þetta gæti verið?


Og já billinn er í eyjum þannig ég get ekki skroppið í Eðalbíla.


Kv. Axel Jóhann.

Author:  Saxi [ Mon 13. Jul 2009 02:51 ]
Post subject:  Re: BMW X5 árgerð 2002 vesen

Þessi ljós hafa komið upp hjá okkur eftir rafmagnsleysi og er það víst eðlilegt. Þá á að duga að keyra bílinn nokkra metra til að láta þetta hverfa.

Búinn að keyra hann eitthvað?

Author:  Axel Jóhann [ Mon 13. Jul 2009 08:57 ]
Post subject:  Re: BMW X5 árgerð 2002 vesen

Saxi wrote:
Þessi ljós hafa komið upp hjá okkur eftir rafmagnsleysi og er það víst eðlilegt. Þá á að duga að keyra bílinn nokkra metra til að láta þetta hverfa.

Búinn að keyra hann eitthvað?



Max 2km

Author:  IngóJP [ Mon 13. Jul 2009 17:58 ]
Post subject:  Re: BMW X5 árgerð 2002 vesen

Axel Jóhann wrote:
Saxi wrote:
Þessi ljós hafa komið upp hjá okkur eftir rafmagnsleysi og er það víst eðlilegt. Þá á að duga að keyra bílinn nokkra metra til að láta þetta hverfa.

Búinn að keyra hann eitthvað?



Max 2km



Út að keyra vinur út að keyra

Author:  Axel Jóhann [ Mon 13. Jul 2009 19:11 ]
Post subject:  Re: BMW X5 árgerð 2002 vesen

Vonandi búinn að finna orsökina, hann er bara að hlaða 11,58V þannig ég er búinn að rífa alternatorinn úr og opna hann og það eru 2 kol sem snerta öxulinn enn annað kolið er helmingi meira búið heldur en hitt, ætla panta nýjann spennustilli og skella honum í og sjá hvort þetta lagist ekki við það. :D

Author:  JonHrafn [ Mon 13. Jul 2009 23:36 ]
Post subject:  Re: BMW X5 árgerð 2002 vesen

Vinnufélagi minn fékk sömu ljós, ekki rafgeymaljós samt. TB dæmdu abs tölvuna ónýta og skiptu um en það breytti engu, þannig að þeir settu gömlu aftur í og rukkuðu ekkert. Þetta dæmi átti að kosta 300þús fyrir kreppu. Þessi rola hefur ekkert gertí þessu síðan.

Author:  Axel Jóhann [ Mon 13. Jul 2009 23:53 ]
Post subject:  Re: BMW X5 árgerð 2002 vesen

Þetta er ekkert alvarlegt, þetta er bara alternatorinn. Hlóð geyminn og skoðaði alternatorinn og hann er eflaust bara brunninn yfir, svo fóru öll ljós nema rafgeymaljósið eftir ég setti allt saman aftur.

Author:  Axel Jóhann [ Thu 16. Jul 2009 16:13 ]
Post subject:  Re: BMW X5 árgerð 2002 vesen

Lausnin á þessu vandamáli er að alternatorinn er dáinn, víst ansi algengt í þessum bílum(X5 með 3.0 bensín) þannig ég er bara búinn að panta nýjann alternator.


Til gamans að geta þá kostar nýr Bosch 120Amper ekki nema 143.000kr :shock: :shock: :shock: :lol: í umboðinu en ég fékk alveg nákvæmlega eins SPLÚNKUNÝJANN Bosch alternator frá Rafstillingu á 56.000kr með því að láta gamla uppí!




Hér er verið að hvarta undan sama vandamáli

http://www.xoutpost.com/bmw-sav-forums/x5-e53-forum/63757-battery-light-alternator-voltage-regulator.html

Og hérna eru ítarlegar upplýsingar um hvernig á að skipta um hann

http://www.xoutpost.com/bmw-sav-forums/x5-e53-forum/56593-x5-3-0-alternator-belts-diy-pictures.html

Author:  Zed III [ Thu 16. Jul 2009 16:25 ]
Post subject:  Re: BMW X5 3.0 bensín árgerð 2002 Rafmagnsvesen LEYST!

Glæsilegt að smella inn lausninni :thup:

Glatað að lesa sig í gegnum þræði sem hafa svo ekki lausnina í lokinn.

Author:  Axel Jóhann [ Thu 16. Jul 2009 16:28 ]
Post subject:  Re: BMW X5 3.0 bensín árgerð 2002 Rafmagnsvesen LEYST!

Zed III wrote:
Glæsilegt að smella inn lausninni :thup:

Glatað að lesa sig í gegnum þræði sem hafa svo ekki lausnina í lokinn.





Já, einmitt, þoli það ekki sjálfur.

Page 1 of 1 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/